Tíminn - 02.11.1975, Síða 39
Sunnudagur 2. nóvember 1975.
TÍMINN
39
iiiiiifiiii
□II
59101
Félag framsóknarkvenna
í Reykjavík
Fundur um skattamál verður haldinn nk. fimmtudag 6. nóv. að
Rauðarárstig 18 kl. 20.30.
Frummælandi verður Halldór Asgrimsson alþm.
Fjölmennið. Stjórnin.
SVEFNBEKKJfl
I
Hðfðatúnl 2 - Slmi 15581
Reykjavík
ATHUGIÐ! Nýir eigendur. — ödýrir svefnbekkir, einbreiðir og tvi-
breiðir, stækkanlegir. Svefnstólarog svefnsófasett væntanlegt. Falleg
áklæði nýkomin.
Gjörið svo vel að lita við eða hringja. Sendum gegn póstkröfu um land
allt. Opið til kl. 22 þriðjudaga og föstudaga og til kl. 1 laugardaga. —
Athugiö, nýir eigendur.
Dráttarvél óskast
óska eftir notaðri dráttarvél, má vera
gömul. Æskilegt að tætari og ámoksturs-
tæki fylgi.
Tilboð er greini verð og ásigkomulag
vélarinnar sendist Timanum merkt
Dráttarvél 1878.
Verðlaunasamkeppni um
þátt Þingholtanna í
þróun vaxandi borgar
Eyfirðingafélagið
með basar og
kaffisölu í
Súlnasalnum
KVENNADEILD Eyfirðingafé-
lagsins i Rvik efnir til hinnar ár-
legu kaffisölu eða fjölskyldukaffis
i Súlnasal Hótel Sögu kl. 3 sunnu-
daginn 2. nóvember. Félagið hef-
ur efnt til þessarar kaffisölu ár-
lega, sem hefur verið vel sótt af
Norðlendingum búsettu,m hér
syðra. Að þessu sinni verður bas-
ar haldinn samhliða kaffisölunni,
þar sem ýmsir eigulegir munir
verða boðnir til sölu. Kvenna-
deildin býður sérstaklega öllum
Eyfirðingum 67 ára og eldri
ókeypis veitingar á sunnudaginn i
tilefni dagsins.
Eyfirðingafélagið hefur að und-
anförnu unnið að þvi að styrkja
margvisleg liknar- og menning-
arstarfsemi norðanlands, m.a.
lagt fram fé til hjartabilsins á
Akureyri, til Minjasafnsins og til
fleiri mála. öllum ágóða kaffisöl-
unnar verður varið til sambæri-
legra mála norðanlands. Er þess
að vænta að Norðlendingar og þá
sérstaklega Eyfirðingar og Akur-
eyringar fjölmenni i Súlnasalinn
á sunnudaginn til þess að styrkja
gott málefni um leið og þeir hitta
vini og kunningja að norðan.
Vetraróætlun
Flugleiða
gébé-Rvik. — Vetraráætlun Flug-
félags tslands og Loftleiða gengur
i gildi 1. nóvember. Breytingar
verða ekki miklar, þó fljúga þotur
Loftleiða allan veturinn til
Chicago nú og i vetur verður ekki
um beint flug að ræða til
Stokkhólms yfir vetrarmánuðina.
Félögin munu nota DC-8-63 þotur,
Boeing 727 þotur og F-27
Friendship skrúfuþotur til
áætlunarflugferða. Þá hafa
Flugleiðir h.f. ákveðið sjö sólar-
ferðir til Tenerife i vetur og
verður sú fyrsta 14. desember og
sú siðasta 4. april, eða um
páskana.
Vegna mikillar eftirspurnar og
vaxandi vinsældir sólarferða i
skammdeginu, hefur þessum
ferðum farið fjölgandi á undan-
förnum árum, en það var um ára-
mótin 1970-1971 að Flugfélag ts-
lands hóf skipulegar ferðir til
Gran Canaria og eru þessar ferðir
nú orðnar fastur liður i starfsemi
Flugleiða hf. Mörg þúsund ts-
lendinga hafa nú kynnzt Gran
Canaria, og i vetur bætist blóma-
eyjan Tenerife við sem viðkomu
staður. Munu farþegar Flugleiða
dveljast i ferðamannabænum
Puerto de la Cruz, sem er á
austurströnd eyjarinnar.
A ÞESSU ári er I fyrsta skipti efnt
til samkeppni um „Verðlaun Sig-
urðar Guðmundssonar”. Arki-
tektafélag íslands hefur, sam-
kvæmt ákvæðum skipulagsskrár
sjóðsins, skipað dómnefnd i sam-
keppni þessari, og eiga sæti i
henni arkitektarnir Gunnlaugur
Halldórsson, formaður, Albina
Thordarson og Vifill Magnússon,
svo og Steinunn Marteinsdóttir
leirkerasmiður og Guðni Guð-
mundsson rektor, tilnefnd af
sjóðsstjórninni. Samkeppnis-
verkefnið er skipulagning Þing-
holtsstrætis og Þingholtanna með
tilliti til varðveizlu fornra húsa i
vaxandi, nýtizku borg, eða eins og
það er orðað i auglýsingu um
samkeppnina: „Þáttur Þingholt-
anna i Reykjavik i þróun vaxandi
borgar”.
Telur stjórn sjóðsins fara vel á
þvi að efna til slikrar samkeppni
á „byggingaverndarári” Evrópu-
ráðsins.
Samkeppnistillögum á að skila
fyrir 4. mai nk.
Leikfélag Hafnarfjarðar var
endurvakið haustið 1973, er
hópur ungs fólks samdi og
sviðsetti barnasöguna Sann-
leiksfestina. 1974 sýndi
L.H. „Leif, Lillu, Blóma og'
Brúði” eftir Suzanne Osten i
þýðingu Harðar Torfasonar
undir stjórn Kára Halldórs.
Sýnt var i Hafnarfirði og farið
i leikför um Austur- og Norð-
urland.
Laugardaginn 1. nóvember
n.k. kl. 14.00 verður 1. sýning
L.H. Barnaleikhússins á
„Halló krakkar” i Bæjarbiói i
Hafnarfirði. Höfundur er Leif
Forstenberg, en Guðlaug Her-
mannsdóttir islenzkaði. Leik-
stjórn annaðist Magnús Axels-
son, lýsingu Lárus Björnsson.
Leikendur eru: Sigriður
Ey þórsdóttir, Kjuregej
Alexandra, Finnur Magnús-
son, Kári Halldór og Ingólfur
Steinsson, sem hefur haft
umsjón með tónlist og einnig
samið nokkur lög i leikinn.
önnur sýning á „Halló
krakkar” verður i Breiðholts-
skóla, sunnudaginn 2. nóvem-
ber kl. 16.30.
Fyrirhugað er að sýna á
laugardögum i Bæjarbiói, en á
sunnudögum i skóium og nær-
liggjandi byggðarlögum.
Aðalfundur
í Árnessýslu
Aðalfundur Félags ungra Framsóknarmanna I Arnessýslu verð-
ur haldinn að Flúðum þriðjudaginn 4. nóv. kl. 21,30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
Halldór Ásgrimsson alþingism. ræðir stjórnmálaviðhorfið
Magnús ólafsson form. SUF. greinir frá starfi sambandsins
önnur mál.
Ungt fólk er hvatt til að fjölmenna.
Ungar konur! Fjölmennið á fundinn og hefjið virkari þátttöku i
þjóðfélagsmálum i framhaldi af velheppnuðum aðgerðum i
kvennafrii. Stjórnin.
Akureyri — nógrenni
Haustfagnaður framsóknarmanna i Norðurlandskjördæmi
eystra verður haldið að Hótel KEA laugardaginn 8. nóv. og hefst
með borðhaldi kl. 20.00.
Ræðumaður Þórarinn Þórarinsson alþingismaður.
Skemmtiatriði — dans.
Þátttaka tilkynnist Hótel KEA fyrir föstudaginn 7. nóv.
Stjórn Kjördæmissambandsins.
Akranes
Framsóknarfélag Akraness heldur Framsóknarvist i félags-
heimili sinu að Sunnubraut 21 sunnudaginn 2. nóv. kl. 16.00.
Kvöldverðlaun og heildarverðlaun að loknum 5 vistum. Þetta er
2. vistin af 5. öllum heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Fyrirlestur
Kristjáns Friðrikssonar
Flyt fyrirlestur minn um nýskipan efnahagsmála, einkum sjáv-
arútvegs-og iðnaðarmála, á Akureyri sunnudag kl. 15.00 að
Hótel KEA.
Kristján Friðriksson.
Árnessýsla
Akveðið er aö Framsóknarfélag Arnessýslu haldi sin árlegu
spilakvöld i nóvember. Hiö fyrsta verður að Aratungu 14. nó v,
annað að Rorg 21. nóv. og þriöja og siðasta spilakvöldið i Arnesi
28. nóv.
Nánar auglýst siðar.
Stjórnin.
Kjördæmisþing
Norðurlands eystra
Þingiðhefstlaugarsaginn 8. nóv kl. 13. Þátttakendum stendur til
boða gisting á Hótel KEA á hagstæðu verði.
Hafnarf jörður
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Framsóknarfélögin i Hafnarfirði hafa opið hús að Strandgötu 11,
2. hæð á hverjum fimmtudegi kl. 18—19. Þar verða til viðtals
bæjarfulltrúi flokksins og varafulltrúi, svo og nefndarmenn.
Simi 51819.
Framsóknar-
menn
Suðurlandi
Kjördæmisþing framsóknarmanna i Suðurlandskjördæmi
verður haldið að Hvoli, Hvolsvelli, sunnudaginn 9. nóv. og hefst
kl. lOf.h. Auk venjulegra þingstarfa verða tekin til meðferðar
orku- og menntamál. Framsögumenn verða Helgi Bergs banka-
stjóri og Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra. Allt
framsóknarfólk velkomið.