Fréttablaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 8
8 2. mars 2006 FIMMTUDAGUR Heppnir fá miðatil Evrópu fyrir tvo 10 Það fær enginn að vita hverju þú svarar ef þú tekur þátt í Launakönnun VR og Fyrirtæki ársins. Niðurstöðurnar eru hinsvegar öflugt vopn sem mun gagnast öllum félögum VR í baráttu þeirra fyrir betri kjörum og lífsgæðum. Þín þátttaka skiptir miklu máli. LAUNAKÖNNUN VR og FYRIRTÆKI ÁRSINS Skilafresturinn hefur verið framlengdur til 14. mars. HEILBRIGÐISMÁL „Reynsla ung- lækna er mjög takmörkuð og heimssýn þeirra mjög þröng,“ segir Jóhannes M. Gunnarsson, lækningaforstjóri á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, um fram- komna gagnrýni formanns Félags ungra lækna. Í Fréttablaðinu í gær gagn- rýndi formaðurinn, Bjarni Þór Eyvindsson, að unglæknar ættu ekki fulltrúa í notendahópum sem eru að vinna tillögur að fyrir- komulagi og skipulagi deilda á nýju hátæknisjúkrahúsi LSH. „Í notendahópunum er verið að leita eftir reynslu,“ segir Jóhannes. „Það er verið að sækja viðhorf og hugmyndir, sem menn hafa kynnst úti um heiminn. Síðan er um að ræða langtímaverkefni. Unglækn- ar eru í tiltölulega stuttan tíma hér, tvö til þrjú ár eða svo.“ Jóhannes segir enn fremur að þeir sem eiga sæti í notendahóp- unum leiti út fyrir eigin raðir. Því megi gera ráð fyrir því að kallað verði eftir sjónarmiðum unglækna á ýmsum sviðum, ekki síst þar sem fjallað sé um aðstöðu starfs- fólks. „Ég get alveg fallist á,“ bætir hann við, „að í hópnum sem fjallar um þann þátt hefðu þeir átt prýði- lega heima.“ - jss JÓHANNES M. GUNNARSSON Lækningafor- stjóri LSH segir að örugglega verði leitað til unglækna. Framkvæmdastjóri lækninga á LSH um gagnrýni á skipun í notendahópa: Heimssýn unglækna þröng VEISTU SVARIÐ? 1 Hver er stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur? 2 Hvaða ár var Olof Palme myrtur í Stokkhólmi? 3 Hvað heitir yngri sonur Johns Lennon? SVÖR Á BLS. 54 MENNTAMÁL „Mér líst vel á hug- myndir Kristínar vegna þess að Háskólinn hefur alla burði til þess að verða meðal þeirra allra fremstu og er það nú þegar að nokkru leyti,“ segir Oddný G. Sverrisdóttir, deildarforseti Hug- vísindadeildar Háskóla Íslands. Hún tekur sem dæmi að kennsla Miðaldasögu innan Hugvísinda- deildar sé að sínu mati númer eitt eða tvö á Norðurlöndum og skól- inn sé að öllu jöfnu mjög framar- lega í heiminum. „Við erum mjög sterk á mörgum sviðum og jafnvel á heimsmælikvarða í þeim nokkrum þannig að stökkið til að komast í hóp fremstu háskólanna er ekki jafn mikið og margur held- ur. Þetta er hins vegar alltaf spurn- ingin um að fá meira fé og að minnka eða eyða þeim mun sem er milli deilda hvað fjárframlag varðar.“ Oddný bendir á að Hugvísinda- deild fái sem nemur 396 þúsund krónum á hvert nemandaígildi samkvæmt sérstöku reiknilíkani meðan ígildi nemanda við Kenn- araháskóla Íslands sé vel yfir 600 þúsund krónur. Hún segir kennara innan Hug- vísindadeildar ekki formlega hafa tekið afstöðu hvað skólagjöld varðar en hún sé persónulega á móti. „Hins vegar sjá allir að eitt- hvað þarf til að koma til að halda áfram því góða starfi sem hér er unnið um allan skólann.“ Sigfús Þór Elíasson, deildarfor- seti Tannlæknadeildar Háskólans, tekur undir með Oddnýju að skól- inn eigi alla möguleika á að ná í fremstu röð. „Það veltur eðlilega á peningum eins og allt annað en það er ekki óraunsætt markmið hjá rektor. Þetta er búið að skoða fram og til baka og sýnt hefur verið fram á að Háskólinn fær minna fé en aðrir háskólar. Einnig er þetta spurningin um hvort skól- inn eigi að taka við öllum nemend- um sem um sækja.“ Sigfús segir deild sína ekki hafa rætt upptöku skólagjalda en fundur um það standi fyrir dyrum. „Persónulega finnst mér það ekki útilokað í framhaldsnámi í ákveðn- um fögum, sérstaklega í samvinnu við atvinnulífið. Í heildina séð er ég á móti skólagjöldum í ríkisskól- um en finnst rétt að hafa þau í huga í sérstökum tilfellum en þá eingöngu í ákveðnum fögum þar sem markaðurinn leyfir.“ albert@frettabladid.is FRAMARLEGA Í FLOKKI Að mati tveggja deildarforseta innan Háskóla Íslands á skólinn ekki langt í land með að komast í hóp þeirra hundrað bestu eins og Kristín Ingólfsdóttir rektor sér fyrir sér.FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Vel raunhæft markmið Hugmyndir Kristínar Ingólfsdóttur, rektors Háskóla Íslands, um að koma skólanum í hóp þeirra hund- rað bestu í heiminum eru ekki fráleitar að mati tveggja deildarforseta. LOFTMENGUN „Vart er hægt að segja að fólk verði fyrir heilsutjóni en þetta veldur verulegum óþægind- um hjá fjölda fólks,“ segir Davíð Gíslason ofnæmislæknir. Svifryk mældist hátt yfir heilsu- verndarmörkum í blíðunni suð- vestanlands í gær, annan daginn í röð, en slík mengun getur verið afar slæm fyrir alla þá sem eru með viðkvæm öndunarfæri og er mælst til að það fólk haldi sig fjarri fjölförnum götum meðan slíkt gengur yfir. Svifryk er samheiti yfir örsmá- ar loftagnir sem sökum smæðar sinnar eiga greiða leið ofan í kok og lungu þar sem þau geta safnast fyrir. Davíð segir litla ástæðu fyrir fólk að hafa áhyggjur af varanleg- um skaða vegna þessa jafnvel þó svifryk mælist yfir mörkum marga daga í röð. „Fyrst og fremst er þetta afar ertandi, sérstaklega gagnvart þeim sem eru viðkvæmir fyrir. Asmasjúklingar finna vel fyrir slíku og margir aðrir verða fyrir óþægindum í nefi og efri hluta önd- unarvegarins. Þessu geta fylgt nef- stíflur og slík óþægindi meðan á þessu gengur en flestir jafna sig aftur á nokkrum dögum.“ - aöe Mengun í höfuðborginni: Svifryk mælist yfir hættumörkumDANMÖRK Útgáfa fríblaðs eins og Fréttablaðsins í Danmörku myndi hafa mest áhrif á rekstur lausa- sölublaðanna þar í landi. Þetta er haft eftir Piet Bakker, hollenskum fjölmiðlafræðingi, í danska við- skiptablaðinu Børsen. Børsen fjallaði um hugsanlega útgáfu Dagsbrúnar á dönsku frí- blaði í heilsíðugrein í gær. Kemur þar fram að Fréttablaðið sé fyrsta blað sinnar tegundar í Vestur-Evr- ópu en álíka blöð komi út í Banda- ríkjunum og A-Evrópu. Fullyrt er í grein Børsen að auglýsingatekjur fríblaðsins muni ekki duga fyrir dreifingar- kostnaðinum. - ks Fríblað Dagsbrúnar: Efasemdir í Danmörku LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Reykja- vík er engu nær um hver rændi peningum á aðalskrifstofu Happ- drættis Háskóla Íslands við Tjarn- argötu þann 30. janúar síðastlið- inn. Að sögn lögreglu hafa vísbendingar í málinu ekki leitt til neins. Skömmu eftir ránið handtók lögreglan mann en honum var sleppt fljótlega þar sem ljóst þótti að hann ætti enga aðild að málinu. Ekki hafa aðrir verið handteknir vegna málsins en ræninginn komst undan með fjármuni eftir að hafa hótað starfsmönnum með byssu. Engum varð meint af. - aöe Ránið í Happdrætti HÍ: Enginn liggur undir grun UNGVERJALAND, AP Vladimír Pútín Rússlandsforseti gekkst í opin- berri heimsókn til Ungverjalands á þriðjudag við siðferðilegri ábyrgð stjórnvalda í Moskvu á hinni harkalegu niðurbælingu sov- éska hersins á uppreisninni í Ung- verjalandi árið 1956. Pútín ræddi við Laszlo Solyom, forseta Ungverjalands, forsætis- ráðherrann Ferenc Gyurczany og fleiri ráðamenn í þinghúsinu Búdapest. Þar fór líka fram hátíð- leg afhending fornra bóka sem Sovétherinn tók herfangi í Ung- verjalandi í lok síðari heimsstyrj- aldar. Ungversk stjórnvöld höfðu lengi krafist þess að Rússar skil- uðu hinum dýrmæta feng. - aa Pútín í Ungverjalandi: Rússar skila fornritum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.