Fréttablaðið - 23.03.2006, Síða 33
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
GÓÐAN DAG
Í dag er fimmtudagurinn
23. mars, 82. dagur ársins
2006.
Reykjavík 7.18 13.34 19.52
Akureyri 7.02 13.19 19.38
DansWorkshop verður haldið
í Sporthúsinu um næstu helgi.
Þangað koma frægir danshöf-
undar frá London sem meðal
annars hafa unnið
með Justin Timber-
lake, Michael Jackson,
Britney Spears, Janet
Jackson, Mariah Carey,
Kaney West, Aaliyah og
Pink. Nánari upplýs-
ingar fást á blom-
ster09@gmail.com.
Mynstraðar flíkur verða vinsælar
í vor og sumar. Hönnuðir sem
lögðu línurnar fyrir komandi tísku
voru að minnsta kosti
mjög hrifnir af ýmiss
konar mynstri svo sem
afrískum mótífum og
stórum blómamynstrum.
Sem dæmi um hönnuði
má nefna Calvin
Klein, Phi, Alexandre
Herchcovitch, Marni
og Christian Lacroix.
Ikea hefur nú gefið út nýjan eld-
húsbækling. Hann er þó einungis
að finna á vefsíðu verslunarinnar,
www.ikea.is. Í bæklingnum,
sem er 48 blaðsíður, eru ýmsar
hugmyndir og útfærslur á eld-
húsum sem geta auðveldað fólki
framkvæmdir.
ALLT HITT
[HEILSA TÍSKA HEIMILI]
ENDINGARGOTT
OG SLITSTERKT
Teppaland býður upp á
skemmtilega fjölbreytt úrval
gólfdúka.
HEIMILI 10
SÆVAR KARL OPNAR NÆST-
KOMANDI LAUGARDAG NÝJA
SKÓDEILD INNAN VERSLUNAR
SINNAR ÞAR SEM FÁANLEGIR
VERÐA SKÓR FRÁ MERKJUM Á
BORÐ VIÐ MIU MIU.
Verslun Sævar Karls hefur fyrir
löngu stimplað sig sem ein
besta hátískuverslun landsins.
Almennileg skódeild hefur þó
ekki verið innan vébanda Sævars
Karls en nú hefur loksins verið
ráðin bót á málinu. Laugardaginn
næsta verður formlega opnuð
ný skódeild eða hálfgerð skóbúð
inni af fataversluninni.
Í nýju deildinni verður hægt
að finna fjölbreytt úrval ýmiss
skóbúnaðs, bæði fyrir karla og konur. Meðal framleiðenda sem
verða hjá Sævari Karli má helst nefna Prada, Miu Miu og einnig
skinnskó frá Rosetti-bræðrum. „Við verðum líka með stígvél frá
Mexíkó og einnig verðum við með hátískuskó frá Ítalíu og Spáni,“
segir Sævar Karl glaðbeittur.
Ný skódeild
Sævar Karl ætlar loksins að opna
skóbúð inni af verslun sinni á
Bankastræti. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Erla Dís starfar sem stílisti og hefur
mikinn áhuga á tísku. Hún á mikið
skósafn og kaupir föt óháð straumum
og stefnum.
„Það eru tveir hlutir sem eru mér kærastir
þessa dagana,“ segir Erla Dís Arnardóttir,
stílisti í Top Shop, aðspurð um eftirlætis-
flíkina. „Annað eru skór sem ég fékk í lítilli
búð í London. Þeir eru litlir, reimaðir og
gylltir með blómum. Hitt er ristastór, svört
og síð angórupeysa úr Rokki og rósum. Hún
er ofboðslega þægileg fyrir íslenskan
vetur.“ Erla kveðst vera með mikla skódellu
og á því mörg skópörin. „Ég veit ekki alveg
hvað ég á marga skó. Ég er alltaf að reyna
að hafa stjórn á þessu en ég á þrjátíu pör, að
lágmarki,“ segir Erla, sem kýs helst að vera
í þægilegum flatbotna skóm. „Ég er ekki
mikið fyrir hæla, þeir eru einum of sárs-
aukafullir, þó ég sé mjög lágvaxin,“ segir
Erla hlæjandi.
Föt og tíska eru eitt helsta áhugamál
Erlu enda starfar hún sem stílisti. Hún
stefnir á fatahönnun í framtíðinni og þá
helst í Flórens. „Það er mekka tískunnar og
allir draumarnir þar, trúi ég,“ segir Erla,
sem fór eitt sumarið til Ítalíu og heillaðist
upp úr skónum.
Fatasmekkur Erlu er fjölbreyttur og hún
klæðist fötum óháð því sem er að gerast í
tískunni. „Ég fer bara í það sem mér finnst
vera skemmtilegt hverju sinni. Ég versla
mjög víða og bind mig aldrei við einhverjar
ákveðnar búðir eða strauma,“ segir Erla og
viðurkennir að hún fari stundum gagngert
til útlanda til að versla. „Það er veikleiki
minn. En maður dulbýr þessar ferðir sem
tónleikaferðir eða eitthvað slíkt svo þetta
líti aðeins betur út,“ segir Erla hlæjandi.
mariathora@frettabladid.is
Óháð tískustraumum
Af öllum skópörunum hennar Erlu heldur hún mest upp á litla gyllta skó sem hún keypti í London. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
GRÍÐARLEGUR
PRJÓNAÁHUGI
Tískusýning á sumarlínu
Prjónablaðsins Ýr var haldin
á dögunum, en áhuginn á
handprjóni hefur vaxið mikið
undanfarin ár.
TÍSKA 4
Vaxtalaus greiðslukjör í allt að 24 mánuði
(visa/euro) Engin útborgun
Í bláu húsunum við Faxafen Sími: 568 1800
Sjóntækjafræðingur með réttindi til
sjónmælinga og linsumælinga