Tíminn - 11.11.1977, Blaðsíða 15

Tíminn - 11.11.1977, Blaðsíða 15
Föstudagur 11. nóvember 1977 15 hljóðvarp Föstudagur 11. nóvember 7.00 Morguniitvarp Ve6ur- fregnirkl. 7.00, 8.15og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30,8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.00: Þórunn Magnea Magnúsdóttir heldur áfram lestri sögunnar „Klói segir frá” eftir Annik Saxegaard (5). Tilkynningar kl. 9.30. Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög milli atriöa. Spjallaö viö bændur kl. 10.05. Morgun- popp kl. 10.25. Morguntón- ieikar kl. 11.00: Janácek- kvartettinn leikur Strengja- kvartettnr. 13í a-mollop. 29 eftir Schubert/ Wilhelm Kempff leikur á píanó „Skógarmyndir” eftir Schumann. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Viö vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miödegissagan: „Skakkt númer — rétt númer” eftir Þórunni Eifu Magnúsd. Höfundur les (5). 15.00 Miödegistónleikar: Rússnesk tónlist 15.45 Lesin dagskrá næstu viku 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popp 17.30 Útvarpssaga barnanna: „C'tilegubörniní Fannadal” eftir Guömund G. Hagalin Sigriöur Hagalin les (3). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Söngleikurinn „Loftur” Brynja Benediktsdóttir og Erlingur Gislason sjá um þátt frá Akureyri. Höfundar leiksins: Oddur Björnsson, Kristján Arnason og Leifur Þórarinsson. 20.00 Tónleikar Sinfóniuhljóm- sveitar íslands í Háskóla- biói kvöldiö áöur, — fyrri hluti. Stjórnandi: Eifrid Eckert-Hansen frá Dan- mörku Einleikari: Aaron Rosand frá Bandarikjunum 20.45 „Skóiasetning” smásaga eftir Ingólf Pálmason Rúrik Haraldsson leikari les. 21.10 Einsöngur: Gérard Sou- zay syngur lög úr laga- flokknum „Svanasöngur” Franz Schubert, Dalton Daldwin leikur á píanó. 21.50 Visnasafn Útvarpstiö- inda Jón úr Vör flytur fyrsta þátt. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: „Dægradvöl” eftir Benedikt Gröndal Flosi Ólafsson les bókarlok (31). 22.40 Afangar Tónlistarþáttur sem Asmundur Jónsson og Guöni Rúnar Agnarsson stjórna. 23.30 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp Föstudagur 11. nóvember 1977 20.00 Fréttir og veöur 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Kastljós (L) Þáttur um innlend málefni. Umsjónar- maöur Guðjón Einarsson. 21.35 Ólympiuleikarnir i Kan- ada l976 Kanadisk heimild- amynd um 21. Ólympíuleik- ana, sem haldnir voru i Montreal I Kanada sumariö- 1976. Þýöandi Óskar Ingi- marsson. 23.35 Dagskrárlok David Graham Phillips: SUSANNA LENOX C JánHelgason honum upp f Ijótsbakkann, en hin stóðu kyrr og töluðu um fjárhlut sinn. Þegar upp á götuhornið kom, brá Burlingham sér inn í búð og keypti tvær regnhlífar fyrir níutíu sent. Hann retti Mabeí aðra, en hélthinni yfir sérog Súsönnu. Þau héldu áfram göngunni, og Burlingham mælti: ,,Nú byrjum við lífið uppá nýttstúlkurmínar. Hreint borð — og nýtttaf I, einsog ekkert hafi i skorizt". Súsanna leit f raman í hann og reyndi að brosa hlýtt og þakksamlega. Hún furðaði sig á því, að hann virtist meina það, sem hann sagði, eða hún sá ekki betur. ,,Já, það var þetta, sem ég vildi segja", sagði hann. „Þú verður alltaf að líta á líf ið eins og það er — eins og taf I. Áhættan vex við hvern leik — hvort sem þú vinnur eða tapar um síðir. Reynslan og þekkingin eykst við hvern leik. Hvað hugsar þú þér nú að gera, Mabel?" „Fyrst af ölluætla ég að kaupa mér föt. Þessar spjarir mínar eru orðnar gegnblautar og hatturinn alveg ónýtur- „Við skulum halda hópinn", sagði Burlingham. Þau settust inn i sporvagn, sem gekk til Louisville, og fóru úr honum við stóra búð. Burlingham varð að kaupa á sig hverja spjör. Mabel var í sæmilegum nærfötum, en þurfti að kaupa kjól, hattog sumarskó. Susanna varð að kaupa nærföt, skóog hatt, því að hún var berhöfðuð. Þau ákváðu að hittast aftur í næstu hliðargötu, Burlingham fékk þeim Mabel og Súsönnu þeirra hlut og hélt síðan leiðar sinnar. Þau voru öll brosandi af ánægju, er þau hittust aftur hálfri klukkustund siðar. Burlingham hafði breyst i prúðbúinn, miðaldra mann, sem stikaði um strætin með þeim svip að ætla mætti, að hann hefði hreppt eitthvert hnoss og komið öllum sínum málum í öruggt horf. Þessa breytingu, sem á honum var orðin, hafði hann fullkomn- að með því að láta klippa sig og raka. Mabel var áþekk- ustsöngmey í blárósóttu pilsi og hvítri, slikjulegri blússu og með stóran, blómskreyttan hátt á höfðinu. Súsanna hafði daufheyrzt við ráðum Mabelar, að kaupa sér lát- lausa og hentuga blússu, sem hægt var að þvo og fara í óstrauaða, ef nauðsyn bar til. En hún hafði keypt sér Ijósbláa matrósahúf u með dökkum borða, er fór vel við pilsið hennar. „Ég eyddi þrjátíu og sex dölum", sagði Burlingham. „Ég eyddi ekki nema tuttugu og tveim", sagði Mabel kotroskin. „Og telpan okkar lét þá ekki fá nema sjö dali af sinum peningum. Mig hefði aldrei grunað, að hún væri svona sparsöm". „Og hvað skal nú gera?" sagði Burlingham. „Ég ætla að fara og hitta vinkonu mína", svaraði Mabei. „Hún er líka leikkona. Það hlýtur að vera hægt að fá eitthvað að gera á sumarskemmtistöðunum. Ef til vill get ég komið Lornu einhvers staðar að. Augu hennar ættu að geta gefið henni drjúgar tekjur — og fæturnir og öklarnir. Ég er viss um ,að ég get útvegað henni 'eift- hvað". . /,<Þá ættirðu að láta hana vita, hvar hún getur fundið þig", sagði Burlingham. „Hvað? Hún kemur auðvitað með mér. Þú heldur þó ekki, aðég skilji barnið eftir eitt sins liðs?" „Nei. Hún kemur með mér í eitthvert gott mötuneyti, sem ég vel sjálfur", sagði Burlingham. Konnemora leit undan. „Já, það er ef til vill bezt", sagði hún. „Jæja, — þá fer ég þessa leið". „Við höldum áfram Kastaníuveginn", sagði Burling- ham. „Þú getur skrifað henni — eða mér. Við vitjum þess í pósthúsið. „Það er gott. Þú f réttir líka kannski eitthvað af Tempest. Þú gætir líka skrifað mér á sama hátt". Mabel var orðin þóttaf ull og annarleg. „Vertu sæl Lorna". Súsanna faðmaði hana að sér og kyssti hana. Mabel tárfelldi. „Ó, þetta ber allt svo fljott að — og er svo hræðilegt", sagði hún. „Reyndu að vera góð stúlka, Lorna. Þú getur treyst Bob". Hún leit á hann bænar- augum, alvarleg á svip. „Já, ég er viss um, að honum geturðu treyst". Hún flýtti sér brt“ en Súsanna hafði samt séð tárin, sem blikuðu í ástúðlegum litvana augum hennar. Súsanna stóð kyrr og horfði á eftir henni, Og nú fyrst rann upp fyrir henni, hvað þetta óhapp, sem þau höfðu orðið f yrir, hafði í för með sér. Hún sneri sér að Burling- ham. „Þú ert svo hugrakkur", sagði hún. „Það stoðar ekki að gefast upp og vola eins og hvolp- ur", ‘svaraði hann. „Ekki fær maður annan bát með því lagi. Það hefur enginn atvinnu af því". „Og þú skiptir peningunum jaf nt á milli okkar allra, þó að þú yrðir sjálfur fyrir langmestum skaða". Þau lögðu af stað. „Ég átti bátinn líka", sagði hann þurrlega og virtist hugsi. „Þegarég lagði af stað, sagðist ég ekki eiga hann, af því að ég ætlaði að fá ríflega báts- leigu, án þess að það kostaði neinn uppsteyt". Hún vorkenndi honum ekki tjónið, sem hann hafði orð- ið fyrir, en hana tók sárt, að hann skyldi hafa skrökvað. Taust hennar virtist ekki hið sama og áður. „Það hefur þó ekki verið ætlun þín að — að — að — að . . ", stamaði hún, en þagnaði svo skyndilega. „ Að pretta þau?" sagði hann.,, Jú,það gerði ég. Og eins og til þess að bæta f yrir það, skipti ég þessum peningum sem ég fékk hjá eiganda dráttarbátsins. Hvers vegna ertu svona hnuggin?" „Ég vildi að þú hefðir ekki sagt mér þetta", sagði hún aumkunarlega. „Ég get ekki skilið, hvers vegna þú gerðir það". „Af {dví að ég vil ekki, að þú haldir, að ég sé einhver engill. Ég er eins og f lestir aðrir, sem þú sérð í kringum þig og svíkja, og Ijúga, hvort sem þeir nu þykjast vera heiðarlegir eða ekki. Treystu aldrei neinum, væna mín. Því f yrr sem þú venur þig af þvi, þeim mun hættir þú að f reista fólks til þess að blekkja þig. Allir örðugustu hjall- arnir, sem orðið hafa á leið minni, stöf uðu af þvi, að ég treysti öðrum eða aðrir treystu mér". Hann virti hana fyrir sér, alvarlegur á svip, en skelli- hló svo, er hann sá, hve ringluð og skelf d hún var. ,,A-ha! Það er ekki eins bölvað og þú heldur", sagði hann. „Nú er hætt að rigna. Við skulum fá okkur morgunverð. Og svo—nýttbrask. Nú er allt að vinna, en engu að tapa. Það er líka stór kostur að vera þannig settur, að maður hafi engu að tapa". 16 Burlingham útvegaði henni snoturt ibúðarherbergi i húsi við Vestri-Kastaníuveg — allvel þokkuðu bæjar- hverfi, þar sem margt af miðstéttarfólki bjó. Húsmóðir var nefnd Redding — gömul og heyrnardauf ekkja, hýr- eyg og með gleraugu. Það var ekki fyrr en nú fyrir skömmu, að f rú Redding hafði neyðzt til þess aó fara að leigja eitt herbergið i ibúðinni. Hún var sanngjörn í við- skiptum — vildi fá sjö dali ,á viku fyrir heroergið og kvenmannsfæði. „Þér fáið góðan mat", f lýtti hún sér að bæta við.,, Ég bý hann til sjálf — og kaupi ekk, nema þaö bezta. Ég er ekki gef in f yrir niðursuðuvörur. L’ottir yðar skal fá allt, sem hún vill". „Þetta er ekki dóttir mín", sagði Burlingham, sem nu DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.