Tíminn - 11.07.1978, Blaðsíða 13
12
Þriftjudagur 11. júll 1978
Til orustu
við
aukakílóin
sjö kíló á tveim vikum
meira en tvær vikur i einu. Eftir
það verður fólk aftur að borða
fjölbreyttari fæðu um nokkurn
tima. Siöan er i lagi að byrja
aftur á kúrnum i eina til tvær
vikur.
Þá skal tekið fram að þetta er
sagður svo strangur megrunar-
kúr að öðru fólki en stálheil-
brigðu er ráöið frá að reyna
hann. Einnig skal fólki bent á,
aö til aö kúrinn nái tilgangi sin-
um eru settar eftirfarandi regl-
ur sem veröur að fylgja ná-
kvæmlega:
Algerlega verður að
fylgja matseðlinum
Það má engu breyta.
Ef það t.d. stendur, stórt
stykki af kjöti þá verður
það iíka að vera minnst
200 gramrna kjötstykki.
Minna gerir minna gagn.
Kjöt, fiskur, ostur og egg
innihalda mikið af eggja-
hvítu sem eykur brennslu
og þar með hraðar því að
fólk léttist.
Þar sem af tur á móti er»
tekið fram um ákveðna
vikt af einhverju verður
einnig að fylgja því ná-
kvæmlega, bæði þyngd og
tegund matar.
Borða verður allt sem á
matseðlinum stendur.
Það sem minnkar
árangur f lestra er að þeir
fylgja ekki þessari reglu.
Ekki má heldur skipta
þessum mat milli máltíða
eða borða hann sem
aukabita.
Kroppar af öllum stærðum. Suma vankanta og aukakeppi er hægt aðfela að nokkru leyti með fötunum
en þarna er það ekki hægt.
Drekkið mikið
Drekka skal mikið
vatn, minnst 2 lítra á dag
og jafnvel allt að fjóra
lítra. Þessi kúr losar mik-
ið af úrgangsefnum úr
likamanum, og þeim á að
skola burtu með vatni.
Drekki fólk of lítið geta
þessi úrgangsefni festst í
líkamanum og valdið
eitrun sem myndar bjúg.
Ekki er nauðsynlegt að
drekka þetta allt sem blá-
vatn. Það má drekka sem
kaffi te og jurtate en
auðvitað hvorki með
mjólk né sykri.
Matseðillinn
1. dagur
Morgunn: Kaffi eða te
Sagt er að tslendingar séu
ekki gefnir fyrir styrjaldir og
má það til sanns vegar færa.
Þeir eru samt nokkuð margir,
sem alltaf þurfa að standa i
striði — striði viö kiló af fitu sem
sækja eftir aö setjast á hina og
þessa staði likamans. A engum
tima ársins gerist fólk áraáar-
gjarnara á þessi kiló en einmitt
um þetta leyti þegar farið er aö
tina til sólarflikurnar og bikini-
baöfötin. Hvað ætli margar kon-
ur minnist þeirra raunastunda
þegar þær fara að máta blkiniö
frá fyrra ári, fyrir framan
spegilinn og sjá að þau hafa
ennþá þrengzt. Yfirmaginn
hefur stækkaö og keppirnir á
lærunum og mjöðmunum sýnast
skelfilegir. Hræöileg tilfinning.
Vopnin i þessu striði eru fjöl-
margir megrunarkúrar, sem
flestir eiga að geta gert krafta-
verk, en árangurinn er misjafn.
Sumir hafa sigrazt á óvinunum
a.m.k. um stundarsakir en aðra
hefur skort þolinmæöi enda
þykir sannað að þessir óvnir eru
fólki misjafnlega erfiöir
viöureignar.
Okkur á Timanum datt i hug
að skýra eilitið frá vopnum,
sem vinna eiga á óvinunum.
Verður byrjað á megrunarkúr
fyrir þá óþolinmóðu sem
kannski eru að fara f sumarfri á
næstunni og vildu gjarnan
leggja talsvert á sig til að geta
tekið sig betur út á einhverri
sólarströndinni. Umræddur
„kraftaverkakúr” er gerður af
sérfræðingum á hinu þekkta
Mayo-sjúkrahúsi i Banda-
rikjunum. Þeim sem sýna þann
sjálfsaga að halda kúrinn út i
tvær vikur er lika heitiö riku-
legri umbun þvi sagt er að allt
aö 7 kiló eigi að hverfa á tveim
vikum.
Siðar mun i blaðinu verða rætt
um megrun almennt og lang-
timamarkmiö i þvi sambandi.
Hefur blaðið fengið leyfi Jóns
óttars Ragnarssonar matvæla-
efnafræöings til að birta nokkur
atriði um orsakir offitu og ráð
við henni úr handriti að
óprentaðri bók er hann vinnur
að um þessar mundir og kann
blaðiö honum þakkir fyrir það.
Fyrrnefndur bandariskur
megrunarkúr byggir á þvi að
nær engra kolvetna er neytt en
þeim mun meira af eggjahviu-
rikri fæöu. Fái likaminn ekki
kolvetni breytir hann ekki ann-
arri fæðu I likamsfitu. Þar við
bætist að kolvetnasnauöur
matur eykur brennslu iikamans
svo fólk á að leggja mjög ört af.
Sérfræðingarnir á Mayo-sjúkra-
húsinu eru sagöir lofa þvi að
árangurinn haldist allt að þrem
árum svo fremi að fólk boröi
frekar skynsamlega eftir að
aukakilóin eru farin.
Tekið skal fram vegna þeirra
sem þurfa að losna við fleiri kiló
að ekki má vera I þessum kúr
(alltaf án mjólkur og
sykurs)
Hádegi: 2 harðsoðin
©99 .1 tómatur og stór
skammtur af kálmeti,
helzt grænkáli eða
blaðsalati.
Kvöld: Stórt stykki
grillsteikt magurt kjöt,
má vera hakkað grænt
salat með örlitlu af
olíu/ediks sósu.
2. dagur
Morgun: Kaffi eða te
og 1 ósætt kex.
Hádegi: Stórt stykki
grillsteikt kjöt, gjarnan
kjúklingur en þá ham-
flettur, grænt salat og
einn ávöxtur, þó ekki
banani eða vínber.
3. dagur
Morgunn: Kaffi eða te
1 stk. ósætt kex.
Hádegi: Stór biti af
gúrku 2 tómatar og 1
appelsína eða hálfur
greipávöxtur.
Kvöld: 2 harðsoðin egg,
mögur skinkusneið og
grænt salat.
4. dagur
Morgunn: Kaffi eða te
og ristuð brauðsneið með
smjöri
Hádegi: 1 harðsoðið
egg, 30 gr. ostur og 100 gr.
gulrætur hráar eða
soðnar.
Kvöld: 1 lítil dós hreint
jogurt og ein pera eða
einn greipávöxtur.
5. dagur
Morgunn: 100 gr. rifnar
Er ekki margt tilvinnandi?
Þriðjudagur 11. júli 1978
13
Glæsilegt finnst ykkur ekki. Sund er ein allrabezta likamsþjálfun
sem hægt er að stunda.
gulrætur með safa úr
hálfri sítrónu.
Hádegi: Stór
skammtur af fiski soðn-
um eða grillsteiktum án
feiti eða sósu og 1
tómatur.
Kvöld: Stórt stykki
grillsteikt kjöt, góður biti
af gúrku og einn tómatur.
6. dagur
Morgunn: Kaffi eða te
og ristuð brauðsneið með
smjöri.
Hádegi: 2 harðsoðin
egg og 100 gr. rifnar gul-
rætur með safa úr hálfri
sítrónu.
Kvöld: Grillsteiktur
kjúklingur og grænt salat.
7. dagur
Morgunn: Kaffi eða te.
Hádegi: Stórt stykki
grillsteikt kjöt og hálfur
greipávöxtur.
Kvöld: Þeim er óskað
til hamingju sem ekki
hafa gefizt upp ennþá og
verðlaunaðir með því að í
kvöld maga þeir borða
það sem þá langar í.
Síðan er að gera upp við
sig hvort haldið verður
áfram og þá byrjað aftur
á l. degi.
(Þýtt HEI)
•kblöð
Mikið úrval af miðfi
klemmum.
Smiðum einnig fjaðra
Sendum i póstkröfu h
. Bílavörubúði
Hoekkið bílinn upp svo að hann taki ekki
niðri ó snjóhryggjum og holóttum vegum
Nú byóíjt
sveskjujógúrt!
Mjólkursamsalan IReykjavík