Tíminn - 10.01.1980, Síða 3
Fimmtudagurinn 10. janúar 1980
3
Lárósastöðin:
Endurheimtingarhlutf all á
haf beitarlaxi um 10-15%
— Stöðin hefur starfað með góðum árangri s.l. 14 ár
FRI — Allmiklar umræöur hafa
verið undanfarið um möguleika
íslendinga til laxaræktar i stórum
stil með hafbeit og sjóeldi. Sumir
vilja halda þvi fram að erlendir
aöilar þurfi að koma hér til en
aðrir halda þvi fram að Is-
lendingar sjálfir gætu komið
þessuá leggánaðstoðarannarra.
Skinandi dæmi um hið siðar-
nefnda er hafbeitarstöðin Lárós
aðLátravikáSnæfellsnesi, en þar
hefurlax verið ræktaðurmeð haf-
beit undanfarin 14 ár með góðum
árangri.
„Möguleikar Islendinga á
þessu sviði eru mjög miklir”
sagði Jón Sveinsson i samtali viö
Timann en hann er einn af for-
vigismönnum Lárósa. Viö höfum
starfrækt stöðina siðan 1966 og
endurheimtuhlutfallið hefurverið
um 10-15% hjá okkur. Þaö eru
eingöngu Islendingar sem hafa
staöiö og standa að stöðinni og
allir hafa unnið að þessu i fri-
stundum sinum”.
Hvernig er rekstri stöövarinnar
háttaö?
„I aðalatriöum er þetta þannig
að þegarfyrstulaxarnir koma frá
afrétti hafsins i júnlmánuði þá
byrjum við strax á þvi að velja
stofnlaxinn en hinum er slátrað
og þeir seldir ýmist til innan-
landsneyslu eða útflutnings.
Megnið af laxinum gengur siðan i
stöðina i júlimánuði og fyrrihluta
ágústmánaðar.
Hrognataka hefst siðan I októ-
ber og stendur fram að 20. des.
Flutningur á klaklaxi til sjávar
hefst siðan venjulega i marsmán-
uöi og oftast er laxinn merktur
um leið.”
Hver er stærð endurheimta lax-
ins?
„Samkvæmt rannsóknum sem
veiðimálastjórnin gerði á 37
endurheimtum löxum hjá okkur
kom fram að 54% af þessum löx-
um höfðu veriö 1 ár i sjó, voru 70
sm og 3,8 kg, 41% höföu verið 2 ár
i sjó og voru 88 sm og 7,0 kg, og
5% höfðu veriö 3 ár i sjó og voru
104 sm og 13 kg. Alls hafa um
13.600laxar endurheimst hjá okk-
ur eöa aö meðaltali 1133 laxar á
ári. Mest varö endurheimtin tæp-
lega 3000 laxar á einu ári en það
var árangur 167 þús, sumaralinna
seiða og 75 þús kviöpokaseiöa.
Verðmæti þeirrar endurheimtu
miðað við verð á s.l. ári var kr.
27,6 millj. kr, en verð seiðanna
var kr. 13.1 millj.”
Er mögulegt að auka laxa-
gengd i Lárósastööina?
„Þvi get égsvaraö hiklaust ját-
andi. Sú reynsla sem fengist hef-
ur af stöðinni veröur ekki metin
til fjár og hún hefur verið jákvæð
og hvetjandi fyrir okkur alla.
Hinsvegar hefur fiskræktin verið
olnbogabarn framkvæmda- og
fjárveitingavaldsins þar til nií en
i blgerð hjá okkur eru viðamiklar
tilraunir á þessu sviöi með
væntanlegri aðstoð Fram-
kvæmdastofnunar og Byggða-
sjóðs.”
Telurþú aðlslendingar þurfi að
leita eftir erlendri aðstoð i þess-
um efnum?
„Það yrði þá ekki nema á
grundvelli lánsfjármagns. Ég tel
að við höfum bæði reynsluna og
þekkinguna til þess að gera þetta
sjálfir auk þess sem aðstaða okk-
ar I þessum efnum er einstæð. Þá
á ég við heita og kalda vatnið hér
svo og það aö á fáum ef nokkrum
stöðum annars staðar I heiminum
sem lax er, er laxinn verndaöur
innan landhelgieins og hérlendis.
Auk þess höfum við tilbúna um
200 millj. kr. stöð i tilraunir og
rannsóknir en aðrir sem ætla sér
að styðjast viö erlenda aðila
verða að leggja tugi milljóna i
þessar tilraunir og rannsóknir.
Hérlendis eru hundruð staða,
að minu áliti,” sagði Jón, „þar
sem hagbeit lax og annarra
ferskvatnsfiska er möguleg og ég
tel að við ættum fyrr en seinna að
dri'fa i þvi að notfæra okkur þá.
Mótmælastaða við
sovéska sendiráðið
Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, hefur sent blaöinu eftir-
farandi tilkynningu:
Mótmælastaða verður viö
sovéska sendiráðið i Garðastræti
kl. 14.00 fimmtudaginn 10. janúar
vegna innrásar Sovétrikjanna inn
I Afganistan og vegna landvinn-
ingastefnu þeirra siðustu árin. Að
henni standa Vaka, félag lýð-
ræðissinnaðra stúdenta, og félög
lýðræðissinnaðra framhalds-
skólanema á höfuðborgarsvæð-
inu.
Heimsfriðnum er ógnað með
þvi grímulausa ofbeldi, sem
ráðamenn i Sovétrikjunum beita.
Enginn getur lengur efast um
það, aö hætta stafi af þessum
stærstu alræðisrikjum heims.
Það er skylda lýöræöissinna að
þegja ekki við þessu freklega
broti á sjálfsákvöröunarrétti
smáþjóöar, heldur mótmæla þvi
harölega. Sovétrikin lögöu undir
sig alla Austur-Evrópu eftir
seinni heimsstyrjöldina, og sið-
ustu tvo áratugi hafa þau lagt
undir sig Kúbu, Laos, Vietnam,
Kampútseu, Eþiópiu, Angóla og
Mósambik, stofnaö þar alræöis-
riki og komið á sósialisma. Þau
réðust inn i Ungverjaland 1956,
Tékkóslóvakiu 1968 og nú inn i
Afganistan. Þetta sýnir, að lýð-
ræðissinnar verða að standa á
verði gegn óvinum lýöræöisins og
verjast þeirri hættu af fullri ein-
beitni, sem af þeim stafar.
Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta.
Arnesingamótið
19. janúar
Arnesingamótið 1980 verður hald-
ið i Félagsheimili Fóstbræðra,
laugardaginn 19. janúar n.k. og
hefst með boröhaldi kl. 19.
Heiðursgestur mótsins verður
Karólina Arnadóttir, fyrrum hús-
freyja á Böðmóðsstöðum I
Laugardal.
Ræðu kvöldsins flytur Ingólfur
Þorsteinsson, fyrrverandi for-
maður Arnesingafélagsins. Soffia
Guömundsdóttir sýngur einsöng
og fluttur veröur leikþáttur. Að
lokum verður dansað.
Arnesingafélagiö hélt aðalfund
22. nóvember. Helstu verkefni
félagsins á siðasta starfsári voru
auk hefðbundins skemmtana-
halds, stuðningur við útgáfu
Sýslu- og sóknalýsinga Arnessýlu
og söfnun áskrifenda aö bókinni
og auk þess var unnið að þvi að
reisa minnisvaröa um Ásgrim
Jónsson listmálara á fæðingar-
staðhansaö Rútsstaðasuðurkoti i
Flóa.
Félagiö á land á Ashildarmýri á
Skeiðum og er árlega farið þang-
að i' gróöursetningaferð. Formað-
Framhald á bls. 15
Lárós á Snæfellsnesi. Látravatnið er 165 ha. að stærð. Ósinn er fremst tii vinstri, þá lónið, stiflugarður
og vatnið. Jón Sveinsson er á innfelldu myndinni.
OTELJANDI MÖGULEIKAR
ELDHUSA
Vantar þig
eldhúsinnréttingu?
Hefur þú athugað að nú er hagkvæmasti timinn til að panta eldhúsinnréttingu.
Veröið lægst og kjörin best. Komið/ sjáið sýnishorn á staðnum. Látið teikna og gera
föst verðtilboð ykkur að kostnaðarlausu.
Athugið— Þegar pöntun er staðfest. stendur verðið. Raunhæf verðtrygging i verð-
bólgunni.
D
JjJA
Húsgagnavinnustofa.Smiöjuvegi 44 Kópavogi Sími 71100