Fréttablaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 2
 „Við erum að leggja okkar á vogarskálarnir til að skemmtistaðirnir verði öruggari,“ segir Bryndís Ísfold Hlöðvers- dóttir, fulltrúi í Mannréttinda- nefnd Reykjavíkur. Fulltrúar Samfylkingarinnar hafa lagt til að Mannréttinda- nefndin beini því til Stefáns Eiríks- sonar, lögreglustjóra höfuðborg- arsvæðisins, að láta skoða öryggi á salernum skemmtistaða vegna ítrekaðra nauðgana þar. Með til- lögunni fylgja umsagnir frá Neyð- armóttöku vegna nauðgana og frá Stígamótum. Samkvæmt upplýsingum frá Neyðarmóttöku vegna nauðgana var níu konum nauðgað eða þær beittar öðru kynferðislegu ofbeldi á skemmtistöðum í fyrra og sex konur það sem af er þessu ári. Langflest brotin séu framin á sal- ernum viðkomandi staða. Í sumum tilfellum hefur verið ruðst inn á konurnar og oft séu fleiri en einn gerandi. „Langoftast er um fullframdar nauðganir að ræða en einnig nauðgunartilraunir,“ segir Eyrún B. Jónsdóttir í umsögn Neyðar- móttökunnar. Eyrún leggur meðal annars til að öryggismyndavélar taki upp ferðir til og frá salernum og að upptökur úr þeim séu geymdar lengur en nú tíðkist með slíkar myndavélar. Aðskilja þurfi salerni kynjanna og ekki sé hleypt inn fleirum en einum í einu. Utan skemmtistaðanna þurfi að loka húsaskotum og -sundum þar sem hægt sé að vera óséður í skjóli myrkurs. „Við vonumst til að aukin örygg- isgæsla og meðvitund fólks um að gæta að gestum og hafa afskipti af ofurölvi gestum, karlkyns sem kvenkyns, geti komið í veg fyrir þessi brot,“ segir Eyrún. Í svipaðan streng er tekið í umsögn Guðrúnar Jónsdóttur og Ingibjargar Þórðardóttur hjá Stí- gamótum. Bryndís Ísfold segir tillöguna setta fram nú í ljósi breytinga á lögum um vínveitingaleyfi fyrir skemmtistaði og breytinga á öryggiskrðfum til slíkra staða. „Við erum ekki að leggja til að eitthvað sérstakt verði gert held- ur að öryggið verði skoðað. Það teljum við einfaldlega að sé mikil- vægt,“ segir hún. Afreiðslu tilög- unnar var frestað á síðasta fundi Mannréttindanefndarinnar en málið verður aftur á dagskrá í næstu viku. Myndavélar fletti ofan af nauðgurum á krám Lagt er til í mannréttindanefnd Reykjavíkur að beina því til lögreglustjóra að skoða öryggi á salernum skemmtistaða til að sporna við ítrekuðum nauðgun- um þar. Neyðarmóttaka vegna nauðgana vill myndavélar gegn nauðgurunum. Harður jarðskjálfti varð í gærmorgun skammt frá strönd Indónesíu og mældist 8,2 stig á Richter. Að minnsta kosti tíu manns týndu lífi og tugir særð- ust. Töluverðar skemmdir urðu á byggingum við vesturströnd Súm- ötru. Skjálftinn fannst í fjórum löndum og háhýsi svignuðu í allt að 2.000 kílómetra fjarlægð. Allt að þriggja metra há flóð- alda skall á Padang, höfuðstað vestanverðrar Súmötru, um það bil 20 mínútum eftir skjálftann. Á Indónesíu og í öðrum löndum við Indlandshaf var gefin út við- vörun um flóðahættu. Indónesía aflétti þó hættuástandinu hjá sér tveimur klukkustundum eftir skjálftann, þar sem ekki þótti lengur hætta á flóði. Á austur- strönd Afríku var varað við flóða- hættu, bæði í Keníu og Tansaníu. Nokkrir öflugir eftirskjálftar urðu í kjölfar þess stóra, þar á meðal einn sem mældist 6,6 stig og varð til þess að viðvörun um flóðahættu var á ný gefin út. Í desember árið 2004 fórust meira en 230 þúsund manns í tólf löndum af völdum flóðbylgju, sem fór af stað eftir að öflugur jarð- skjálfti varð við Súmötru. Hús skulfu í fjórum löndum Skrúfuþota frá SAS með 52 manns innanborðs rann út af flugbraut og annar vængur hennar skall í jörðina eftir að vélin þurfti að nauðlenda í Vilníus í Litháen í gær með bilaðan lendingarbúnaðinn hægra megin. Enginn slasaðist. Aðeins þremur dögum fyrr átti hliðstætt atvik sér stað á flugvellinum í Álaborg, þar sem sams konar flugvél, Q400, átti í hlut. Eftir slysið í í gær ákvað SAS að kyrrsetja allar slíkar vélar félagsins. Framleiðandinn, Bombardier í Kanada, mælti með því að allar Q400-vélar sem flogið hefði verið meira en 10.000 ferðir yrðu kyrrsettar og yfirfarnar. Q400-skrúfu- þotur kyrrsettar Bresk stjórnvöld staðfestu í gær að gin- og klaufaveiki hafi greinst á bóndabýli í Surrey, skammt frá London. Nautgripum á búinu var strax slátrað. Síðdegis í gær var ekki búið að greina hvaða afbrigði veirunnar olli smitinu. Smitið greindist hins vegar nálægt því svæði þar sem sama veiki greindist í byrjun ágúst og skammt frá tilraunastöð, sem það smit hefur verið rakið til. Breskir bændur lýstu strax yfir áhyggjum sínum af ástandinu og óttast að útflutningsbann verði lagt á bresk matvæli, eins og gert var í ágúst. Veikin skýtur aftur upp kolli Dr. Þorkell Helga- son, orkumálastjóri til ellefu ára, baðst í gær lausnar frá störfum af persónulegum ástæðum. Þorkell verður 65 ára á árinu og hyggst einbeita sér að verkefni sem honum hefur lengi verið hugleik- ið, kosninga- málum. Iðnaðarráð- herra hefur því veitt Þorkatli leyfi frá daglegum störfum frá og með 1. október en hann mun gegna embættinu fram að áramótum. Ragnheiður Inga Þórarins- dóttir aðstoðarorkumálastjóri hleypur í skarð Þorkels. Hættur sem orkumálastjóri Auðunn, varstu tekinn úr leik? Opinber heimsókn Geirs H. Haarde forsætisráð- herra til Írlands hófst í gær. Í heimsókninni ræðir Geir við starfsbróður sinn Bertei Ahern auk viðskipta- og dómsmálaráð- herra landsins. Þá mun hann hitta forsetann, Mary McAleese, að máli. Geir mun einnig heimsækja nokkur fyrirtæki á Írlandi sem eru í eigu Íslendinga og kynna sér starfsemi stefnumótunar- og ráðgjafarvettvangs írskra stjórnvalda á sviði viðskipta og vísinda. Heimsókninni lýkur á föstudag. Hittir forsetann starfsbróður og aðra ráðherra Umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra hafa skipað verk- efnisstjórn sem falið hefur verið að undirbúa rammaáætlun um verndun og nýtingu náttúrusvæða. Iðnaðarráðherra segir verkefn- isstjórninni hafa verið falið ólíkt hlutverk frá því sem áður var þar sem niðurstöður hennar verði að lokum lagðar fyrir Alþingi. Þá felst stjórnmálaleg stefnubreyting í því að áður var einvörðungu lögð áhersla á nýtingu en nú sé fjallað jafnt um nýtingu og verndun. Svanfríður Jónasdóttir, nýr for- maður verkefnisstjórnarinnar, mun leiða rammaáætlunina í pólit- ískan farveg og að lokum til umræðu á Alþingi. „Verkefnið hefur verið að þróast og kominn er inn nýr vinkill sem er umhverfið. Við erum alltaf að fá nýja sýn á það hvað skiptir máli í náttúru Íslands og mun verkefnisstjórnin taka mið af breyttum viðhorfum á hverjum tíma,“ segir Svanfríður. Hún bætir við að hún hafi bjargfasta trú á því að hægt sé að skapa sátt um málið. Verkefnisstjórninni er ætlað að skila skýrslu til umhverfisráð- herra og iðnaðarráðherra með heildarmati á virkjunarkostum fyrir 1. júlí 2009. Þá verða tíu ár liðin frá því að þáverandi iðnaðar- ráðherra skipaði sérstaka verkefn- isstjórn til þess að vinna að ramma- áætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.