Fréttablaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 74
Undankeppni EM F-riðill Íslenska landsliðið í knattspyrnu vann sinn fyrsta leik í rúmt ár í gær þegar Norður-Írar komu í heimsókn í Laugardalinn. Ísland hafði þá ekki unnið lands- leik síðan 2. september 2006 er Ísland sótti Norður-Íra heim til Belfast. Uppskeran í þessari tveggja leikja hrinu er fjögur stig og mikið mun betri frammistaða en í leikjum liðsins síðasta árið. Íslenska liðið mætti vel stemmt til leiksins. Sami ákafi og grimmd og var í leiknum gegn Spánverjum var augljóslega enn til staðar. Eyj- ólfur hafði breytt í 4-4-2 en spilaði 4-5-1 gegn Spánverjum og Ármann Smári Björnsson tók sæti Jóhann- esar Karls sem var í leikbanni. Íslenska liðið fékk sannkallaða óskabyrjun í leiknum en Ármann Smári kom Íslandi yfir með fyrstu sókn íslenska liðsins. Gunnar Heiðar komst þá óáreittur upp að endamörkum, renndi boltanum út í teiginn þar sem Ármann Smári var illa dekkaður og hann kláraði færið með stæl. Í stað þess að láta kné fylgja kviði færðist fullmikil ró yfir íslenska liðið eftir markið. Strák- arnir bökkuðu mjög aftarlega líkt og gegn Spánverjum. Sóknir Norð- ur-Íra voru frekar bitlausar og þeir sköpuðu sér aðeins eitt færi í hálfleiknum en Jonathan Evans fór illa að ráði sínu og skaut yfir fyrir opnu marki. Sóknarleikur íslenska liðsins var hvorki fugl né fiskur og það heyrði til tíðinda ef liðið náði þrem sendingum á milli sín. Vörnin hélt aftur á móti vel og Ísland leiddi í hálfleik. Íslenska liðið lá enn aftar á vell- inum í síðari hálfleik og pressa Íranna jókst stöðugt. Chris Brunt skaut í þverslá íslenska marksins á 50. mínútu og næstu 20 mínútur lá íslenska liðið í algerri nauðvörn. Írarnir réðu lögum og lofum en gekk illa að brjóta niður firna- sterka vörn íslenska liðsins. Á sama tíma stóð ekki steinn yfir steini í leik íslenska liðsins. Miðjumennirnir voru í stanslaus- um eltingarleik og sendingar strákanna voru átakanlega léleg- ar. Eitthvað hlaut undan að láta og á 71. mínútu braut Kári Árnason mjög klaufalega á David Healy. Sá írski þakkaði pent fyrir sig með því að skora úr vítinu og jafna leikinn. Ellefu mínútum fyrir leikslok fækkaði Eyjólfur í sókninni sem virtist vera skynsamleg ákvörðun þar sem Írarnir voru miklu betri. Stig úr því sem komið var hefði verið vel sloppið. Skömmu fyrir leikslok vann Ásgeir Gunnar Ásgeirsson bolt- ann af harðfylgi á hættulegum stað og gaf fyrir markið. Írar hreinsuðu en boltinn féll beint fyrir fætur Grétars Rafns sem sendi boltann aftur fyrir og Keith Gillespie skoraði hrikalega slysa- legt sjálfsmark. Írska heppnin var augljóslega búin með alla sína innistæðu en Íslendingar taka stigunum þrem fagnandi. Þegar upp er staðið getur liðið þakkað vörninni fyrir stigin því hún stóð vaktina frábærlega. Vörnin hefur verið hriplek undan- farið ár og það hefur verið helsti veikleiki liðsins. Þegar vörnin spilar aftur á móti eins og hún hefur gert í síðustu tveim leikjum getur íslenska liðið bitið frá sér. Varnarleikurinn er lykillinn að velgengni liðsins. Miðju- og sóknarleikur liðsins er að sama skapi nokkuð áhyggju- efni og þá sérstaklega miðjuspilið. Ísland saknaði Brynjars Björns og Jóhannesar Karls sárlega að þessu sinni. Liðið á þá inni í Letta-leikn- um en þar hljóta strákarnir að mæta fullir sjálfstrausts. Íslenska landsliðið í knattspyrnu vann sætan sigur á Norður-Írum í gær, 2-1. Þakka má varnarlínu lands- liðsins fyrir sigurinn en vörnin var gríðarlega sterk. Sigurmark Íslands var sjálfsmark undir lok leiksins. Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari var ekki í vafa um hvað skilaði íslenska liðinu sigrinum gegn Norður-Írum í gær. „Baráttan í liðinu var frá- bær. Ef við skoðum stöðuna í riðl- inum sér maður að við vorum að spila gegn liði sem var með mikið sjálfstraust og þeir léku leikinn af miklum krafti. En við stóð- umst pressuna frá þeim og ég er mjög ánægður með úrslitin. Ég er ánægður með varnarleikinn en við hefðum getað útfært sókn- irnar okkar aðeins betur.“ Eftir að íslenska liðið komst yfir tóku Norður-Írarnir öll völd í leiknum. Eyjólfur segir einfalt að útskýra það. „Lið, eins og íslenska landslið- ið, sem lent hefur í miklu mótlæti reynir allt sem það getur til að halda forystunni eftir að hafa komist yfir svo snemma í leikn- um. Það er alveg ljóst að við þurftum að styrkja miðjuna og þess vegna skipti ég Ólafi Inga inn á. Ég hefði kannski átt að skipta honum fyrr inn á.“ Hann þvertekur þó fyrir það að hann hafi ætlað að verja stigið með því að skipta út sóknarmanni fyrir miðjumann. Hermann Hreiðarsson, Emil Hallfreðsson og Ívar Ingimarsson voru allir búnir að vera veikir síðustu daga og segir Eyjólfur að það hafi haft sín áhrif á þeirra frammistöðu. Nigel Worthington, landsliðs- þjálfari Norður-Írlands, reyndi að leggja áherslu á jákvæðu punktana hjá sínum mönnum þrátt fyrir afar svekkjandi tap. „Svona er fótboltinn og maður fær alltaf það sem maður á skilið. Ég er þó ánægður með strákana, þeir bættu sig heilmikið frá síð- asta leik. Við spiluðum mjög vel en Íslendingar spiluðu alls ekki illa. Þeir fengu tvö tækifæri og nýttu þau. Við fengum 3-4 færi en refsuðum þeim ekki nóg.“ Ánægður með varnarleikinn „Ég vissi fyrir alvöru að ég væri í byrjunarliðinu þegar Eyjólfur tilkynnti það á fundi fyrir leikinn. Maður verður bara að vera klár í hvað sem er þegar maður veit ekkert. Það er frábært að skora mark fyrir Ísland,“ sagði Ármann Smári Björnsson, sem kom óvænt inn í byrjunarliðið gegn Norður-Írum og skoraði strax eftir sex mínútna leik. Ármann Smári kvartar ekkert yfir því að fara inn á völlinn annaðhvort sem framherji eða miðvörður. „Það er ágætt að hafa smá fjölbreytni í þessu en umfram allt er það frábært að fá að vera með þessum strákum og fá að spila fyrir Ísland,“ sagði Ármann Smári. Vissi ekki að ég fengi að byrja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.