Fréttablaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 6
flugfelag.is Netið Þú færð alltaf hagstæðasta verðið á www.flugfelag.is www.lyfja.is - Lifið heil ÍS L E N S K A S IA .I S L Y F 3 89 96 0 9. 20 07 Acidophilus Bifidus + FOS Mjólkursýrugerlar, góðir fyrir meltinguna. Champignon DETOX + FOS og Spirulina Hreinsaðu líkamann – eyðir óæskilegri lykt. Milk Thistle DETOX Hreinsaðu líkamann að innan. Psyllium Husk Fibre Rúmmálsaukandi, gott fyrir meltinguna. 30% afsláttur af Vega vítamínum „Viðbrögð lögreglumanna í þessu lögregluverkefni voru í einu og öllu í samræmi við hefðbundið verklag lögreglu undir slíkum kring- umstæðum,“ segir í athugasemd frá Ríkislögreglustjóra, vegna fréttar Vísis um kæru þriggja ungra manna á hendur lögreglu. Ríkislögreglustjóri neitar því ekki efnislega í athugasemdinni að lögreglan hafi miðað byssum á þrjá unga menn, sem voru í bíl á leiðinni frá verksmiðju Ora við Vesturvör í Kópavogi 23. júlí síðastliðinn. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins eru drengirnir 19 ára gaml- ir og hafa aldrei komist í kast við lögin áður. Þeir voru á leið út á myndbandaleigu þegar lögreglan stöðvaði bílinn. Þeir saka lögreglumennina um að hafa beitt óeðlilega miklu harðræði þegar þeir voru handteknir. Þeim hafi verið skellt umsvifalaust í jörð- ina og þeir handjárnaðir, meðan lög- reglan beindi byssum að þeim. Heimildir herma að þeir hafi mátt liggja í vegarkanti í um tíu mínútur í votviðri. Að því loknu hafi þeir verið færð- ir á lögreglustöð, þar sem leitað var á þeim. Þeir voru þá vistaðir í fanga- geymslu. Lögreglumennirnir báðu dreng- ina síðan afsökunar, þegar ljóst þótti að þeir væru alsaklausir. Ríkislögreglustjóri segir sér- sveitina hafa verið að bregðast við tilkynningu um skothvelli í nágrenninu. Tilkynningin hafi ekki átt við rök að styðjast og viðkom- andi einstaklingar hafi ekki tengst málinu. Lögreglu beri að haga viðbrögð- um sínum í samræmi við alvar- leika tilkynninga. Kristín Edwald er lögmaður ungu mannanna. Hún vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Hefðbundið að miða byssum á grunaða Þrír ungir menn hafa kært lögregluna og segja sérsveit Ríkislögreglustjóra hafa beitt óeðlilega miklu harðræði við tilefnislausa handtöku. Ríkislögreglustjóri segir viðbrögð sérsveitarinnar í fullkomnu samræmi við hefðbundið verklag. Viðræður eru á lokastigi um að bandaríski fjárfestinga- bankinn Goldman Sachs og Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöf- undur og framkvæmdastjóri hjá Time Warner, gangi til liðs við Geysi Green Energy. Þetta kemur fram í tilkynningu sem GGE sendi frá sér í gær. Samanlögð fjárfesting nýju hluthafanna mun jafngilda um 8,5 prósentum af hutafé GGE. „Við erum afar glöð yfir því að hafa komið á samstarfi við Geysi Green Energy. Endurnýjanleg orka á eftir að leika æ stærra hlutverk í orku- framleiðslu heimsins og á jarðvarmasviði eru miklir vaxtarmögu- leikar,“ er haft eftir Michael Feldman hjá Goldman Sachs í tilkynningunni. „Churchill sagði að það eina sem hann óttaðist í seinni heimstyrjöldinni hefðu verið kafbátar Þjóðverja,“ sagði Játvarður prins, hertogi af Kent við athöfn í Fossvogskirkjugarði í gær. Játvarður hóf þannig ræðu sína og minntist mikilvægis hersetu bandamanna á Íslandi í seinni heimsstyrjöldinni. Sigur í baráttunni um Atlantshafið hefði ráðið úrslitum í henni. Þakkaði hann Íslending- um sitt framlag. Hertoginn afhjúpaði síðan minnisvarða um flugmenn bandamanna sem dvöldu hér á landi á styrj- aldarárunum, en hertoginn er verndari Konunglega breska flughersins. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hélt einnig ræðu og rifjaði upp að koma erlendra her- manna í seinni heimsstyrjöldinni hefði verið mikil reynsla fyrir bláfátæka þjóð sjómanna og bænda. „Við erum ekki þjóð með hernaðarsögu og því er erfitt fyrir Íslendinga að skilja til fullnustu framlag hermanna bandamanna í seinna stríði,“ sagði hann og þakkaði hertoganum, og sérstaklega þeim fyrrver- andi hermönnum sem viðstaddir voru afhjúpunina, þetta framlag. Í hópi þeirra var Ralph Thomas Hannam, sem giftist íslenskri stúlku og býr hér enn. Einnig Terry Bulloch, sem var skæður á Liberator-sprengjuflug- vélinni á sínum tíma og grandaði fjölmörgum kafbátum. Ýmsir ráðamenn voru viðstaddir athöfn- ina, svo sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkis- ráðherra, Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri. Eina sem Churchill óttaðist Óttast þú hrun á hlutabréfa- markaði? Horfðirðu á leik Íslendinga og Norður-Íra í gærkvöldi?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.