Fréttablaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 44
 13. SEPTEMBER 2007 FIMMTUDAGUR12 fréttablaðið ísmót 2007 Snyrtimiðstöðin – Lancome, Kringlunni 7, Reykjavík. Laugar Spa snyrti- og nuddstofa, Sund- laugarvegi 30, Reykjavík Í fyrsta sinn á Íslandi var efnt til samkeppni meðal fyrirtækja innan Samtaka iðnaðarins þar sem keppt var um titilinn „Stofa árs- ins” í tiltekinni iðngrein. Keppnin var að þekktri erlendri fyrirmynd og var fyrirtækjum boðið að skila inn ákveðnum upp- lýsingum á skýrsluformi um reksturinn, ímynd þess, markaðs- setningu, samskipti, nýsköpun og framtíðarsýn. Að þessu sinni bárust alls 24 um- sóknir frá fyrirtækjum úr snyrti- iðn, hársnyrtiiðn og gullsmíði. Sérstakri dómnefnd var falið að meta innsend gögn en hún gat einnig óskað eftir frekari gögnum og/eða heimsótt fyrirtækin. Í hverri grein tilnefndi dómnefnd þrjú fyrirtæki til úrslita en þau voru sem hér segir: Tilnefning: Hársnyrtistofa ársins • Hárný, Nýbýlavegi 28, Kópavogi • Hársaga, Hótel Sögu og Austur- stræti, Reykjavík • Unique hár og spa, Borgartúni 29, Reykjavík Tilnefning: Snyrtistofa ársins • Laugar Spa snyrti- og nuddstofa, Sundlaugarvegi 30, Reykjavík • Snyrtimiðstöðin – Lancome, Kringlunni 7, Reykjavík • Snyrtistofan Ágústa, Hafnar- stræti 5, Reykjavík Tilnefning: Skartgripaverslun árs- ins • CARAT – Haukur gullsmiður, Smáralind, Kópavogi • Gull & Silfur, Laugavegi 52, Reykjavík • Gullkúnst Helgu, Laugavegi 13, Reykjavík Að lokinni vandlegri yfirferð komst dómnefnd að niðurstöðu um hvaða stofur sköruðu fram úr og skyldu hljóta þessa eftirsóttu viðurkenningu á Ísmóti 2007. Eru þær kynntar hér á næstu síðum með umsögn dómnefndar. Mikil eftirvænting ríkti meðal gesta á hátíðarkvöldinu þegar Sveinn Hannesson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins, kynnti úrslitin. Gull & Silfur, Laugavegi 52, Reykjavík. CARAT – Haukur gullsmiður, Smáralind, Kópavogi. Stofur ársins – í þremur iðngreinum Hársaga, Hótel Sögu og Austurstræti, Reykjavík. Hárný, Nýbýlavegi 28, Kópavogi. Dómnefnd valdi Unique hár og spa, Borgartúni 29 í Reykjavík, stofu ársins í flokki hársnyrti- stofa. Dómnefndin horfði þar einkum til spennandi og nútímalegar hönn- unar og stefnumótunar þar sem unnið er með vörur sem í dag eru háþróaðar og falla vel að óskum viðskiptavina sem eru meðvitaðir um umhverfi sitt og vellíðan. Stjórnendur stofunnar hafa skýra framtíðarsýn og markmið þar sem alþjóðlegt samstarf, straumar og stefnur, vega þungt. Gott skipulag er á mannauðs og gæðamálum, góð samskipti eru bæði innan fyrirtækisins sem og við viðskiptavini og notkun upp- lýsingatækni til fyrirmyndar. Markviss umhverfisstefna er til staðar, fagleg áhersla er lögð í stjórnun og rekstri. Unique hár og spa – hársnyrtistofa ársins Unique hár og spa er að Borgartúni 29 í Reykjavík. Unique hár og spa var valin hársnyrtistofa ársins. Meistarafélagið í hárgreiðslu tilnefnir Hársnyrtistofu árs- ins á Ísmóti 2007 til viðurkenn- ingar og verðlauna á alþjóð- legu verðlaunahátíðinni Global Salon Awards sem fram fer í Hollywood í júní á næsta ári. Hársnyrti- stofa ársins til Hollywood Dómnefnd telur stjórnendur stofunnar hafa skýra framtíðarsýn. Snyrtistofan Ágústa, Hafnarstræti 5, Reykjavík. Unique hár og spa, Borgartúni 29, Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.