Fréttablaðið - 23.09.2007, Síða 26
K
ína er að leggja undir
sig myndlistarheiminn:
hvert sem litið er til
stærri landa eru kín-
verskir listamenn að
hasla sér völl. Stórar og smáar
myndlistarsýningar eru í boði sem
kynna nýjar kynslóðir kínverskra
listamanna, bæði þeirra sem eru á
miðjum aldri og muna tímana
tvenna, og hinna sem eru um þrí-
tugt og búa við allt annan veru-
leika. Á sama tíma hefur það gerst
að alheimsmarkaðurinn í myndlist
hefur stækkað: uppboðshúsin evr-
ópsku hafa komið sér fyrir í Asíu
og stór uppboð eru haldin þar
eystra þar sem asísk myndlist er í
öndvegi og innfluttir málarar
vesturlanda lúta í lægra haldi
fyrir heimamönnum. Þeir koma
ekki bara frá Kína, öll Asía er að
eignast nöfn í myndlist sem menn
telja að verði áhrifamikil þar og
síðan um allan heim.
Gunnar Kvaran, safnstjóri á
Astrup Fernely-safninu í Osló, og
Hans Ulrich Obrist, sýningar-
stjóri Serpentine í London, hafa
um nokkurra ára skeið unnið að
undirbúningi á stórum sýningum
fyrir söfn sín. Fyrsti árangur
þessa samstarfs þeirra og Juliu
Peyton-Jones leit dagsins ljós í
fyrra með stórsýningum í Osló og
London: China Power Station Part
I lagði undir sig stóru gömlu orku-
stöðina í Battersea en hún er í
eigu kínverskra aðila og mun er
fram líða stundir hýsa kínverskt
verslunarhverfi í miðri London.
Fyrir tveimur vikum var China
Power Station Part II opnuð í Osló
og mun fara eftir tíma sinn þar til
London og síðar Lúxemborg.
Fyrsta hlutanum var beint að
myndbandalist, annar hlutinn
beinist einkum að innsetningum
og skúlptúrum. Verkin eru öll eftir
yngstu kynslóð kínverskra
myndlistarmanna, fólki um þrí-
tugt.
Gunnar Kvaran segir þá Hans
hafa beitt álíka vinnuaðferðum og
notaðar voru við undirbúning sýn-
ingar með bandarískri list sem
hingað kom í Listasafn Reykjavík-
ur í fyrra: safnað var stórum fæl
með listamönnum og síðan valið
úr. „Þá vorum við að velja úr tvö
þúsund nafna hópi, nú stóð valið
milli um fjögur hundruð nafna
lista,“ segir Gunnar.
Innkoma asískra listamanna á
myndlistarmarkað vesturálfu
hefur komið mönnum í opna
skjöldu, ekki aðeins vegna efnis-
taka, heldur ekki síður sökum þess
að áhugamenn um listir verða að
kynnast nýjum heimi, nýjum
nöfnum. Sumir safnarar hafa lýst
því sem vonlausu verki að koma
sér inn í kínverska samtímalist.
Þeir sem höfðu vit og tækifæri til
að sinna nýju áhugasviði og fjár-
magn til fjárfestinga í kínverskri
list á síðasta áratug eða jafnvel
fyrr uppskáru ríkulega. Vestrænir
kaupendur höfðu lítið sótt til Kína,
markaðurinn var óplægður, verðið
lágt og auðvelt að eignast verk
sem voru athyglisverð. Núna er sá
tími liðinn.
Gunnar segir kínverska mynd-
listarmenn vel menntaða og
kunnáttusama í tækni. Greinileg
séu kynslóðabil í viðfangsefnum
þeirra. Yngsta kynslóðin sem
leggur verk sín inn í China Power
Station hefur meiri áhuga á asískri
neyslumenningu en horfnum tíma.
Hún er í uppgjöri við samtímann
en ekki hið liðna. Það er horfið,
liðið. Japanskar teiknimyndasögur,
tölvuleikir, asískur auglýsingastíll
og popp vesturlanda heillar þá
kynslóð meira en hin forna saga
og þær pólitísku hræringar sem
hafa gengið yfir Kína á síðustu
öld: „Þetta eru börn millistéttar-
innar, menntaðir krakkar í leit að
identiteti. Þeir ferðast mikið og
fylgjast vel með tískunni.“
Staða ungra myndlistarmanna í
Kína er þessi sökum vinnu eldri
kynslóðarinnar; manna sem nú
standa á miðjum aldri. Á áttunda
áratugnum var mikil gróska í
kínversku samfélagi, frá borg til
borgar, landshlutanna á milli.
Kynslóðin sem þá steig fram hafði
búið við einangrun og var mörkuð
pólitískum bagga, rétt eins og fólk
var á Vesturlöndum eftir heims-
styrjöldina seinni og kalda stríðið
sem það braust gegn, fyrst með
abstrakt-expressjónisma og seinna
pop-listinni.
Menn þykjast greina tímamót í
afstöðu þessa hóps með blóðbað-
inu á Tiananmen-torginu og þeirr-
ar deiglu sem þar ólgaði þótt lok
væri lagt yfir með hervaldi. Marg-
ir listamenn af þeirri kynslóð
komu sér úr landi og hafa haldið
starfsstöðvar sínar í erlendum
heimsborgum síðan. Þeir rufu gat
á múrinn sem umlukti Kína fyrir
vestrænum augum með áleitnum
verkum, bæði í ljósmyndum og
málverki.
Nú eru börn þeirrar kynslóðar að
stíga fram og árangurinn má sjá í
sölum Astrup Fernsley. Og heima í
Kína eru menn teknir að líta til
baka: um síðustu helgi var í Sjang-
hæ sýningin „1981“ um hvað á gekk
það árið í listaheimi Kína. Þannig
Nafnið minnir á vél sem veltur stjórnlaust áfram. Nýlega var opnuð í Osló stórsýn-
ing, önnur í röðinni af fjórum, með kínverskri samtímalist ungra listamanna. Hún
kemur flestum á óvart. En hvenær hefur Kína ekki komið okkur á óvart?
Næsta vor verður stórsýning á
kínverskri myndlist í Listasafni
Akureyrar í tengslum við Lista-
hátíð. Hátíðin mun enn sækja út
fyrir höfuðborgarsvæðið og er
sýningarhaldið nyrðra hluti af
þeirri útþenslu hátíðahaldsins.
Sýningin sem Hannes Sigurðsson
safnstjóri hefur unnið að um
nokkuð langt skeið mun kallast
Facing China. Á henni er lögð
áhersla á að kynna íslenskum
áhugamönnum um myndlist og
öllum almenningi hvað er á seyði í
kínverska málverkinu en málarar
frá Kína hafa á síðustu árum vakið
gríðarlega athygli fyrir verk sín í
alþjóðasamfélagi listanna.
Á sýningunni verða verk eftir
níu kínverska myndlistarmenn af
millikynslóðinni svokölluðu og
kemur hluti málaranna hingað til
lands. Hannes segir að hann hafi
kunnað það ráð helst til að komast
í samband við strauma í kín-
verskri myndlist að fara þangað.
„Ég hef aldrei upplifað annað
eins,“ segir hann. „Þegar maður
kemur til Kína verður maður að
leggja öll sín viðmið til hliðar, þau
gilda ekki þar. Þar eru vinnustofur
listamanna stórar skemmur,
galleríin stærstu eru rekin af
fyrirtækjum eins og bygginga-
verktökum. Það ægir öllu saman í
myndlist þeirra. Margt finnst
manni bara drasl en annað er
hreint stórkostlegt. Ég vildi
forðast að setja saman sýningu
sem bæri vitni
einhverjum fram-
andleik,
exotisma. Á
endanum ákvað
ég að einbeita
mér að portrett-
Kínverska málverkið á Akureyri
MYNDLIST PÁLL BALDVIN BALDVINSSON SKRIFAR
Hannes Sigurðsson,
safnstjóri Lista-
safns Akureyrar.
Faðir og dóttir eftir
Zhang Xioagang, olía
á striga, 2006-2007,
120x150 cm.
MEÐ GÓÐFÚSLEGU LEYFI
LISTAMANNSINS OG LISTASAFNS
AKUREYRAR.
Bogmaður
krýpur, terra
cotta-leir, Qin-
tímabilið (221-
206 f. Kr.) Safn
leirstríðsmanna
og hesta Qin
Shihuang
keisara,
Lintong,
Shaanxi-héraði,
Kína.
MYND/BRITISH MUSEUM