Fréttablaðið - 10.10.2007, Page 18
Mótorsportklúbbur Íslands
rekur akstursbraut til að draga
úr hraðakstri og fækka umferð-
arslysum.
Umferðarslysum hefur fjölgað
hérlendis á síðustu árum og er það
meðal annars rakið til aukins
hraðaksturs. Meðlimir Mótorsport-
klúbbs Íslands ákváðu að leggja
sitt af mörkum til að sporna við
þessari þróun og stofnuðu því akst-
ursbraut við Krýsuvíkurveg þar
sem ökumenn geta fengið útrás
fyrir hraðaþörfina.
„Þetta er gamla rallíkross- og go-
kart brautin, sem er fjórum kíló-
metrum utan við Hafnarfjörð. Í
dag er brautin í raun tvær brautir.
Annars vegar 830 metra malbikuð
braut með fjórtán beygjum. Hins
vegar malar- og malbiksbraut sem
er rúmlega 1.000 metra löng.
Brautirnar reyna því á ólíka þætti í
aksturslagi.“
Þetta segir Halldór Jóhannsson,
einn þrímenninganna frá Mótor-
sportklúbbi Íslands sem standa á
bak við akstursbrautina. Þeir hafa
verið önnum kafnir í sumar við að
halda utan um starfsemina, sem
hefur verið í fullum gangi frá því í
ágúst á síðasta ári og eru 200 með-
limir þegar skráðir í félagið.
„Þarna geta krakkar á öllum
aldri komið og æft sig,“ útskýrir
Halldór. „Við erum með keilur og
alls kyns þrautir sem verður að
leysa á tilteknum tíma. Svo geta
menn bara keyrt hringinn til að
læra betur á bílinn. Við vonumst til
að betri ökukunnátta muni draga
úr bílslysum.“
Að sögn Halldórs fá menn meðal
annars að spreyta sig á keiluakstri,
þar sem byrjað er á einum stað,
keyrt hringinn í kringum tunnu,
lagt í stæði með keilum og þar
fram eftir götum. Fyrir þær sakir
reyni meira á ökuleikni en hraða
enda meðalhraðinn á brautinni
ekki nema á bilinu 60 til 70 km/klst.
vegna allra beygjanna.
„Svo er fyllstu öryggisráðstaf-
ana gætt,“ segir hann. „Menn mæta
með eigin hlífðarfatnað en það er
alltaf einn af okkur á svæðinu til að
fylgjast með.“
Eins og fyrr sagði hefur aðsókn-
in verið góð og þá sérstaklega í
sumar og stendur til að halda starf-
seminni áfram í vetur þótt eitthvað
verði dregið úr henni sökum veð-
urs.
„Við verðum með opið á sunnu-
dögum og svo er sérstakur kvenna-
dagur eftir hálfan mánuð. Við vilj-
um nefnilega að konurnar verði
duglegri að mæta. Karlarnir mega
alveg koma en þá í fylgd kvenna og
að því tilskildu að þær ætli að taka
í. Það verður sko ekki nóg að mæta
með mömmu sinni til að komast
inn.“
Útrás fyrir hraðaþörfina
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
FJAÐRIR OG GORMAR
Í FLESTAR GERÐIR
JEPPA
Japan/U.S.A.
Aukin ökuréttindi
Næsta námskeið byrjar 22. ágúst
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300
Meirapróf-
Nýlegir kennslubílar