Fréttablaðið - 10.10.2007, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 10.10.2007, Qupperneq 31
Hátískuhönnuðurinn Valentino Garavani kvaddi tísku- heiminn með sýningu sinni í París á dögunum. Hann tilkynnti í september að hann hygðist sleppa tökunum á tískuhúsinu sem ber nafn hans og snúa sér að öðrum verkefnum. Síðustu sýningu hans var því beðið með mikilli eftirvæntingu, og var það mál manna að honum hefði, eins og svo oft áður, tekist einkar vel upp. Að sjálfsögðu var eft- irlætislitur hönnuðarins, hárauður, með í för á pöllunum, en þar gaf að líta stórkostlega kjóla, hver öðrum fegurri. Leikarinn Mark Wahlberg er þegar búinn að æfa sig í eitt ár fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni The Fighter, þrátt fyrir að tökur hefjist ekki fyrr en eftir sex til átta mánuði. Wahlberg er um þessar mundir að taka upp myndina The Happening. Vaknar hann klukkan fjögur á hverjum morgni til að æfa sig áður en hann fer í tökur. The Fighter fjallar um ævi hnefaleikakapp- ans Mickey „Irish“ Ward og vill Wahlberg líta eins raunverulega út og mögulegt er í hlutverkinu. „Við hlaupum, við horfum á bardaga og síðan er ég með hnefaleikahring heima hjá mér,“ sagði Wahlberg, sem tekur hlutverkið greinilega mjög alvarlega. Stífar æf- ingar hjá Wahlberg

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.