Fréttablaðið - 07.11.2007, Blaðsíða 30
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Aðalvideoleigan við Klapparstíg fagn-
aði 25 ára afmæli sínu 20. september
síðastliðinn og að sögn Reynis Guð-
mundssonar, eiganda leigunnar, er
heilt afmælisár með ýmsum uppákom-
um fram undan. Reynir kom að hug-
myndavinnunni við stofnun leigunnar
á sínum tíma og keypti hana skömmu
síðar. Hann átti leiguna í tólf ár, seldi
hana en keypti hana svo aftur sex
árum síðar. „Ég keypti hana aftur af
ákveðinni hugsjón og til að henni yrði
einfaldlega ekki lokað,“ segir Reynir.
„Sonur minn vinnur hérna með mér
og auk þess franska leynivopnið okkar
hún Valerie. Hún vann hérna áður en
ég seldi og er nú komin aftur þannig að
það er eins og við höfum farið sex ár
aftur í tímann,“ segir hann og hlær.
„Leigan hefur verið rekin með þeim
formerkjum að hampa athyglisverð-
um myndum og leikstjórum og er
þetta mitt framlag til kvikmyndalist-
arinnar á Íslandi,“ segir Reynir. „Ég
leyfi mér að fullyrða að leigan hafi
haft gríðarleg áhrif á íslenska kvik-
myndagerð og kvikmyndaflóru enda
er varla til sá leikstjóri sem ekki hefur
meira og minna alist hérna upp. Við
viljum meina að á Aðalvideoleigunni
sé haldin kvikmyndahátíð á hverjum
degi og hafa kvikmyndahátíðanefnd-
ir komið hingað til að velja mynd-
ir á kvikmyndahátíðir.“ Reynir segir
að hann hafi alltaf lagt áherslu á for-
dómaleysi í vali á kvikmyndum og að
það geri leiguna svolítið sérstaka. „Við
höldum því til dæmis ekki fram að
franskar myndir séu betri en amerísk-
ar því það er til fullt af bæði góðum og
slæmum myndum frá báðum löndum.
Við erum með allt það nýjasta í bland
við sérvaldar kvikmyndir úr ýmsum
áttum. Við reynum þó að hampa
góðum myndum og halda þeim að fólki
en við eigum auðvitað vondar myndir
líka.“ Aðspurður hvort viðskiptavin-
ir leigunnar séu eingöngu miðbæjar-
fólk segir Reynir að kúnnahópurinn sé
gríðarlega breiður. „Ef ég ætti að búa
til einhvern einn samnefnara yfir við-
skiptavini leigunnar myndi ég segja að
þetta væri fólk sem í eðli sínu er fram-
takssamt og skapandi.“
Reynir segir fólk geta átt von á
ýmsum gjörningum á næstunni en
leigan er meðal annars þekkt fyrir
eftirtektarverðar gluggaútstillingar.
„Núna erum við til dæmis með nost-
algíuþema. Við erum með klukku sem
gengur afturábak og ísfólksbækur og
annað gamalt dót í kring.“ Reynir segir
að útstillingarnar hafi á árum áður oft
vakið athygli og valdið usla. „Einu
sinni lét ég vatn leka niður gluggann
og lét rúðuþurrku ganga fram og aftur.
Fyrir innan rúllaði svo myndin Water-
world á sjónvarpsskjá. Í kjölfarið fékk
ég lögguna tvisvar í heimsókn þar sem
fólk kvartaði yfir því að fá vatnsgusur
yfir sig. Ég sagðist vera tilbúinn til að
slökkva á vatninu ef ég fengi skriflega
sekt til að setja undir rúðuþurrkuna.
Lögreglumennirnir hlógu bara og létu
ekki sjá sig aftur,“ segir Reynir.
„Sá eini sem getur stjórnað því
hvernig áhrif aðrir hafa á þig ert
þú,“
Robinson fyrsti kvenforseti Írlands
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Svanhildur Maríasdóttir
áður til heimilis að Álfaskeiði 49,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin miðvikudaginn 7. nóvember klukkan
13.00 frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Halldór Elíasson.
Elín Helga 40 ára
Elín Helga
Steingrímsdóttir
er 40 ára í dag, 7. nóvember.
Hún tekur á móti ætting jum, vinum og
samstarfsfólki föstudaginn 9. nóvember nk.
klukkan 20, í félagsheimili Karlakórsins
Þrasta, Flatahrauni 21 í Hafnarfirði.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við
andlát og útför ástkærs sonar míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
Ottós H. Karlssonar
Eskivöllum 9b, Hafnarfirði.
Klara G. Þórðardóttir
Klara Jóhanna Ottósdóttir
Ólafur Þór Ottósson Helga Björg Sigurðardóttir
Aðalheiður Björk Ottósdóttir
Ása Hrund Ottósdóttir
Katrín Alexandra, Ottó Gauti og Birgitta Rún.
Elskulegur faðir okkar, bróðir og afi,
Hörður Hugi Jónsson
sem lést 1. nóvember sl. verður jarðsunginn
fimmtudaginn 8. nóvember kl. 13.00 frá Fríkirkjunni í
Reykjavík.
Jón Þór Harðarson
Ólafur Jóhann Harðarson
Anna Sigurbjörg Harðardóttir
Hugrún Harðardóttir
Elísabet Jónsdóttir
Birgir Jónsson
Lilja Jónsdóttir
Tómas Jónsson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
sambýliskona, amma og langamma,
Jónína Björnsdóttir
Bólstaðarhlíð 45, áður Bræðraborgarstíg
49,
sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut
fimmtudaginn 1. nóvember, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 12. nóvember
kl. 11.
Ólafía Ingvarsdóttir Matthías Matthíasson
Jón Ingvarsson Sigríður Guðjónsdóttir
Ingunn Ingvarsdóttir Sveinn Leósson
Jóhann Ingvarsson Stefanía Stefánsdóttir
Björn Ingvarsson Sigurbjörg Guðmundsdóttir
Kristrún Ingvarsdóttir Haraldur Haraldsson
Lára Ingvarsdóttir
Ingvar Ingvarsson Sigríður Guðmundsdóttir
Jóna Þuríður Ingvarsdóttir Bjarni Þór Jakobsson
Guðjón Ingvarsson
Steingrímur Pétursson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Anna Hatlemark
til heimilis að Nesbala 68, Seltjarnarnesi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 2. nóvem-
ber. Útförin fer fram í Neskirkju fimmtudaginn
8. nóvember kl. 15.
Ragnar Aðalsteinsson
Steinn Ragnarsson Laura Ortiz
Geir Ragnarsson
Ívar Ragnarsson
Margrét Ragnarsdóttir Sverrir Hreiðarsson
Sólveig Ragnarsdóttir Magnús Magnússon
Cécile Parcillié Guðmundur Kristjánsson
barnabörn og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Petrea Guðný Konráðsdóttir
ljósmóðir, Hjallalundi 13b, Akureyri,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann
29. október, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 9. nóvember kl. 13.30.
Helgi Tryggvason Janice Tryggvason
Guðlaug Inga Tryggvadóttir Valur Fannar Valsson
Svandís Tryggvadóttir Sigurjón Már Manfreðsson
Tryggvi Pétur Tryggvason
Ingveldur Tryggvadóttir Sigmundur Björnsson
og barnabörn.