Tíminn - 15.09.1981, Blaðsíða 3

Tíminn - 15.09.1981, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 15. september 1981 ii'ií'ií fréttir Nýr verðlagsgrundvöllur landbúnaðarvara HÆKKUNIN UM 7.6% ■ Aö mestu leyti er nú búiö aö ganga frá útreikningi á nýjum verölagsgrund velli land- búnaðarvara og reiknað meö að hækkunin nemi nálægt 7,6% frá 1. júnigrundvelli, aö þvier fram kom í samtali Timans viö Inga Tryggvason, formann Stéttar- sambands bænda i gær. Hinn nýi grundvöllur á siöan eftir aö hljóta staðfestingu rikis- stjórnarinnar, en taliö er liklegt að rikisstjórnin muni fjalla um nýja grundvöllinn á fundi sinum i dag. Sem kunnugt er hækkaöi verö á mjólkurvörum til bænda I byrjun mánaðarins um 7% til bráöabirgöa, þannig aö þær munu litiö hækka til viðbdtar viö gildistöku hins nýja grund- vallar. Þessi nýi grundvöUur er einnig aö sögn Inga geröur með vissum fyrirvörum um endur- skoðun fyrir 1. desember n.k. Tekið skal fram að hér hefur eingöngu veriðfjallaö um verö- hækkun til bænda. Hækkun á smásöluverði hefur ekki veriö reiknuö út ennþá. —HEI Nýmjólk Fjórir bílar í árekstri ® Fjórir bilar lentu i árekstri á Fjarðarheiði um hádegisbilið á laugardag. Fyrst rákust áaman tveir bilar innarlega á heiðinni og missti ökumaöur annars þeirra stjórn á bil sinum og fór útaf veg- inum. Skömmu seinna bar þar aö þriðja bilinn sem stöövaði til aö aöstoöa þann sem fór útaf viö aö komast upp á veginn aftur. A meöan sá þriðji var kyrrstæöur, kom sá fjóröi, stór ameriskur á mikilli ferö og keyrði aftan á hann. Höggiö var svo mikiö aö billinn kastaöist tvo og hálfan metra, viö það. Aö sögn lögreglunnar á Seyöis- firöi, var svartaþoka þegar árekstrarnir áttu sér staö. Þannig að varla sá úr augum. Engin slys urðu á fólki. En tveir bilannaskemmdustmikiö. —Sjó. Sænska krónan felld um 10% Frá fréttaritara Timans i Sviþjóð: Gylfa Krist- inssyni: ]A blaöamannafundi i gærmorg- un voru kynntar ráöstafanir sem sænska rikisstjórnin hyggst gripa til i efnahagsmálum. Helstu atriðiö tillagnanna er að gengi sænsku krónunnar veröur fellt nú þegar um 10%, til að bæta sam- keppnisaðstöðu sænsks Utflutn- ingsiðnaðar á erlendum mörk- uöum. Koma i veg fyrir aukiö at- vinnuleysi, en um 140 þús. Sviar ganga nú atvinnulausir. 1 þvi skyni aö draga úr verö- bólguáhrifum gengisfellingar- innarmun sænska stjórnin leggja fram frumvarp á sænska þinginu um lækkun söluskatts, Ur 23.46% i 20%. Gert er ráð fyrir að ef frum- varpiö nær fram að ganga, taki söluskattslækkunin gildi 1. nóvember nk. Auk þessa gerir rikisstjórnin þaö aö tillögu sinni aö veröstööv- un á vöru og þjónustu verði komiö á út þetta ár. Áðrar ráðstafanir sem rikisstjórnin'hefur á prjón- unum er aö skeröa kjör eftir- launafólks, og draga mjög veru- lega úr húsaleigustyrkjum til lág- launafólks, til að freista þess aö minnka hallann á rikisbú- skapnum. Samkvæmt nýjustu spám verður hallinn á sænska rikissjóðnum um 77 milljaröar sænskra kr. um næstu áramót. Viðbrögö stjórnarandstööunnar við þessum tillögum minnihluta- stjórnar Miðflokksins og Þjóöar- flokksins hafa verið heldur já- kvæö. T.d. sagöi Gösta Bohman formaöur Moderata Samhngs- partiet, aö tillögurnar gengju mjög i sömu átt og flokkur hans heföi lagttilfyrir löngu siöan. Aö visu heföi hann kosið aö lækka launaskatt i' staö gengis sænsku krónunnar, en úr þvi sem komið væri heföu ekki aörar leiöir veriö færar. Formaöur Social-demo- krata, Olaf Palme, lýsti yfir ánægju sinni með aö rikisstjórnin heföi loksins tekiö til hendinni og gert eitthvaö. Hins vegar var hann þeirrar skoöunar að efna- hagstillögurnar segöu meira en flest annaö um fjármálastjórn borgaraflokkanna sl. sex ár. Þess má geta að um helgina voru birtar niöurstöður skoöana- könnunar (SIFO) um fylgi stjórn- málaflokkanna hér í Sviþjóð í ágúst. Eru þær sem hér segir: Social-demokratar 51%. Moderatasamlingspartiet 26%, Miöflokkurinn 11%, Þjóöarflokk- urinn 6%, VPK 4,5%, aörir flokkar 1.5%. Samkvæmt þessum tölum hefur fylgi flokkanna litiö breyst frá þvi i júli. —Kás Hjörtur Eiríksson, framkvæmda* stjóri Iðnaðardeildar SÍS: „Verðum að fá hækkun á okkar vörum sem þessu nemur” l „Ég á erfitt með að svara nokkru þar um á þessari stundu”, sagði Hjörtur Eiríksson, f ra mk væ mdas tjóri Iðnaðardeildar Sam- bandsins, er hann var spurður hver áhrif 10% gengislækkun sænsku krónunnar komi til með að hafa á viðskipti Iðnaðardeildar við Svia. En þeir eru m.a. kaup- endur að mestum hluta af skinnavöru fram- leiðslu Iðnaðardeildar. Hjörtur sagöi aö skirmaviö- skiptum væri þannig háttaö, aö nýr samningur sé geröur eftir hverja haustslátrun. Nýir samn- ingar veröi þvi geröir i næsta mánuöi. ,,I annan staö tel ég aö viö munum halda þvi stift til streitu, aö viö fáum þá hækkun á okkar vörum sem gengisfell- ingunni nemur”, sagöi Hjörtur. —HEI Nýtt fíkniefnamál f Keflavík ■ Ungum manni úr Keflavik, var á laugardaginn, gert að sæta allt aö 10 daga gæsluvaröhaldi, vegna rannsóknar á nýju fikniefnamáli, sem fikniefnalögreglan i Kefla- vík, komst á snoðir um i fyrri viku. Öskar Þórmundsson, hjá fíkni- efnalögreglunni i Keflavik, sagöi aö rannsókn málsins væri nú á byrjunarstigi, og enn væri of snemmt aö segja nokkuö um umfang þess. Hann vildi ekki heldur segja hvaöa efni þaö væru sem gæsluvarðhaldsfanginn heföi veriö aö sýsla meö. —Sjó Wl 9 9 j—* SMIDJUVEGI 40 D SÍMI 74540 lolyuréthane og synthetic lökk á allar gerðir bifreiða. Vélalökk mikið úrval mPMwum Mjög fullkomin litablöndun 1-2 Komp. ACRYLIC-SYNTETISK lack, typ 417 Allt til bílalökkunar Grunnur sparsl og fleira ValentÍne Bílalökk

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.