Tíminn - 15.09.1981, Blaðsíða 11

Tíminn - 15.09.1981, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 15. september 1981 ALAUSI SEM SCARS-VERDLAUN ftir 34 ár • Harold Russell með Oscars-verðlaunin, sem hann hlaut fyrir 34 ár- um. frammistöðu hermannsins og bauð honum þvi næst hlutverk i kvikmynd, sem hann var þá með á prjónunum, og fjallaði um erfiðleika hermanns, sem kemur slasaður heim Ur striðinu. Harold Russell sló til, því hann sagðist hafa haft gaman af að leika i áróðursmyndinni, — svo hvers vegna ekki reyna? Hlaut 2 Oscara Myndin hét Bestu árin (Best Years of Our Lives) og nú sannaði Russell að hann gat leikið, þvi að hann fékk Oscars-verðlaun fyrir leik sinn. En það var ekki aðeins að Harold fengi þau verðlaun, heldur fékk hann annan Oscar fyrir „sérstakt afrek” (special achievement). En hann var fljót- ur að hverfa á braut úr stjörnu- ljómanum. Hann pakkaði niður verðlaununum og öörum eigum, og fluttist síðan með eiginkonu sinni — en þau voru þá nýgift — á brott frá Hollywood. Kvikmyndin Bestu árin hefur fengið viðurkenningu sem sigild kvikmynd. Arið 1977 valdi Ameri- can Film Institute hana sem eina af 50 bestu kvikmyndum sem gerðar hafa verið i Bandarikj- unum. Truman forseti fékk Harold verkefni Harry Truman forseti hélt veislu fyrir leikara og starfsfólk við gerð myndarinnar Bestu árin, og viö það tækifæri bað forsetinn hinn unga uppgjafahermann að taka að sér stjórn nefndar, sem átti að vinna að þvi aö aöstoða særöa hermenn og fatlaöa við að fá vinnu við sitt hæfi. Harold Russell tók þetta að sér og hefur æ síðan unnið aö þessum málum. A hverju ári hefur hann varið a.m.k. fjórum mánuöum i ferðir um Bandarikin til þess að stofna styrktarfélög fatlaðra og heimsækja klúbba og félög sem vinna aö þessum málefnum. Verkefnin eru ótæmandi Fyrirsex árum stofnaði Harold Russell nýtt fyrirtæki Harold Russell Associates i Waltham Mass. bað er ráðgjafa- og ráðn- ingafyrirtæki, sem æfir fatlað fólk til ýmissa starfa, og reynir siðan a6 útvega þvi vinnu. Harold hefur smátt og smátt minnkað ferðalög um landið til hinna dreifðu félagasamtaka og yngri menn tekið við. Harold missti konu sina fyrir 2 árum og býr nú einn i ibúö sinni, en fer oft að heimsækja böm sin og barnabörn. Hann ekur sjálfur bil til vinnu á hverjum degi og stundar ýmsar iþróttir, svo sem sund og köfun. Einnig segist hann hafa gaman af að spila billiard. Þegar Harold var 'spurður hvernig honum likaöi að vera farinn að leika aftur i kvikmynd- um, svaraði hann: ,,Á þessum 34 árum frá þvi aö Bestu árin voru kvikmynduð hef- ur mér ööru hverju boðist hlut- verk, en mér hefur ekki þótt þau neitt freistandi fyrir mig”, segir Harold, sem nú er orðinn 66 ára. ,,Ég hef þessi ár unnið með fótluðu fólki og mér þótti handrit- ið aö „Inside Moves” gera li'fs- kjörum fatlaðra góö skil, svo þess vegna tók ég þvi hlutverki. Ég var þó hálfsmeykur um að vera ekki fær um að leika aftur eftir svona langan tima — en þetta tókst mjög vel og næsta mynd er þegar i undirbúningi. Armars freistar Hollywood min ekki meðan verkefni i þágu fatlaðra eru eins aðkallandi og raun ber vitni. I Bandarikjunum t.d. eru á hverju ári um 15 þúsund manns, aöallega ungt fólk milli 18 og 29 ára, sem lamast vegna slysa og þarf aö vera i hjólastól i lengri eða skemmri tima. Það verður vist ekki verkefnaskortur i þeim málefnum i bráö”. (Þýtt BSl) ■ A ný á hvita tjaldinu 1 myndinni „Inside Moves”. Þarna eru þrír vinir saman: Einn i hjólastól, annar blindur, og sá þriðji handalaus, en þeir eru hressir þrátt fyrir fötlun sina. gróður og garðar Furusveppur (smjörsveppur). FURÐULEGUR MATARSVEPPUR! ■ H. september þrammaöi undirritaður Hringbrautina i Reykjavik og sá sérkennilega sveppaþyrpingu i götujaör- inum neðan við Gamla-Garð. Sveppurinn var á ýmsu þroskastigi, ungir einstakl- ingar egglaga eða keflislaga, en hinir eldri aflangir og allt að 25 cm háir, allir ljósir á lit með gráhvitum ull- eða hreisturkenndum hárdúskum. Ljóslitur stafurinn kom greinilega i ljós þegar ég tók svepp upp. Annar einstaklingur var hálfrifinn og stafurinn laus i honum likt og kólfur i klukku, en klukkan, þ.e. hatturinn orð- inn dökkur innan. (Sjá mynd). Þetta reyndist vera ullbleki 11, af deild blekhatta, 20 cm hár. Þykir góður matarsveppur ungur. En hvernigf fer meö aldrinum? Ég geymdi einn i hlýju herbergi og eftir tvo daga var hann að miklu leyti orðinn að blekkenndum vökva! Ungan ætan ullblekil skal matreiöa sem fyrst. Hann mun nýlegur i landinu, en vex þegar hér og hvar i grennd mannabústaða. óskað hefur verið eftir myndum af sveppunum sem fylgja barrtrjánum, og eruhér þvi birtar myndir af matar- sveppunum góðu, furusvepp og lerkisvepp, teknar úr út- lendum ritum, en islenskar myndir væru þakksamlega þegnar. Furusveppur, ööru nafni smjörsveppur er gulbrúnn, súkkulaðibrúnn, slímugur í rakviöri, en dökkrákóttur i þurrki. Stafurinn með kraga, gulleitur og deplóttur. Svepp- holdið ljósleitt, gult næst pip- unum (grópipunum, sem eru neðan á hattinum) og brúnt neðst á stafnum. Mildur á bragð og þefgóður. Barrnál- arnar á hattinum eiga aö sýna að sveppur þessi vex hjá tvi- nála furutegundum, svo sem fjallafuru, skógarfuru o.fl. Furusveppur þykir mjög góð- ur matarsveppur. Ef honum er safnað i rcku veðri er hentugt að losa strax af hon- ur). Lerkisveppur (gullsúlung- ■ Ullblekill 20 sm á hæð. Hringbraut i Keykjavik 31/8 1981. um slimuga hatthúöina. Lerkisveppur fylgir lerkinu og getur vel vaxið spölkorn frá trjánum. Hann er gulur, gull- gulur (eða gulbrúnn ungur), gijáandi, slimugur, einkum i votviðri. Undir slimugri hatt- húðinni, er sitrónugult, þurrt sveppholdiö. Stafurinn oftast meö húökenndum kraga. Gulleitar pipur neðan á hatt- inum. Þægilegur á lykt og bragð. Sprettur fremur snemma, en stundum lika fram á haust. Prýöilegur matarsveppur. Þessir sveppir, furu- og lerkisveppir, eru tiltölulega nýir borgarar i gróðurri'ki landsins, komu þegar farið varaðgróðursetja hér barrtré og fylgja þeim hvarvetna. Sjást i görðum ef ekki er si- slegið kringum trén. Ná hér góðum þroska. 4.september voru flestirull- blekingarnir á Hringbraut orðnir dökkir og „blekugir”, en einstaka ungur ljós ein- staklingur ennþá ætur. Ingólfur Davídsson, skrifar m

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.