Tíminn - 15.09.1981, Blaðsíða 17

Tíminn - 15.09.1981, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 15. september 1981 Var með 12 rétta fær tæpar 90 þús. krónur ■ Það var einn maður sem var með 12 leiki rétta i get- raununum nú um siðustu helgi, og auk þess var hann með 6 raöir af 11 réttum. • Fyrir 12 rétta hlýtur hann 76.745 krónur og 12.330 fyrir raðimar 6 af 11 réttum, þannig að hann fær i sinnhlut 89.075 krónur. Sá heppni er ekkert að auglýsa heppni sina, þvl hann vill eindregið að nafni hans verði haldið leyndu. —AB Hörku- spenn- andi hjólreiöa- keppni frá Hellu til Reykjavlkur ■ Hjólreiðakeppnin sem fram fór á sunnudag, þegar hjolað var frá Hellu til Reykjavikur þótti takast með afbrigðum vel og vera mjög spennandi. Þaðvoru 20 þátttakendur sem hófu keppni og 15 sem luku henni. tJrslit i karlaflokki urðu þau að Einar Jóhannsson (á- Colner) sem fór með sigur af hólmi. Timi hans reyndist vera 2 klukkustundir, 4 minútur 32 sekúndur. Guðmundur Baldursson (á- Kalkoff) var i ööru sæti á 2 klukkustundum 7 min. Helgi Geirharðsson var i þriðja sæti (á Peugot) á 2 kl. st. 11 min. og 11 sek. í sveinaflokki varð fyrstur Ólafur E. Jóhannsson (á Colner) á 2 kl.st. 18 min. 3 sek. í þriöja sæti varð Sigur- jón Halldórsson (á Colner) á 2 kl. st. 20 min. 54 sek. Keppnin var sem áður segir hörkuspennandi og það . var ekki fyrr en I Kömbunum sem skildi á milíi fyrstu manna. —AB Örnólfur með þrennu gegn Keflavík ■ Það voru þeir Oddssynir, Jón og örnólfur sem sáu um að skora mörkin fyrir l.B.l. gegn Keflavik þar suðurfrá nú um helgina. örnólfur skoraði þrennu og Jón eitt mark, þannig að Keflviking- ar sem höfðu leitt leikinn I hálfleik 2-0, máttu sætta sig við 4-2 tap. Isfirðingar voru að vonum kampakátir með sigurinn, sem þeir töldu enn stærri fyrir þá sök aö leikurinn fór fram i Keflavik. Þeir voru aö visu vel studdir af fjölmörg- um Isfirðingum sem mættir voru á áhorfendapallana og studdu sina menn óspart með köllum og hrópum. Jón Oddsson átti snilldar- góðan leik, skoraði sjálfur eittmarkoglagðiupp mörk- in fyrir bróður sinn. Þá áttu þeir örnólfur og Jóhann Torfason góðan leik einnig. — AB ■ Diörik ólafsson, fyrirliði Vfkings, harnpar hér bikarnum góða. Timamynd: Róbert. LOKSINS RÆTTIST MEIST- ARADRAUMUR VÍKINGANNA — Endurheimtu Islandsmeistaratitilinn í knattspyrnu í fyrsta sinn siðan árið 1924, er þeir lögðu KR-inga 2:0 ■ Meistaradraumur Vikinga varð loksins að veruleika á sunnudaginn, eftir að hafa látið standa á sér i ein 57 ár, en siðast urðu Vikingar islandsmeistarar I knattspyrnu árið 1924. Þá lögðu þeir KR-inga að velli á Laugar- dalsvellinum 2:0, og tryggðu sér þannig titiiinn. Fyrir leikinn voru það Framar- ar sem vermdu efsta sætið i 1. deildinni. Voru þeir þá jafnir Vik- ingum að stigum, en höfðu hins vegar betra markahlutfall. Vik- ingum nægöi þvi jafntefli til að hljóta efsta sætið. Ekki er hægt aö segja að veru- lega meistaratakta hafi gætt i leik Vikinga gegn KR á fyrstu minút- um leiksins. Það var fyrst og fremst taugaspenna sem réö rikj- um i leik þeirra. A sama tima voru KR-ingarnir hins vegar mjög sprækir. 'Attu þeir meira i leiknum til að byrja með, en tókst þó ekki að skapa sérf nein mark- tækifæri svo orð sé a gerandi. En taugaspennan einskorðaðist ekki við leikmenn Vikings, heldur náði langtút fyrir raðir þeirra, og gerði áþreifanlega vart viö sig meðal þeirra fjölmörgu Vik- ings-aðdáenda sem mættir voru til leiks, til að fylgjast meö sinum mönnum. Til að mynda sá undir- ritaður ekki betur en Hallur Simonarson (Iþróttafréttaritari Dagblaðsins) heföi drepið I einum þrem sigarettum áður en Vlking- ar (hans menn) komust I sókn, sem eitthvaö lét áf. Og var þó ekki langt liðið af leiknum, þegar sú sókn varð til. En vikjum aftur að leiknum. Fyrsta marktækifæriö sem eitt- hvað lét af varð á 20. min. fyrri hálfleiks. Þá bjargaði Sigurður Pétursson úr KR marki með skalla af marklínu, eftir að Ómar Torfason hafi skallað af marki eftir ágæta hornspyrnu frá Sverri Herbertssyni. A 27. min. tók Helgi Helgason aukaspyrnu rétt fyrir utan vita- teig KR-inga, eftir að Sverri Herbertssyni hafði verið brugðið þar. Skaut hann inn I teiginn á Gunnar Gunnarsson sem skaut knettinum aftur fyrir sig, en rétt framhjá. Á 33. min. á Sverrir Herberts- son siðan hörkuskot að marki KR, sem Stefáni markverði tókst rétt að verja. Missti hann knöttinn frá sér til Ómars Torfasonar sem reyndi markskot, en rétt fram- hjá. Enn reyndu Vikingar að skora á 41. mín. fyrri hálfleiks. Þá er það sem Sverrir Herbertsson kemst einn inn fyrir, á þvi sem nær auð- um sjó, en leikur ofnálægt Stefáni markverði, og lætur hann hirða knöttin frá sér, I þann mund sem hann er að láta skotiö rlöa af. Staðan i hálfleik var þvi 0:0. KR-ingar höfðu verið öllu spræk- ari I byrjun hans, en eftir þaö var nær einstefna á mark þeirra. Vik- ingar uppskáru hins vegar ekki árangur sem erfiði. Hefði heppnin veriö með þeim hefðu þeir átt að vera búnir að skora tvö mörk. Vikingar héldu uppteknum hætti I seinni hálfleik, þ.e. voru betri aðilinn I leiknum, nema nú loksins komust þeir á skotskóna. Aö visu voru KR-ingar mjög nærri þvi að skora á 7. min. seinni hálfleiks. Niu min. seinna er það Sverrir Herbertsson sem kemur til skjalanna sem fyrr, og skorar fallegt skallamark, eftir fyrirgjöf frá Lárusi Guðmundssyni. Staöan 1:0. Við jietta óx Vlkingum ás- megin. Tíu minútum seinna skor- uðu þeir sitt annað mark, og jafn- framt þaö siðasta i þessum leik. Þá er þaö sem Sverrir Herberts- son tekur aukaspyrnu rétt fyrir utan vitateig KR-inga og rennir knettinum til Lárusar félaga sins, sem skorar örugglega framhjá Stefáni markveröi. Staðan 2:0. Það voru þvi Sverrir og Lárus sem skipuðu markaskoraradúett- inn að þessu sinni. Eftir þetta sóttu Vikingar nær látlaust, en KR-ingar vörðust vel, og þvi fóru ekki fleiri mörk á markareikninginn umtalaöa. Fyrir bragöiö unnu Vlkingar Is- landsmótið, og KR-ingar héldust með naumindum uppi I deildinni. KR-ingar urðu jafnir Þórsurum að stigum, en þar sem þeir höfðu betra markahlutfall þá féllu þeir siðarnefndu ofani 2. deild. KR-ingar fljóta þvi fram I deild- inni á þeim fimm mörkum sem þeir höfðu umfram Þór. — Kás H0TEL1 VALHÖLL " CAS VOiUJR | UIDítUOHSSW&CQi OC CAS0L M Lárus Guðmundsson, skorar hér seinna mark Vikings, eftir góða sendingu frá Sverri Herbertssyni. Sjá {þr5ttjr á bls. 23

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.