Fréttablaðið - 05.10.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 05.10.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Varsjá Bologna Barcelona Alicante Reykjavík París Kýpur Berlín Akureyri Genf Friedrichshafen Kaupmannahöfn Kraká Billund Evrópa Ísland Eindhoven Frankfurt Hahn Basel Stokkhólmur Gautaborg Álaborg London www.icelandexpress.is F í t o n / S Í A Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum. Verð frá: 12.400 kr. 50% Börn: Börn, 11 ára og yngri í fylgd með fullorðnum, fá helmingsafslátt af verði fyrir skatta og aðrar greiðslur. Sumar 2009 með ánægju Sumarið 2009 bjóðum við flug til enn fleiri spennandi áfangastaða í Evrópu, eða alls 19 talsins. Það er því óhætt að fara að hlakka til næsta sumars – verum samferða! Bologna Barcelona Alicante Berlín Genf London Kýpur Stokkhólmur Gautaborg Álaborg Billund Kaupmannahöfn Eindhoven Varsjá Kraká Frankfurt Hahn Friedrichshafen París Basel Við erum byrjuð að plana næsta sumar Tveggja manna herbergi á kr. 5.000 nóttin Svefnpokapláss kr. 1.500 nóttin Gesthús Dúna Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Í dag er sunnudagurinn 5. október, 278. dagur ársins. Ég verð að játa það að ég varð hálfskelkuð og óttaslegin til að byrja með eins og gengur og gerist þegar einhver verður fyrir áföllum. En nú er bara uppi á mér typpið, kæri sáli. Þótt ótrúlegt megi virðast. ÞAÐ er nefnilega eins og ein- hver ljái mér æðri kraft þegar örlögin ota mér á hólminn með þeim orðum að nú sé að duga eða drepast. Þá verða hlutirnir spenn- andi. JÁ, sáli minn, spennandi því þá rennur upp sá tími að menn verða ekki dæmdir af skala hégómans því nú á að athuga úr hverju menn eru gerðir. Takmark stjórn- málamanna verður æðra en svo að ná því að ganga í augun á kjós- endum. FÓLK verður meðvitað um það að atburðarásin sem komin er af stað hverfur þeim aldrei úr minni. Hvert andartak verður dýrmætt. Hjartað tekur kipp þegar ég sé fólk ganga fram af vaskleika eins og Steingrímur rauði gerði í sinni opnunarræðu á þessu þingi. Eða þegar Þorgerður hin fagra segir fyrrverandi yfir- manni sínum að hafa sig hægan í stað þess að vera með upphlaup á túni sem tilheyri honum ekki lengur. Ég kætist og minnist þess að hæfni skipstjórans kemur í ljós í brælunni. ÉG er nefnilega ekkert venjuleg þjóð, kæri sáli. Þér væri hollt að minnast þess að þegar hér tíðk- uðust hin breiðu spjótin þá höfðu menn uppi spakmæli og jafnvel gamanyrði meðan ódauðleg sálin lak út um munnvikin. JÁ, sáli minn, ég sagði að það væri uppi á mér typpið enda hefur það aldrei verið tengt gengi krónunnar. Sem betur fer því ég veit satt að segja ekkert um það hver gengis vísitalan verður næstu misserin. Um hina nátt- úrulegu gengisvísitölu þykist ég þó vita nokkuð meira. Því víst er að manndóm hef ég mikinn, kapp hefur mig aldrei skort, gaman- semi á ég nóga en það er afar dýrmætt á tímum sem þessum. Svo hef ég blessunarlega mikið af náungakærleika og brjóstviti. ÁSTANDIÐ á mörkuðum er ein- mitt þannig nú um mundir að þessir mannkostir mínir eiga eftir að rjúka upp … og typpið með. Kæri sáli! 7.49 13.06 18.41 7.36 13.01 18.23

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.