Tíminn - 10.11.1983, Blaðsíða 4

Tíminn - 10.11.1983, Blaðsíða 4
Fræðsluráð lætur kanna loftræstingu Fjölbrautarskólans í Breiðholti: „EINS OG LOFTRÆSTIKERFID HERNA HAFI ALDREI VIRKAÐ’’ — segir Guðmundur Sveinsson, skólastjóri ■ „Sannleikurinn er sá að það á að heita svo að það sé mjög fullkomið loftræstikeifi hjá okkur í skólanum, en það er eins og það hafi aldrei virkað. Ég hef því óskað eftir því að þetta mál sé kannað og ég er mjög ánægður yfir því að Fræðsluráð skuli hafa brugðist svo skjótt við,“ sagði Guðmundur Sveinsson skólameistari Fjölbrautaskólans í Breið- holti í samtali við Blaðið í gær. Á síðasta fundi Fræðsluráðs lögðu dr. Bragi Jó- sepsson og Gerður Steinþórsdóttir fram tillögu að bókun um að heilbrigðiseftir- litið verði látið kanna loftræstingu og loftræstikerfi skólans þar sem talið sé að það sé mjög ófullnægjandi. Bókunin var samþykkt með 6 samhljóða atkvæðum, en Ragnar Júlíusson sat hjá. „Við vitum ekki hverjar ástæður eru fyrir þessu, en við höldum að það geti verið að þar sem skólinn er byggður í þrem áföngum, og þegar þessareiningar, tvær útálmur og aðalálman hafi komið saman þá hafi kerfið ekki verið stillt rétt. Þetta er þó aðeins ágiskun. Svo er annað að í ntörgum stofum er kennt mun fleiri nemendum en gert var ráð fyrir í upphafi, allt upp í 35-38 nemendur í stofum sem hugsaðar voru fyrir 25 nemendur. Hugsanlegt er að sá mikli hiti ■ Matthías Bjurnason, heilbrigðisráð- lierra, hefur mælt fyrir stjórnarfrum- varpi um tóbaksvarnir. Svavar Gestsson lagði þetta sama frumvarp fram á síðasta þingi, en það náði þá ekki fram að ganga. Markmið frumvarpsins er að draga úr tóbaksneyslu og þar með því heilsutjóni, sem hún veldur, og að vernda fólk fyrir áhrifum tóbaksneyslu. Hér er um að ræða lagabálk, sem allur miðar að því að draga úr tóbaksreyking- sem er oft í stofunum stafi að einhverju leyti af þessu, að það séu fleiri nemendur í stofunum en hollt má teljast. Við vildum hins vegar láta kanna um. Meðal ákvæða er að skipað verði tóbaksvarnaráð. Frumvarpið skiptist í marga kafla og er kveðið á um markmið tóbaksvarna, sölu og auglýsingar tóbaks, en tóbaks- auglýsingar eru algjörlega bannaðar, og sala takmörkuð á margan hátt, svo sem að tóbak megi ekki-selja unglingum undir ló ára aldri. Tóbaksnotkun á að takmarka mjög á opinberum stöðum og í almenningsfarartækjum, og reglubund- þetta mál, með tilliti til þess að þarna er oft kennt frá kl. 8 á morgnana til 11 á kvöldjn og við óskuðum eftir því að það yrði leitt í Ijós hvort hér sé einungis um in fræðsla um skaðsemi tóbaksreykinga á að fara fram. Sérstakur kafli er um eftirlit og viðurlög. Gert er ráð fyrir að lögin taki gildi 1. janúar 1986. Umræður urðu ekki miklar eftir fram- sögu, en þó komu fram efasemdir í neðri deild, þar sem frumvarpið var flutt, um að ýmis ákvæði þess gengu freklega á rétt einstaklingsins til sjálfstæðra at- hafna. -OÓ ímyndun okkar að ræða, eða hvort hægt sé að gera einhverjar úrbætur og ég lýsi ánægju minni yfir skjótum viðbrögðum Fræðsluráðs." JGK Verðbætur vegna óseldrar skreiðar ■ Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra hefur mælt fyrir stjórnar- frumvarpi um breytingu á lögum um verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins þar sem gert er ráð fyrir því að sjóðurinn fái heimild til að inna af hendi greiðslur upp í verðbætur vegna ógreidds skreið- arútflutnings og óseldrar skreiðar ár- anna 1981-82 og 83. Óvissa ríkir um söluverð þeirrar skreiðar sem enn liggur óseld í landinu, og erfitt er að áætla heildarbætur. Inneign skreiðarinnar er nú um 220 millj. kr. -OÓ Alþingi: MATTHÍAS MÆLIR FYRIR ARFLEIFÐ FRA SVAVARI segir höfundurinn í spjalli við Tímann ■ „EG hef lesið þetta leikrit upp á 'ýmsum stöðum i Suður-I'ýskalandi og í Hantborg líka, en það liefur ekki verið sett á svið áður, þetta er heimsfrumsýn- ing,“ sagði Jón Laxdal leikari og leik- skáld nieð meiru þegar blaðið spurði hann um nýtt leikrit eftir hann, „Ná- vígi,“ sem verður frumsýnt í Þjóð- leikhúsinu í kvöld. -Um livað fjallar þetta leikrit, Jón? „Já, ég hef sem stundum sagt að þetta sé um fólk sem sé skylt „Heimssöngvar- anum" í leikritinu eftir mig sem ég las í fyrra á þýsku á stóra sviðinu í Þjóð- leikhúsinu. söngvaranum sem syngur ekki. Þetta eru enn yangaveltur um listamannsdrauminn, um fólk sem er búið að velta lengi fyrir sér þessu vandamáli með frægðina, um verkkvíð- ann, hvort maður cigi nokkuðað vera að standa í því að búa til listaverk. Ég vona aðþaðsé í þessu húmörogírónía ísenn. Ég hef sagt að þetta eigi að vera minn óður til fólks scm ég þekkti í bernsku minni og æsku, sem gekk með bók í huganum, sem það skrifaði aldrei, fór jafnvel með í gröfina. Eða fólk sem var mcð mikinn draum um stór ferðalög um heiminn, en fór svo aldrei af því að teórían var bctri en ferðalögin. Og fólk sem var meðstórvirki í höfðinu. sem það ætlaði að leggja í og við vissunt öll um það. Við bárum samt geysilega virð- ingu fyrir þessu fólki og þótti v'ænt um það. Viö bárum kannske ekki síður virðingu fyrir þessum stórsnillingum og séníum, heldur en þeir sent voru í raun og veru aö búa til listaverk. í leikriti mínu er það kvikmyndagerð- arfólk, sem kentur viðsögu. Kvikmynda- framleiðandi nokkur er gestgjafi, það er Róbert Arnfinnsson sem leikur hann, og svo er kona hans, leikin af Guðrúnu Þ. Stephensen, með mjög sérkennilegan æviferil að baki, og ótrúlegan, sem hún segir frá og kemur mjög á óvart, hún er kona af gyðingaættum. Svo er vinur þeirra scm kcmur í heimsókn og er kvikmyndagerðarmaður, aðallega í auglýsingamyndum að vísu, en listaverk- um um leið og svo er rithöfundur sem einnig kentur í heintsókn og vill láta gera kvikmynd. Borgar Garðarsson leikur kvikmyndagerðarmanninn og Baldvin ■ Borgar Garðarsson, Guðrún Þ. Stcphcnsen og Róbert Arnfinnsson í hlutverkum sínum í Návígi. F.v. Róbert Arnfinnsson, Borgar Garðarsson og Baldvin Halldórsson. Halldórsson rithöfundinn. Leikritið er svo spunnið úr þessu og ég vona að bæði í gengum hegðun fólksins og sérstaka framkomu þess og orðafar kannist áheyrendur við það. Ég er líka að vona að þótt það megi hlægja mikið að þessu leikriti þá muni áhorfendum þykja jafn vænt um það og mér sem hef logið það upp og leikurunum mínum og meðleik- stjóra, Brynju Benediktsdóttur, en þessu fólki hefur líka farið að þykja afskaplega vænt um þessar persónur mínar, það hef ég fundið á æfingunum. Og það er náttúrlega unun að sjá hvernig þetta fæðist á 6 vikum fyrir framan mann og klæðist holdi og blóði. Það er unaðs- legt að taka eftir því hvernig þau taka þessu og bera mig eiginlega á höndum sér. Ég tala nú ekki um allt Þjóðleikhús- ið, ég hef fundið fyrir óskaplegum áhuga og hlýju og dugnaði í sambandi við vinnuna að leikritinu mínu. Svo að eins og þú heyrir, ég er bara að syngja lofsöng um það að vera kominn heim aftur undir slíkum kringumstæðum, sem höfundur og leikhúsmaður." - Gerist leikritiö hér á landi, eða gerist þaö hvergi eða kannski alls staöar? „Þetta er góð spurning. Vinur minn skáld og rithöfundur, kom á æfingu og þegar hann sá leikmyndina þá sagði hann;“ Gerist þetta hér heima Jón minn? og ég sagði, „ég veit það ekki nema svona íbúð, svona hulduíbúð sé einhvers staðar falin í þessari borg eða Tímamynd GE. þessu landi, þar sem hverir eru og hægt er að hafa mikinn vetrargarð, næstum eins og gróðurhús, eins og gerist nálægt mér þar sem ég bý við Rínarfljót, en ég held að ég sé ekki að negla það neitt niður hvar það gerist, það kemst kannski sérstaklega þannig til skila fyrir mig, en kveikjan að stykkinu er rammíslensk og þetta fólk er fætt út úr sjálfum mér og ég er íslendingur og rætur mínar eru hér, svo að þetta fólk hlýtur að vcra skylt því fólki sem á heima hér á eyjunni okkar.“ -Hver þýðir verkið, Jón? „Árni Bergmann ritstjóri og rithöf- undur. Hann hefur gert gott mál til að tala, leikhúsmál. Ekki eingöngu bók- menntalegan texta heldur leikhústexta." -Og leikmvndin? „Hún er eftir Björn Björnsson vin minn sem ég hafði kynnst áður og starfað með í tveim kvikmyndum, Brekkukotsannál og Paradísarheimt. Síðarn erum við með kornungt fólk, Hávar Sigurjónsson, sem sér um lýsing- una og Guðrúnu Sigríði Haraldsdóttur sem aðstoðar Björn við leikmyndina og gerir búninga. Síðan Birgir Engilberts sem sér um leikmunina og hefur mikið að gera í því. Hávar er nýkominn frá námi í Bretlandi og það er afskaplega gaman að fá að vinna með fólki sem er nýkomið til starfa og er að hefja feril sinn í leikhúsinu." -JGK Návígi eftir Jón Laxdal frumsýnt í Þjódleikhúsinu í kvöld: „ÞETTA ER VERK UM USTAMANNADRAUMINN”

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.