Tíminn - 10.11.1983, Side 12

Tíminn - 10.11.1983, Side 12
16 Mmt FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1983 Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjalddagi söluskatts fyrir október mánuð er 15. nóvember. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna rikissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytiö INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 Vélstjóri 1. vélstjóra vantar á 105 tonna línubát sem geröur er út frá Grundarfirði. Get útvegað íbúð ef þarf. Upplýsingar í síma 93-8629 eða 93-8839. Vélsleðar til sölu Artic Cat El-Tigre árg. 1982, sem nýr og Kawasaki Intrud, loftkældur með rafstarti. Góðir greiðsluskil- málar. Eyjólfur Ágústsson síma 96-21715 Akureyri Hænur og búr Vegna brottflutnings eru til sölu 1200 hænur og búr fyrir 1700 hænur. Upplýsingar í síma 93-3884. Utboð Tilboð óskast í lytjaþjónustu fyrir rikisspítala. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavik. Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri kl. T1:00 f.h. miövikudaginn 7. des. n.k. B.M.VAUÁ H Fáanlegar úr gjalli eða vikri F PANTANIR: Bíldshöfða 3, sími: 91-85833 og hjá Iðnverk h/f Nóatúni 17, 105 Rvk. Símar: 91-25930 og 91-25945 Anderlecht fékk Lens - Antwerpenbanana, Bayern fékk Tottenham ■ Bayern Múnchen frá Vestur Þýskalandi dróst gegn Tottenham Hotspur frá Englandi í 16 liða úrslitum UEFA-keppninnnar í kanttspyrnu. Anderlecht. liö Arn- órs Guðjohnsen í Belgíu dróst gcgn Lens, gamla liðinuhansTeits Þórðarsonar í Frakklandi, en Lens sló einmitt út Antwerpcn. Pestur Pétusson og félaga í síðustu umferö. Þegar dregið var í kcppn- ina varð einn albreskur leikur úr, Nottingham Forcst leikur viö Glasgow Celtic. Þessi iið drógust saman: Bayern Munchen V. Þýskalandi - Tottenham Hotspur Englandi, Nottingham Forest Englandi - Glasgow Celtie Skotland, Watford Englandi - Sparta Prag Tékkóslóvakíu, Anderlecht, Belgíu - Lens, Frakklandi, Spartak Moskva Sovétríkjunum - Sparta Rotterdam Hollandi, Radnicki Nis, Júgóslavíu - Hadjuk Split, Júgóslavíu, Austria Wien, Austurríki - Inter Mílanó, Ítalíu. Sturm, Grtt/. Austurríki - Lokomo Lcipzíg, A-Þýskalandi. -SÖE Lyftingarnar - Reykjavíkurmót fatlaðra í fullum gangi ■ Keppt verður í kvöld í lyfting- um á Reykjavíkurmóti fatlaðra í íþróttum. Lyftingakeppnin fer frani f Hátúni 12, oghefst klukkan 19.30. Keppni í sundi og borötennis er lokið á Reykjavíkurmótinu, en annað kvöld verður keppt i bog- ftmi í Laugardalshöil. Keppni þar hefst klukkan 15.00. Unt helgina verður keppt í Boccia í íþróttahúsi Breiðhojtsskóla, og verður keppt frá klukkan 10.00 báða dagana. Verðlaunaafltending fyrir Reykja- víkurmótið verður í Fáksheimilinu á sunnudagskvöld klukkan 21.00. -SÖE Stúdentar fá Grindvíkinga - í heimsókn i 1. deild í körfu í kvöld ■ Einn leikur er í kvöld á ís- landsntótinu i körfuknattleik, ÍS og Grindavík keppa í íþróttahúsi Kennaraháskólans klukkan 20.00. -SÖE Sigurður farinn til Þýskalands og leikur með Tennis Borussia Berlin ■ Sigurður Grétiirsson knatt- spyrnuiitaöu. ... .... ur farinn ti! '.v-'ir ‘»ýsl-;i!arJs. þar sem hiinn mun leika með áhuga- mannateiugiuu iénnis Borussia Berlin. Sigurður’fór út og skoðaði aðstæður hjá 'félaginu fyrir nokkru, og leist vel á. Hann mun ætla að leika með félaginu út keppnistímabilið. Sigurður hefur áður leikið i Þýskalandi, hann lék með Hamburg í 2. deild þar fyrir tvcimur árum. -SÖE / r„ Vonandi fáum 1 við stuðning” ■ „Ég vona bara að við fáunt mikinn og góðan stuðning frá áhorf- endum á laugardaginn, heimavöllur- inn og áhorfendur skipta sköpum í svona slag, það hef ég margreynt“, sagði Nedeíjko Vujinovic þjálfari KR í handboltanum um Evrópuleik KR-inga á laugardag, gegn HC Berc- hem frá Lúxemborg. „Ég hef aldrei tapað heimaleik i Evrópukeppni", sagði hann, „og ég vona að það fari ekki að gerast nú“. Nedeljko Vujinovic lék um árabil með júgóslavneska liðinu Banja Luka. Hann þjálfaði og St. Otmar frá Sviss, og hvorugt þessara liða tapaði heimaleik í Evrópukeppni meðan hann var með. Vujinovic er því vanur að fást við erfið verkefni, sem leik KR og Berchem, og vinnur hann nú úr upplýsingum, sem hann hefur aflað sér um Lúxemborgarlið- ið. Vujinovic hefur fengið vídeóupp- tökur af HC Berchem í Evrópukepp- ni, og rannsakar nú veika hlekki liðsins. Hann mun notfæra sér þær glufur sem hann teiur sig finna, bæði sem leikmaður og þjálfari, því Vujin- ovic leikur með KR-liðinu af fullum krafti. KR í Evrópuslaginn á laugardag: HC BERCHEM STERKT UÐ — Lúxemborgararnir slógu út hollensku meistarana ■ Á laugardaginn ieika KR-ingar fyrri leik sinn við HC Berchem frá Lúxemborg í 16 liða úrslitum Evropukeppni bikarhafa í h andknattleik. Þetta er annað árið í röð sem KR-ingar keppa í‘Evrópukeppni í handbolta. KR-ingar sátu hjá í fyrstu umferð keppninnar, en Berchem lék gegn hollensku bikarmcisturunum, og kom á óvart með því að sigra þá mjög örugglega. Handknattleikur er á mikilli uppleið í Lúxemborg, og svo er að sjá, að Lúxemborgarar láti töluvert fé renna til íþrúttarinnar, því HC Berchem hefur púlskan spilandi þjálfara, og að auki eru tveir pólskir leikmenn aðrir með liðinu. Þegar það fréttist, að KR-ingar hefðu dregist gegn liði frá Luxem- borg, var almennt talið, að þeir heföu fengið fría ferð í átta liða úrslit. En þegar upplýsingar um liðið HC Berchem bárust hingað, og ntyndbönd af leik þeirra gegn Holl- endingunum skoðuð, varð séð að hér eru ekki neinir aukvisar. Liðið sýnir glögglega þá framför sem átt hefur sér stað í handbolta í Lúxemborg síðustu ár, en hingað til hafa Lúx- emborgarar farið illa út úr Evrópu- keppnum. Þrir Pólverjar leika með HC Berchem. Þjálarinn Leszek Ganzka, horna- og línumaðurinn Stanislaw Jarzynski og markvörðurinn Macek Nowicki. Þá ræður liðið yfir góðum skyttum, og ber þar næst hinn örv- henta Paul Meyer. KR-liðið er ekki sama lið og í Evrópukeppninni í fyrra, þegar það velgdi stórliðinu Seljenznicar Nis frá Júgóslavíu un.diruggum. Fráfélaginu hafa horfið þeir bræður Alfreð og Gunnar Gíslasynir, Anders Dahl Ni- elsen, Stefán Halldórsson og Haukur Ottesen. I staðinn hafa komið hinn ungi og efnilegi Jakob Jónsson frá Akureyri, Nedeljko Vujinovic þjálf- ari og Björn Pétursson „Blöffi" hefur tekið fram skóna að nýju. Þá hafa komið inn upprennandi handknatt- leiksmenn úr KR. Sú blanda leik- manna sem nú skipar KR-liðið, ungir og gamlir, hefur staðið sig ótrúlega vel í vetur, og virðist Júgóslavinn Nedeljko Vujinovic þjálfari kunna vel til verka. Liðið hefur sterkum markvörðum á að skipa, þeim Jens Einarssyni og Gísla Felix Bjarnasyni, og landsliðsmennirnir Jóhannes Stef- ánsson og Haukur Geirmundsson eru skæðir. Þá hefur Guðmundur Albertsson, sem stóð sig svo vel síðastliðið vor í lokabaráttu íslands- mótsins, skilað sér ótrúlega. fyrir utan, þó stuttur sé. Það eru því allar líkur á, að leikur KR-inga á laugardag, fyrri leikur liðsins við HC Berchem, verði hörku- leikur, þar sem eigast við áþekk lið. Það er þó aðalatriði fyrir íslenskan handknattleik, að KR-ingar sigri Lúxembörgarmennina, því sá munur sem er á íslenskum og Lúxemborgar- handbolta er þó nokkur E kki nóg með að KR-ingar verði að vinna á laugardag, þeir verða að hafa nokkur mörk fram yfir, því útileikurinn, annan laugardag í Lúxemborg, er eftir. Þeir sem vilja sjá spennandi leik geta því farið nokkuð öruggir í Höllina á laugardag, leikurinn hefst klukkan 14.30. -SÖE ■ HC Berchem, mútherjar KR í Evrúpukeppni bikarhafa í handknattleik. Myndin var tekin af þeim, eftir að þeir unnu bikarinn síðastliðið vor. Stúrskyttan Paul Meyer er ystur frá vinstri í efri röð, og þjálfarinn Leszek Ganzka er þriðji frá vinstri í sömu röð. Markvörðurinn Nowicki er annar frá hægri í fremri röð, og við hlið hans er landi hans Stanislaw Jarzynski.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.