Tíminn - 10.11.1983, Page 6

Tíminn - 10.11.1983, Page 6
FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1983 „H/f FYLGIR VISS HÆTTA EF ÚICERD SIENDUR UIA” — rætt við Guðjón Arnar Kristjánsson, nýkjörinn forseta FFSÍ bandinu eru 14 aðildarfélög, sem öll hafa sjálfstæðan samnings- rétt, sem þau geta framvísað til heildarsamtakanna. Stundum semja félögin hvert fyrir sig, en stundum semja þau í samfloti, í heildarsamningum. Hagsmunir félaganna fara yfirleitt saman t.d. í öryggismálum og kjaramál- um“. ■ Guðjón Arnar Kristjánsson forseti Farmanna- og fiski- mannasambands íslands. ■ Á nýafstöðnu þingi Far- manna- og fiskimannasambands íslands var kjörinn nýr forseti Guðjón Arnar Kristjánsson. Við gerðum okkur ferð til þess að forvitnast um þingið og nýja forsetann. „Ég erfæddurá ísafirði 1944“, segir Guðjón aðspurður,„og hef búið þar alla tíð. Byrjaði sjó- mennsku 14-15 ára. Fór síðar í Stýrimannaskólann og hóf skips- stjórn 21 árs á 60 tonna línubát, Gunnhildi." - Nú ertu skipstjóri á Páli? „Já, í 11 ár hef ég verið skipstjóri á togaranum Páli Páls- syni sem gerður er út frá Hnífsdal. Sótti skipið 1973 og hef verið með það síðan. Jú, það hefur gengið mjög vel. Mikið aflaskip Páll Pálsson". - Hvað nú, ferðu í land? „Að hlut til verð ég að gera það. En það er óráðið að hve miklu leyti. Fer væntanlega í hálft starf hér“. - Reynsla í félagsmálum? „Ég hef verið formaður skip- stjóra og stýrimannafélagsins Bylgjunnar á lsafirði, og tekið þátt í félagsmálum, þannig að ég kem ekki alveg kaldur að þessu“. - Kom það þér á óvart að vera kosinn formaður? „Ekki endilega. En það kom mér á óvart að vera kosinn einróma. Bjóst satt að segja við því að fleiri byðu sig fram.“ - Hvað er Farmanna- og Fiski- mannasamband íslands? „Það eru hagsmunasamtök yfirmanna þ.e. skipstjóra, stýri- manna, vélstjóra, loftskeyta- manna og bryta, bæði á fiskiflot- anum, á farskipum og á skipum Landhelgisgæslunnar. í sam- DÆMDIR I UMFERÐARSKOLANN ■ Emma Samms með dökku augun og „hina fullkomnu húð“ (eins og förðunarsérfræðingamir segja) er köiluð í Hollywood „Hin nýja Elizabeth Taylor“ ■ Ef menn gerast brotlegir við umferðarlögin í borginni Sao Paulo í Brasilíu, þá er samkvæmt nýjum lögum, farið að dæma þá brotlegu til þess að sitja svo og svo marga tima i umferðarskóla barna. Pað sem unnið er við þetta er, að sögn yfirvalda, - að ökumenn læra þarna undir- stöðureglurnar í umferðinni, sem þeir hafa kannski alls ekki hirt um að læra áður, og þeim skilst betur sú ábyrgð sem þvi fylgir að vera akandi i umferðinni. Einnig læra þeir að setja sig i spor gangandi vegfarenda, - og þá ekki síst barna. Ef brotin eru mjög alvarleg, koma auvitað til greina önnur lagafyrirmæli og þyngri refsingar, - en umferðaryfirvöld vilja að sem flestir brotlegir ökumenn sáu dæmdir á skótabekkinn. Eins og sjá má eru þeir alvariegir á svip herramennirnir á skólabekk umferðar- skólanS. Þeir eiga að taka vel eftir og læra umferðarregl- urnar af börnunum, og svo þurfa þeir að standast prófið. ■ „Ég kem til Hollywood, af því þar eru allir peningarnir", sagöi Emma Samms viö blaða- menn, sem vildu fá að vita hvers vegna þessi fallega breska leik- kona heföi farið yfir hafið til að vinna sér frægð og frama, en hcfði ekki reynt meira fyrir sér í sínu heimalandi, þó allar dyr virtust standa he'nni opnar þar. Móðir Emmu var sóló-dansari við konunglega ballettinn í London áður en hún giftist, og Emma var sjálf í dansskóla og þótti efnileg ballettdansmær. Þegar hún var 16 ára meiddist hún í mjöðm á æfingu, svo að útséð var um að hún mætti æfa á næstunni. Þá fannst hinni ungu ■ Hinn ungi leikari John Stamos hefur stundum sést með Emmu á skemmtistöðum, en hún segir að „sá eini“ sé ungur læknir, sem lítið vilji vera í sviðsljósinu. ballerínu heimurinn hrynja yfir sig. Hún fór í skóla og hafði jafnvel í huga að fara í læknis- fræði, en hætti þar, en þá var hún farin að reyna fyrir sér í leiklistinni. Hún stundaði smá- vegis fyrirsætustörf, en sagði að sér hefði ekki líkað það að vera stillt upp eins og freistandi kjöt- bita í auglýsingu. Emnta átti ættingja í Kali- forníu og fór þangað í heimsókn, og úr því hún var komin á staðinn reyndi hún fyrir sér sem leikkona. Hún fékk strax smá- hlutverk og síðan lék hún aðal- hlutverk i tveim sjónvarpsmynd- uni. Þá kom stjórnandi sjón- varpsþáttanna „General Hospit- ■ Samleikarar Emmu í General Hospital eru mjög hrifnir af henni og hún segist hafa eignast vini og vinkonur þar. Hér er hún með Merri Lynn Ross, sem einnig leikur í þáttunum. al“ auga á þessa fallegu stúlku, og réði hana á stundinni. Þegar hún lék á móti Tony Geary í fyrsta sinn „flugu neistar um sviðið“, sögðu þeir sem fylgdust með. Emma sjálf viður- kennir, að það sé sérlega gott að leika á móti honum, hann hafi reynsluna og hafi kennt sér mikið, „svo er hann svo skemmtilegur og kemur mér til að hlæja“, sagði hún, „en við erum bara vinir... þið skiljið“. Emmu Samms er spáð bjartri framtíð sem leikkonu, og sumir segja að þarna sé „önnur Eliza- beth Taylor" að koma fram á hvíta tjaldinu! EMMA SAMMS ER KÖLLUÐ „HIN NÝJA EUZABETH TAYLOR"

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.