Tíminn - 16.12.1983, Blaðsíða 12

Tíminn - 16.12.1983, Blaðsíða 12
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983 13 12 HK-Grótta í Kópavogi ■ Leikur HK og Gróttu í annarri deild karla í handknattleik er klukkan 19.30 í kvöld í Digranesi í Kópavogi, en ekki á Seltjarnarnesi eins og stendur í mótaskrá HSÍ. Ástæöan er sú að fyrri leikur liðanna átti að vera í Kópavogi, en þá var Digranes ekki tilbúið svo heima- leikjum var snúið. Viðureignin í Kópavogi í kvöld hefur mikla þýðingu fyrir bæði liðin. Gróttá er nú í fjórða sæti annarrar deildar, en HK í fimmta. Grótta sigraði í fyrri leik liðanna. Ef HK-liðið, sem hefur sýnt miklar og örar framfarir í vetur, nær að sigra Gróttu í kvöld, á Kópavogsliðið góða möguleika á að komast í hóp fjögurra efstu liða, og berjast þar um fyrstu deildarsætin í úrslitakeppninni. Sigri hins vegar Grótta, eru Seltjarnarnesbúarnir komnir með annan fótinn í efri hluta úrslitanna í annarri deild. Aðrir leikir í handboltanum í kvöld er Reynir-Fram í annarri deild karla, í Sandgerði klukkan 20.00, og tveir leikir í 3. deild, Akranes-Ármann á Akranesi klukkan 20.30, og Afturelding-Ögri á Varmá klukkan 20.00. -SÖE Wales gerði jafntefli við Júgóslavíu ■ Wales og Júgóslavía gerðu jafntefli í fjórða riðli undankeppni EM landsliða í knattspyrnu í fyrrakvöld í Cardiff. Úrslit urðu 1-1. Robbie James skoraði fyrir Wales, en Bazdarewic jafnaði fyrir Júgóslavíu. Wales er nú efst í riðlinum, en kemst ekki áfram nema jafntefli verði í leik Júgóslava og Búlgara, sem er nú einn leikja eftir í þessum riðli. Wales kemst einnig áfram ef Búlgaría vinnur 1-0, en vinni Búlgarar stærra, eða ef Júgóslavar vinna, er Wales út úr myndinni. Öll þessi þrjú lið eiga möguleika. Staðan: Wales................ 6 2 3 1 7-6 7 Júgóslavía........... 5 2 2 1 9-9 6 Búlgaria............. 5 2 1 2 5-5 5 Noregur.............. 6 1 2 3 7-8 4 Urslrt í 6 landa keppninni: ■ í blaðinu í gær féllu út úrslit í lcikjum 6 landakeppninnar í handknattleik í Austur- Þýskalandi fyrstu tvo leikdagana. Þau urðu þessi: Island-Alsír .......................29-22 A.-Þýskaland A-A-Þýskaland B........27-22 Pólland-Tékkóslóvakía...............22-19 Pólland-Alsír ......................33-19 A-Þýskaland A-Island ...............26-14 Tékkóslóvakía-A-Þýskaland B ...... 35-22 Ártþing BTÍ ■ Ársþing Borðtennissambands íslands verð- ur haldið laugardaginn 18. desember klukkan 14.00 í félagsheimili Rafveitunnar við Elliðaár- vog. -SÖE ■ Það var vængbrotið lið íslendinga sem mætti Pólverjum í gær í Rostock í A-Þýskalandi, og útkoman eftir því. Pólverjar sigruðu 24-15, eftir að hafa haft yfir 10-6 í hálfleik. Með Atla Hilmarsson meiddan eftir leikinn við Alsír, Sigurð Sveinsson farinn til V- Þýskalands, og Kristján Arason meidd- an eftir leikinn við Austur-Þjóðverja, náði íslenska liðið sér lítt á strík. íslenska liðið barðist þó allan tímann, en með fremur dræmum árangri. „Sterk vöm Pólverjanna, góð markvarsla ásamt mikilli samæfingu gaf þeim stóran sigur, þessir karlar em mildu betri en við, enda um að ræða eina af bestu þjóðum heims ■ Guðni Guðnason KR-ingur skorar hjá Val, Tómas Holton kemur ekki vömum við. Þessi tveir era meðal Ijölmargra bráðefnilegra ungra leikmanna sem nú era að koma upp í körfuboltanum. ^ Tímamynd Róbert. _ ORUGG UÐSSTJORN FÆRM KR SIGURINN KR vann Val 62-60 í úrvalsdeildinni í gær ■ Það var öðru fremur frábær liðs- stjórn sem færði KR sigur gegn Val í gærkvöldi, 62-60, er liðin mættust í úrvalsdeidlinni í körfuknattleik í íþrótta- húsi Hagaskóla í gær. Með frábærum kafla í lok síðari hálfleiks komst KR yfir og náði ijögurra stiga forskoti. Þegar tvær og hálf mínúta voru eftir höfðu KR-ingar yflr 62-58, og með því að stjórna leiknum, hanga á boltanum og leika skynsamlega tóks þeim að koma í veg fyrír að Valsmenn skoruðu nema tvö stig það sem eftir var. KR-ingar byrjuðu með látum og kom- ust í 10-2. Valsmenn sneru dæminu við, og komust í 11-10, og höfðu yfir 15-12 og 17-14. KR-ingar komust yfir 22-19, en Valsmenn skoruðu næstu 8 stig, 27-22 og höfðu svo yfir 37-32 í hálfleik. f síðari hálfleik skoruðu Valsmenn tvær fyrstu körfurnar, 41-32, en KR lagaði í 39-41. Valsmenn höfðu yfir 48-41, en þá fóru KR-ingar að sækja á, 45-50, 48-53, og 52-54. Svo kom frábær kafli sem endaði 62-58. Eins og í upphafi var sagt var það liðsstjórnin sem gaf KR sigurinn. Jón Sigurðsson er frábær stjórnandi, bæði utan vallar og innan. Það sýnir líka góða breidd í KR-liðinu, að þegar besti kafli KR var í leiknum, var Jón fyrir utan, en Páll Kolbeinsson stjórnaði spilinu. Þar borgaði sig yfirvegaður leikur, þar sem spilað var upp á öruggt skot, og Ágúst Líndal og Geir Þorsteinsson brugðust ekki þar. Jón, Páll og Ágúst stóðu upp ,úr KR-liðinu, og Geir Þorsteinsson tók flest fráköst í síðari hálfleik. Hjá Val ríkti hálfgerð ringulreið þegar leið á, liðið virtist ekki þola mótlætið, og leik- stjórnin féll niður í ekki neitt. Kristján Ágústsson var langbesti maður liðsins, gefst aldrei upp, tekur fráköst og skorar. Stigin: KR: Jón Sig 16, Guðni 12, Páll 10, Ágúst 7, Geir 6, Garðar 4, Kristján 2 og Ólafur 1. Valur; Kristján 25, Jón Steingríms 16, Torfi 10, Tómas 5, Leifur 2 og Einar 2. Dómarar Gunnar Valgeirsson og Sig- urður Valur Halldórsson, dæmdu vel framan af, en misstu dálítið tökin í lokin. Mistök þeirra komu verr niður á KR ef eitthvað var. - SÖE í handknattleik“, sagði Fríðrík Guð- mundsson formaður Handknattleiks- sambands Islands eftir leikinn. Pólverjar höfðu frumkvæðið allan leikinn, komust í 4-2, 5-3, 7-4, og 10-6 í hálfleik. í síðari hálfleik tóku Pólverjar öll völd í byrjun, skoruðu þrjú fyrstu mörkin, 13-6. Þá klóraði íslenska liðið í bakkann, 10-13, fjögur mörk í röð, en svo kom „Slæmi kaflinn". Pólverjar komust í 17-11, og 22-13, og þar með var draumurinn um lítinn mun búinn, úrslitin 24-15. Páll Ólafsson var bestur íslendinga, skoraði 7 mörk í leiknum. Sigurður Gunnarsson kom og vel út, skoraði 4 mörk, Steinar Birgisson 3 og Þorbjörn Jensson 1. Jens Einarsson stóð í markinu mest allan tímann, og varði vel. Eins og sjá má af dreifingu markanna, skora hornamenn íslendinga ekkert í leiknum. „Vörn Pólverjanna leikur mjög framarlega, og mjög grimmt í hvern mann. Þetta réðum við ekki við“, sagði Friðrik Guðmundsson. Aðalskyttan pólverjanna Waskewic skoraði aðeins eitt mark í leiknum, og má segja að það ætlunarverk íslendinga í leiknum, að taka hann grimmt hafi eitt tekist markmiða. Hins vegar var gamli jaxlinn Zimzak í markinu íslendingum erfiður ljár í þúfu, varði vel. Zimzak er góður markvörður, sem ekki lætur á sjá þrátt fyrir aldurinn, hann er orðinn 36 ára. Á hann kölluðu Pólverjar nýverið, leikmann með mikla reynslu og í fullu fjöri, og er stefnan að sjá hjá Austur- blokkinni, að sögn Friðriks Guðmunds- sonar, að nota mikið gamla og reynda leikmenn. Önnur úrslrt: Alsír gerði jafntefli við B-lið Austur- Þjóðverja í gær, 25-25. Þá sigruðu Aust- ur-Þjóðverjar Tékka 20-18 í hörku- spennandi leik. Þegar 12 mínútur voru eftir var staðan 17-17. Þá hafði Hirner verið eins og berserkur í marki Tékk- anna, en Hofmann lítið sem ekkert í marki A-Þjóðverja, en hafði þó leikið allan leikinn. En nú var Hofmann skipt útaf, og Schmidt settur inn. Hann varði á heimsmælikvarða, lokaði markinu í 12 mínútur, og fékk ekki á sig mark fyrr en 12 sekúndum fyrir leikslok. Schmidt varði aílt, þar með talin vítaskot. -SÖE ■ íþróttamenn ársins 1983, eða fulltrúar þeirra með verðlaunin sem úthlutað var í gær: Frá vinstri: Sigurður Pétursson úr röðum fatlaðra, Gylfi Kristinsson golfmaður, Jón linndórsson glimumaður, Tómas Guðjónsson borðtennismaður, Lárentsínus H. Agústsson blakmaður, Sigurður Jónsson knattspyrnumaður, eiginkona Krístjáns Ágústssonar körfuboltamanns, Baldur Borgþórsson lyftingamaður, Jóhannes Öra Ævarsson siglingamaður, Krístín Magnúsdóttir badmintonmaður, Bjarai Friðríksson júdómaður, Berglind Pétursdóttiur eiginkona Jónasar Tryggvasonar fimleikamanns með son þeirra á handleggnum, Brynjar Kvaran handknattleiksmaður, Carl J. Eiríksson skotmaður, Tryggvi Helgason sundmaður og Hreggviður Jónsson formaður Skíðasambands íslands með verðlaun Nönnu Leifsdóttur. Örn Eiðsson formaður Frjálsíþróttasambands íslands tók við verðlaunum Einars Vilhjálmssonar, og er ekki á myndinni. Tímamynd Róbert HGITMIENN ARSINS 1983 — í hverri íþróttagrein heiðraðir f gær á Hótel Loftleiðum ■ I gær voru heiðraðir af íþróttasam- bandi íslands og Frjálsu framtaki hf. íþróttamenn ársins í hverrí íþróttagrein, valdir af sérsamböndunum sjálfum. Var þetta gert í veglegu hófi á Hótel Loft- leiðum. Sveinn Björnsson forseti ÍSÍ setti samkomuna, og ávarpaði gesti. Síðan kynnti Björa Vilmundarson skrifstofu- stjórí ISI hvem íþróttamann, og Magnús Hreggviðsson forstjóri Frjáls framtaks afhenti silfurbikar hverjum íþrótta- manni, eða fulltrúa þeirra. Eftirfarandi íþróttamenn voru heiðr- Handknattleiksmaður ársins: Bjarai Ásgeir Fríðríksson Árm., aðir í gær: Brynjar Kvaran Stjömunni, íþróttamaður fatlaðra 1983: Knattspyrnumaður ársins: Sigurður Jónsson í A, Badmintonmaður ársins: Sigurður Pétursson Ösp, Borðtennismaður ársins: Krístín Magnúsdóttir TBR, Frjálsíþróttamaður ársins: Tómas Guðjónsson KR, Skíðamaður ársins: Einar VOhjálmsson UMSB, Siglingamaður ársins: Nanna Leifsdóttir Akureyri, Körfuknattleiksmaður ársins: Jóhannes Öra Ævarsson Ymi, Lyftingamaður ársins: Kristján Ágústsson Val, Sundmaður ársins: Baldur Borgþórsson KR, Skotmaður ársins: Tryggvi Helgason Selfossi. Blakmaður ársins: Carl J. Eiríksson Skotfél. Rvík. - Nánar verður fjallað um útnefning- Lárentsínus H. Ágústsson Þrótti, Glímumaður ársins: una í blaðinu á morgun. Fimleikamaður ársins: 'Jón Unndórsson KR, -SÖE Jónas Tryggvason Ármanni, Júdómaður ársins: ■ Staðan er nú þessi í úrvalsdeildinni í körfuknattleik: KR-Valur ....................62-60 Njarðvík-Haukar..............76-64 Njarðvík....... 10 7 3 789-741 14 KR ............. 10 7 3 723-689 14 Valur........... 10 5 5 816-753 10 Haukar......... 10 5 5 707-727 10 ÍBK.............. 9 4 5 610-684 8 ÍR............... 9 1 8 664-715 2 NIAREHIÍK TÚK SPRETT í síðari hálfleik og vann Hauka 76-64 ■ Njarðvíkingar hleyptu á mikinn sprett í síðarí hálfleik í leik þeirra við Hauka í úrvalsdeUdinni í körfu í Njarð- vik í gærkvöld, og náðu 17 stiga forskoti, Fram vann í tvískiptum leik 70-63 ■ Leik toppliðanna í 1. deildinni í körfuknattleik, Fram og ÍS lauk með sigri Fram 70-63, eftir að staðan í hálfleik var 46-19 Fram í hag. Framarar hófu leikinn af miklum krafti og baráttu og kafsigldu Stúdenta eins og staðan í hálfleik ber með sér. í upphafi síðari hálfleiks vöknuðu leik- menn ÍS til lífsins og hófu að pressa mjög stíft á Framara. Við það urðu algjör þáttaskil í leiknum og Stúdentum tókst að vinna hinn mikla mun nokkuð upp, þegar um 6 mínútur voru til leiksloka var aðeins fjögurra stiga munur 56-52. Fram- arar voru hinsvegar sterkari á enda- sprettinum og sigruðu eins og áður segir 70-63. Dómarar í þessum leik voru þeir Kristinn Albertsson og Guðni Ölvers- son, þeir leyfðu allt of mikla hörku sérstaklega í fyrri hálfleik en í þeim síðari vöknuðu þeir af Þyrnirósarsvefn- inum og dæmdu þokkalega. Stigahæstir hjá Fram: Lárus 17, Guð- brandur 14, Guðmundur 14 og Þorvald- ur 10. Hjá ÍS: Guðmundur 19, Kristinn 17 og Björn 10. -BL. eftir jafnan leik. Haukum tókst ekki að ráða við þetta forskot, og Njarðvíkingar sigraðu með 12 stiga mun, 76-64. - „Astæðan fyrir ósigrinum er einföld, við höfum sigrað í fjórum leikjum í röð, og ákafinn var ekki nógu mikill til að vinna þennan líka“? sagði Einar Bollason þjálfari Hauka eftir leikinn. „Betra liðið vann, og ég er í sjálfu sér ekkert óánægður með þetta, það hefur hingað til ekki þótt skömm að tapa fyrir Njarð- vík í „Ljónagryfjunni", bætti Einar við. . „Okkur tókst að ná upp góðum leik í síðari hálfleik, Haukarair börðust ekki eins og í leikjum undanfaríð, og það skapaði sigur okkar. En Haukarnir eiga eftir að vera skæðir í vetur“, sagði Valur Ingimundarson Njarðvíkingur eftir leik- inn. • Það var eins og Valur sagði, eftir mjög jafnan og spennandi fyrri hálfleik, þar sem Haukar höfðu undirtökin framan af, Njarðvíkingar jöfnuðu, og Haukar höfðu yfir 32-31 í háifleik, tóku Njarð- víkingar leikinn í sínar hendur. ísak Tómasson fór hamförum á vellinum og Haukar rétt höfðu að halda í við ísak og félaga hans. Njarðvíkingar höfðu yfir 41-38, og 57-54, en þá hættu Haukar að fylgja og skoruðu ekki í 6 mínútur. Njarðvíkingar gerðu það hins vegar grimmt á meðan, og staðan varð 71-54. Þrátt fyrir góðan kafla Pálmars Sigurðs- sonar í lokin, minnkaði munurinn ekki nema í 12 stig. Sturla Örlygsson og ísak Tómasson voru bestu menn Njarðvíkinga að þessu sinni, Valur og Gunnar traustir. Pálmar Sigurðsson var yfirburðarmaður í Haukaliðinu, og Reynir Kristjánsson var góður. Stigin: LIMFN: Sturla 19, ísak 16, Valur 16, Gunnar 11, Kristinn 6, Ingimar 5, Júlíus 3. Haukar: Pálmar 27, Reynir 16, Kristinn 10, Hálfdán 4, Eyþór 4, Sveinn 2, Ólafur 1. Leikinn dæmdu Davíð Sveinsson og Gunnar Guðmundsson. 1 -Tóp/SÖE Jólagjöfin i ár er CLAIROL líkamsnuddtæki Fjórir nuddpúóar fylgja. Clairol nuddtækið er heilsuræktartæki, sem allir þurfa að hafa við höndina. Nuddið mýkir vöövana og endurnærir, þannig að þreytuverkir hverfa fyrir vellíðan. Jólatilboð kr. 1.200,- Skipholti 19 sími 29800 iþróttir Keflavík-ÍR í úrvalsdeildinni í kvöld: ■ í kvöld er einn leikur í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, ÍR-ingar sækja Keflvíkinga heim í Keflavík, og hefst leikurinn klukkan 20.00. Þarna fara tvö neðstu lið úrvalsdeildar- innar, og kominn tími á ÍR-inga að fara að vinna leik. ÍR hefur 2 stig í neðsta sæti deildarinnar, en Keflvíkingar hafa 8 stig f næst neðsta sæti. Það verður því áreiðanlega barist til þrautar í kvöld. Það sem styður við bakið á ÍR-ingum helst í kvöld er það, hversu slökum árangri Keflavíkurliðið hefur náð á heimavelli sínum í ár, þrátt fyrir aukna velgengni í síðustu leikjum í deildinni. Aðrir leikir í körfuboltanum í kvöld eru: ÍA-Snæfell á Akranesi klukkan 20.00 í annarri deild karla, Keflavík-ÍR í 2. flokki pilta í Keflavík klukkan 21.30, og Breiðablik-Valur í 1. flokki karla í Digranesi að h'kindum klukkan 20.45. -SÖE VÆNGBROTHI UÐ fSLENDINGA U FYRIR PÖLVERIUM Pólverjar unnu stórt, 24-15

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.