Tíminn - 08.06.1986, Qupperneq 12

Tíminn - 08.06.1986, Qupperneq 12
12 Tíminn Sunnudagur 8. júní 1986 Loftvarnabyssum er komið fyrir umhverfis kjarnavinnustöðvar Pakistana í Kahuta og Pinstech, því Zia ul-Haq óttast sprengjuárásir Indverja. PAKISTANIR ÞRÆÐA SKUGGA- STIGU KJARNA- YOPNANNA „Bomban“ gæti verið tilbúin á næsta ári Enginn gat betur séð en aö hann væri hversdagslegur, enskur kaupsýslumaður. Þetta var Ian Shaw frá London, forstjóri í litlu fyrirtæki sem heitir Lizrose Ltd. Honum skaut upp í Bonn, þar sem hann ræddi við rekstrarstjóra flutningafyrirtækisins Global International, um flutning á stáli. Stál þetta var framleitt af Arbed í Völklingen og var í geymslum hj á kaupmönnum í Kiel. Margir vestrænir kaupsýslu- menn hafa staðið að því að útvega hátæknibúnað til smíði kjarnasprengju og er einn þeirra Hollendingurinn Henk Slebos. Samt var hér um óvenjulega verslunarferð að ræða, þennan júlídag 1985. Ian Shaw er nefni- leg af pakistönskum ættum og heitir í verunni Inam Ullah Shah. Þótt Lizrose versli raunar með stál og teppi, þá er það um leið milligönguaðili fyrir kjarna- vopnaáform Pakistana. Arbed- stálið er líka „heitur“ varningur því þetta er gífurlega hart stál, sem bannað er að flytja út. Þær tvær stengur sem um var að ræða og vógu 880 kíló áttu að fara til Pakistan fram hjá tolli, en ekki til London. í Pakistan skyldi stofnunin „Technical Equipment" veita þeim viðtöku, en þetta er felunafn á sprengju- smíðastarfsemi Pakistana. Eftir að Indverjar, erkiféndur Pakistana, sprengdu tilrauna- sprengju neðanjarðar 18. maí 1974, hófst stjórnin í Islamabad þegar handa um sprengjusmíði. Hvorki Indverjar né Pakistanar hafa til þessa undirritað samning

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.