Tíminn - 03.06.1987, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 3. júní 1987
Þröstur Ólafsson, frkvstj. Dagsbrúnar um ályktun VMSÍ:
Engar vísbendingar til:
Deildaskipting
fyrsta skrefið
- í átt til starfsgreinasamninga
Sambandsstjórn Verkamanna-
sambands íslands kom saman til
fundar sl. sunnudag og voru þar
tekin til meðferðar skipulagsmál
sambandsins og útflutningur á ís-
fiski. Samþykkti stjórnin ályktun,
þar sem framkvæmdanefnd og
skipulagsnefnd sambandsins er falið
að undirbúa skipulagsbreytingar
VMSÍ þannig að sambandinu verði
deildaskipt og tryggt verði m.a. að
sérdeild fiskvinnslufólks fari mcð öll
samningamál þess í framtíðinni.
ráðuneytinu hafi menn beinni hags-
muni . „Menn telja að það sé
kannski auðveldara að koma tautinu
fyrir sjávarútvegsráðherra en við-
skiptamálaráðherra. Sjávarútvegs-
ráðuneytið þarf að líta á málið frá
fleiri sjónarhornum og taka tillit til
fleiri hagsmuna en viðskiptalegra,"
sagði Þröstur.
„Það er þannig að gámaútflutning-
ur hefur flutt vinnu úr landi í stórunr
stíl, vegna þess að þessi fiskur er
seldur til vinnslu á meginlandi Evr-
ópu. Vinnsluvirði hans er þannig
stóraukið, en þá má heldur ekki
gleyma hinum mikla löndunarkostn-
aði erlendis sem dregst frá þessu
skiptaverði. Það gæti munað um 13
krónum á kíló. Hins vegar er því
ekki að neita að íslensk fiskvinnsl-
uhús eru mörg rekin á óhagkvæman
hátt og þar þarf að stokka upp,“
sagði Þröstur Ólafsson.
-phh
FALKAEGG
HORFIN
Lögreglan á Húsavík telur full-
víst að tveimur fálkaeggjum hafi
verið stolið úr hreiðri á Tjörnesi í
Suður-Þingeyjarsýslu. Tvö egg
hafa verið skilin eftir, en voru
upphaflega fjögur. Lögreglan hef-
ur engar vísbendingar um eggja-
hvarfið og ekki hefur orðið vart
ferða vafasamra manna um þessar
slóðir. Líklegt er að eggin hafi
verið tekin fyrir um hálfum mán-
uði. Fálkaegg seljast nú á upp
undir 20 þúsund Bandaríkjadali,
sem samsvara um 800 þúsund krón-
um íslenskum. Fullvaxinn íslensk-
ur fálki selst á 4 milljónir króna.
Þetta er fyrsti eggjaþjófnaðurinn
sem vitað er um í sumar og sagði
Árni Sigurjónsson hjá Útlending-
aeftirlitinu að aldrei þessu vant
hefði ekki borið á því, að grunsam-
legir menn kæmu hingað til lands í
þessum erindagjörðum. „Það hef-
ur verið óvenju rólegt.“ Eftirlit er
strangt og mikil samvinna allra
viðkomandi, þar á meðal landeig-
enda, þar sem fálkar hafa valið sér
hreiðurstað, f baráttunni við fálk-
aþjófa.
Aðeins einn fálkaeftirlitsmaður
er á landinu. Sá lítur eftir með
varpsvæði um Mývatn. Þar hefur
þjófa ekki borið niður það sem af
er sumri. þj
Sagði Þröstur Ólafsson, frkvstj.
Dagsbrúnar að þessi ályktun væri í
samræmi við þær hugmyndir sem
hann hefur um endurskipulagningu
verkalýðshreyfingarinnar, en um
þær hefur verið fjallað í Tímanum.
I grófum dráttum vill Þröstur að
farið verði út í starfsgreinasamninga,
þannig að samið verði samtímis fyrir
alla starfsmenn í ákveðnum starf-
greinum, háa sem lága.
„Það má út af fyrir sig líta á þetta
sem fyrsta skrefið í þessa átt, þó
þarna sé aðeins verkafólk á ferðinni.
Mín hugmynd gekk lengra, þannig
að inn í þetta fiskvinnslusamband
færi allt það fólk sem vinnur við
fiskvinnslufyrirtæki. Ef verkafólk er
eitt þarna inni, þá gerist ekki mjög
mikið. En við skulum vona að þetta
sé fyrsta skrefið í þcssa átt,“ sagði
Þröstur.
Um það hvernig þessi deildaskipt-
ing gæti orðið að veruleika að öðru
leyti, sagði Þröstur að t.d. mætti
hugsa sér flutningaverkamenn í
einni deild, byggingaverkamenn í
annarri, fagmcnn í málmiðnaði í
þeirri þriðju, starfsmenn í mjólkur-
iðnaði í þeirri fjórðu o.s.frv. Skipu-
lagsnefnd og framkvæmdanefnd á
síðan að leggja tillögur sínar um
þetta efni fy rir formannafund VMSÍ,
eigi síðar en ló.september.
Sambandsstjórnarfundurinn
ályktaði einnig um útflutning á ís-
fiski, eins og fyrr segir þar sem talið
er að þessi útflutningurógni atvinnu-
öryggi fiskvinnslufólks í mörgum
byggðarlögum. Því telur fundurinn
að nauðsyn sé á nýrri löggjöf þar
sem tekið sé mið af eftirfarandi
atriðum: 1. Allur útflutningur á
ísuðum fiski verði háður leyfi sjávar-
útvegsráðuneytisins. í dag er það
viðskiptamálaráðuneytið sem veitir
viðkomandi útflutningsleyfi.
2. Að við veitingu leyfa verði tekið
mið af þjóðhagslegri hagkvæmni út-
flutnings á ísuðum fiski. 3. Verði
kvótaskipting áfram notuð sem tæki
til stjórnunar fiskveiða, skal ekki
miða kvóta við veiðiskip, heldur
verði fullt tillit tekið til fiskvinnsl-
unnar í þeim efnum. í fjórða lagi að
öll sala á óveiddum fiski (kvóta)
verði bönnuð.
Sagði Þröstur að hugmyndin að
baki því að flytja leyfisveitingar milli
ráðuneyta væri sú að í sjávarútvegs-
Gert klárt á Skipaskaga
í blíðviðrinu sem verið hefur síðustu daga hafa útgerðarmenn smábáta
átt annríkt. Ekki þurfa menn að vera háir I loftinu til að ræða málin
spekingslega með hendur fyrir aftan bak. Hér má sjá dyttað að
Rockall-Hatton rannsóknirnar:
Íslendingar viðurkenna
ekki tilkall Bretlands
- til hluta þess svæðis sem rannsakað verður
handfærarúllum í Reykjavlkurhöfn og tveir guttar ræða aflahorfur og
veiðidagabönn smábáta, eins og fullorðnu mennirnir gera.
Tímamjnd Pjelur.
Utanríkisráðuneytið hefur sent
Bretum svar við neitun þeirra að
Sambandið:
Aðalfundur í Bifröst
Árlegur aðalfundur Sambands
ísl. samvinnufélaga verður haldinn
núna á fimmtudag og föstudag, 4.
og 5. júní. Að vanda verður fund-
urinn haldinn að Bifröst í Borgar-
'firði og má gera ráð fyrir að
fundarmenn verði nokkuð á annað
hundrað. Þar verða lagðar fram
skýrslur og reikningar um starfsemi
Sambandsins á liðnu ári og ef að
líkum lætur einnig rætt um framtíð-
árverkefni þess. Einnig verður þar
fjallað um sérmál sem að þessu
sinni er málefni starfsmanna sam-
vinnuhreyfingarinnar. Fundurinn
hefst klukkan níu að morgni
fimmtudags, og má gera ráð fyrir
að hann standi fram yfir hádegi á
föstudag.
Sérstök bílferð verður frá
Reykjavík fyrir aðalfundarfull-
trúa. Fer bíll frá BSt klukkan 17 á
miðvikudag 3. júní. Einnig verður
ferð til baka til Reykjavíkur að
fundi loknum.
-esig
viðurkenna vísindarannsóknir ís-
Iendinga, Dana og Færeyinga á
Rockall- Hatton svæðinu í sumar.
í svarinu ítrekar ríkisstjórn ís-
lands mótmæli sín gegn kröfunt
Breta til svæða sem eru á landgrunni
íslands eins og það er afmarkað
samkvæmt reglugerð útgefinni 9.
maí 1985 og í samræmi við þjóðarétt.
Samkvæmt reglugerðinni er fyrir-
hugað rannsóknarsvæði innan land-
grunns íslands og viðurkennir ísland
ekki tilkall Breta til þess svæðis, sem
rannsóknirnar munu fara fram á.
Lýsa íslendingar sig reiðubúna til
samkomulags, í samræmi við 83. gr.
Hafréttarsáttmálans, sem þeir hafa
staðfest, til að samræma sínar rann-
sóknir og þær rannsóknir, sem Bret-
ar hafa hugsað sér að framkvæma á
svæðinu. A þeim grundvelli er hugs-
anlegt að Breturn verði heimilaðar
rannsóknir á íslenska landgrunninu.
Lánasjóður íslenskra námsmanna:
Breyttar reglur
um úthlutunlána
- tekjur umfram framfærslu koma að
helmingi til frádráttar í stað 65% áður
Menntamálaráðherra hefur sam-
þykkt breyttar úthlutunarreglur
fyrir Lánasjóð íslenskra námsm-
anna sem taka munu gildi fyrir
námsárið 1987 til 1988.
Tekjur námsmanna umfram
framfærslukostnað koma að helm-
ingi til frádráttar í stað 65% áður.
Framfærslugrundvöllurinn hefur
hins vegar ekki breyst og er nú
24.390 fyrir einstakling á mánuði.
Námsmaður sem býr í foreldrahús-
um fær nú 17.073 krónur á mánuði
en fékk áður 14.634 krónur. Fram-
færsla hans hefur verið hækkuð um
10%. Framfærsia einstæðs foreldr-
is hækkar um 50% við hvert barn
samkvæmt reglunum en hækkaði
áður um 50% við fyrsta barn, 30%
við annað barn og 20% við börn
umfram það. Framfærsla náms-
manns í hjónabandi hækkað um
25% við hvert barn en áður hækk-
aði hún um 20% við fyrsta barn og
síðan 15% við börn umfram eitt.
Samkvæmt reglunum getur maki
námsmanns haft allt að tvöfaldri
framfærslu námsmanns, sé búið í
leiguhúsnæði en tekjur umfram
það koma að fullu til frádráttar.
Allir styrkir koma til frádráttar
láni en skólagjöld og sannanlegur
rannsóknarkostnaður allt að upp-
hæð styrks hafa ekki áhrif á lán til
framfærslu.
ABS