Tíminn - 03.06.1987, Qupperneq 14
14 Tíminn
lllllllllllllllllllllll MINNING
Miövikudagur 3. júní 1987
Steinunn Sigurbjörnsdóttir
Grímsey
Steinunn Sigurbjörnsdóttir, fyrrv.
útibússtjóri Kaupfélags Eyfirðinga í
Grímsey, andaðist 22. f.m og var
jarðsett í Grímsey sl. föstudag. Hún
var tæpra 67 ára að aldri er hún lést,
f. í Grímsey 2. júlí 1920, dóttir
hjónanna Sigurbjörns Sæmundsson-
ar og Sigrúnar Indriðadóttur, sem
, bjuggu í Grímsey, vel metin hjón og
niðjasæl.
Steinunn Sigurbjörnsdóttir ólst
upp í Grímsey og átti þar heima
lengst af ævinnar. Ung sótti hún nám
í Reykholtsskóla og síðar stundaði
hún nám í íþróttakennaraskólanum
á Laugarvatni og lauk þar prófi.
Eftir það var hún íþróttakennari
nokkur ár á Siglufirði og Akureyri
og e.t.v. víðar. Hún giftist á þeim
árum Guðmundi Jónssyni, verslun-
armanni frá Siglufirði, fríðum og
háttprúðum manni, enda þóttu þau
Steinunn og Guðmundur fallegt par
eins og þá var sagt.
Þau hjón fluttust til Grímseyjar
1952, þegar Steinunn gerðist útibús-
stjóri Kaupfélags Eyfirðinga á eynni,
og vann Guðmundur einnig við úti-
búið með konu sinni meðan hans
naut við. Var samstarf þeirra allt hið
besta og í sameiningu unnu þau
útibúinu ómetanlegt gagn. Voru um-
svif útibús Kaupfélagsins ætíð mikil
og uxu mjög á þessum árum. Þar var
ekki einungis um rekstur verslunar-
útibús að ræða, heldur hafði Kaup-
félagið með höndum fiskverkun
eyjamanna að langmestu leyti, og
sem útibússtjóri annaðist Steinunn
þann rekstur og vann störf sín með
mestu prýði. Fer ekki milli mála að
hún var einn af máttarstólpum
Grímseyjar í meira en 30 ár, þessa
útvarðar íslandsbyggðar í norðri,
þar sem mannlff blómstrar og at-
vinnulífið stendur traustum fótum.
Sem að líkum lætur gegndi Stein-'
unn margs konar trúnaðar- og for-
ystustörfum í heimabyggð sinni, en
lét ekki síst til sín taka skóla- og
tómstundamál, þ.á m. íþróttamál.
Bygging sundlaugar í Grímsey var
henni sérstakt áhugamál hin síðari
ár og taldi ekki eftir sér að veita því
máli fullt liðsinni í verki. Guðmund-
ur Jónsson, eiginmaður Steinunnar,
, lést um aldur fram fyrir nokkrum
árum. Eftir þau lifir kjörsonur
þeirra, Hafliði Guðmundsson, bú-
settur í Grímsey.
Segja má að þau hjón hafi tengst
Tímanum sérstaklega með því að
Guðmundur var lengi fréttaritari
blaðsins og Steinunn honum til að-
stoðar í því starfi. Fyrir það eru
Steinunni færðar þakkir ritstjórnar
Tímans og öll þau góðu samskipti
sem hún og þau hjón áttu við blaðið
um áratugaskeið.
Persónulega þakka ég Steinunni
kynni okkar sem voru margs konar
á þingmannsárum mínum og allt
sem við kom málefnum Grímseyjar
á þeim tíma. Gat naumast hjá því
farið að ég og nánustu félagar mínir
sæktum fremur undir Steinunni en
flesta aðra um Grímsevjarmál, þeg-
ar því var að skipta. I því efni var
hún ráðgjafi okkar og trúnaðarmað-
ur.
Eftirlifandi syni hennar og vanda-
mönnum öllum sendi ég samúðar-
kveðju. Fyrir dugnað sinn, mann-
kosti og prúðmennsku skilur hún
eftir sig góðar minningar hjá öllum
sem henni kynntust.
Ingvar Gíslason
Frá Menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður við framhaidsskóia:
Við Fjölbrautaskólann í Breiðholti staða fjár-
mála- og rekstrarstjóra.
Við Stýrimannaskólann í Reykjavík staða bóka-
varðar og húsvarðar.
Við Menntaskólann og Iðnskólann á ísafirði
kennarastöður í íslensku, dönsku, efnafræði og
þýsku, tvær stöður í stærðfræði og hlutastöður í
ensku og frönsku. Ennfremur hlutastaða bóka-
varðar og kennarastöður í rafmagns- og rafeinda-
greinum, vélstjórnargreinum, siglingafræði og öðr-
um stýrimannagreinum.
Við Fjölbrautaskóla Suðumesja í Keflavík
kennarastöður í almennum listgreinum, faggrein-
um rafiðna, faggreinum hársnyrtigreina, ensku,
íslensku, stærðfræði og viðskiptagreinum.
Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki kennara-
stöður í íslensku, dönsku, frönsku, stærðfræði,
landafræði og jarðfræði, sögu, félagsfræði, hjúkr-
unarfræðum, viðskiptagreinum, sérgreinum
tréiðna og stundakennslu í eðlisfræði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu. Hverfisgötu
6, 150 Reykjavík fyrir 15. júní næstkomandi.
Stærsti útflytjandi
íslenskra bóka
Heildarveltan tæpar 200 miljónir hjá Almenna bókafélaginu á síðasta ári
Menntamálaráðuneytið
Frá Menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður við framhaldsskóla:
Umsóknarfrestur um áður auglýstar kennarastöð-
ur við eftirtalda framhaldsskóla framlengist til 15.
júní:
Við Fjölbrautaskólann við Ármúla kennarastöð-
ur í efnafræði og hagfræði og viðskiptagreinum.
Fullar stöður í báðum greinum.
Við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi
kennarastöður í eðlisfræði, efnafræði, stærðfræði
og rafeindavirkjun. Ennfremur er laus kennara-
staða í félagsfræði.
Við Menntaskólann á ísafirði kennarastöður í
íslensku, stærðfræði og þýsku, heilar stöður og
hálfar stöður í efnafræði og frönsku.
Við Menntaskólann í Kópavogi kennarastöður í
stærðfræði og viðskiptagreinum.
Við Menntaskólann að Laugarvatni kennara-
stöður í stærðfræði og raungreinum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 150 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
NORDIJRI.ANDI EYSTRA
Þroskaþjálfi
Óskast á sambýli frá næstkomandi hausti. Upplýs-
ingar gefur forstöðumaður í síma 96-26960.
Formannaskipti urðu á aðalfundi
Almenna bókafélagsins sem haldinn
var hinn 18. maí. Baldvin Tryggva-
son sparisjóðsstjóri lét þar af starfi
sem formaður félagsins en við tók
Björn Bjarnason aðstoðarritstjóri.
Þá kom fram á fundinum að heildar-
velta AB á síðasta ári varð tæpar 200
miljónir króna, og hagnaður af
rekstrinum varð 3,4 miljónir.
Almenna bókafélagið hefur nú
starfað í 32 ár, en það var stofnað í
maí 1955. Baldvin Tryggvason var
framkvæmdastjóri helming þess
starfsferils, árin 1960-76, og formað-
ur hefur hann verið frá 1978. For-
menn á undan honum voru þeir
Bjarni Benediktsson forsætisráð-
herra 1955-70 og Karl Kristjánsson
alþingismaður 1970-78.
Gott ár fyrir félagið
í skýrslu fráfarandi formanns,
BaldvinsTryggvasonar, til aðalfund-
arins um liðið starfsár kom fram að
það var gott ár fyrir félagið, bæði
fyrir Bókaverslun Sigfúsar Ey-
mundssonar og bókaútgáfuna. Um-
svif bókaverslunarinnar hafa farið
vaxandi ár frá ári, og var velta
hennar 117 miljónir króna að frá-
dregnum söluskatti á árinu, á móti
85 miljónum króna árið áður. í
nóvember opnaði verslunin útibú í
Nýjabæ á Seltjarnarnesi og lofar sú
útgerð góðu. Þá gerði verslunin
samning við íslenskan markað í nýju
flugstöðvarbyggingunni á Keflavík-
urflugvelli, og verða þar á boðstólum
íslenskar og erlendar bækur, auk
blaða og tímarita.
í skýrslu sinni minntist Baldvin á
viðleitni verslunarinnar til að koma
íslenskum bókum á framfæri erlend-
is og kvað hana hafa skilað þeim
árangri að Bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar væri nú orðin stærsti
útflytjandi íslenskra bóka frá land-
inu. Þakkaði hann þennan árangur
ekki hvað síst árlegri þátttöku Al-
menna bókafélagsins í bókasýning-
unni miklu í Frankfurt.
Einnig ræddi Baldvin bókaútgáfu
félagsins á liðnu ári, en það rekur nú
þrjá bókaklúbba, Bókaklúbb AB,
Matreiðslubókaklúbb AB og Ljóða-
klúbb AB, og auk þess einn hljóm-
plötuklúbb. Þess utan gefur það út
bækur á almennum markaði.
í Bókaklúbbi AB komu út 11
bækur á árinu. þar á meðal þrjú
bindi af safnritinu Saga mannkyns
sem mikla athygli hefur vakið. Á
árinu fjölgaði félögum í klúbbnum
úr rúmlega 11 þúsund í 13.226.
Matreiðslubókaklúbburinn gaf út 10
titla af sínum vinsælu matreiðslu-
bókum, en þar er félagatalan um 11
þúsund. í ljóðaklúbbnum komu út 4
ljóðabækur og í hljómplötuklúbbn-
um 12 plötur. Samanlögð félagatala
þessara klúbba er um 28 þúsund
manns.
Merkustu útgáfubækur
Fyrir almennan markað gaf félag-
ið út 23 bækur á árinu. Var sala
þeirra yfirleitt jöfn og góð, og miklu
jafnari en verið hefur á undanförn-
um árum. Hagnaður af bókaútgáf-
unni varð 600 þúsund krónur á
árinu.
Baldvin ræddi nokkrar útgáfu-
bækur félagsins sérstaklega, þar á
meðal Sögu mannkyns, sem út eru
komin 7 bindi af en verða alls 15, og
einnig þrjú smásagnasöfn, þ.e. Kon-
ungur af Aragon eftir Matthías Jo-
hannessen, Átján sögur úr álfheim-
um eftir Indriða G. Þorsteinsson og
Smásögur Listahátíðar 1986.
Einnig nefndi hann Eftirmála
regndropanna, sem er þriðja skáld-
saga hins unga höfundar Einars Más
Guðmundssonar, Mannlýsingar 1-
III eftir Sigurð Nordal, leikrit Shak-
espeares í þýðingu Helga Hálfdanar-
sonar, sem út eru koinin 4 bindi af
og verða alls 8, og Ævisögur orða
eftir Halldór Halldórsson í bóka-
flokknum íslensk þjóðfræði. Kvað
hann þetta allt vera úrvalsbók-
menntir sem óhætt væri að vera
stoltur af.
Heildarveltan nær
200 miljónir
í skýrslu forstjóra félagsins,
Kristjáns Jóhannssonar, kom fram
að heildarvelta félagsins s.l. ár varð
tæpar 200 miljónir og jókst um 35%
frá árinu á undan. Hagnaður af
heildarrekstri félagsins varð 3,4 milj-
ónir.
Allmikil söluaukning varð bæði
hjá bókaútgáfunni og Bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar. Hjá bóka-
útgáfunni nam hún nær 34%, en
bókaverð hækkaði á sama tíma um
25%, svo að um raunaukningu er að
ræða. Mest varð aukningin í sölu á
almennum markaði, 49%, en sala
bókaklúbbanna jókst samanlagt um
29%. Sala Bókaverslunar Sigfúsar
Eymundssonar jókst um 37% á ár-
inu. Mest jókst sala erlendra bóka,
um 46%, en sala á íslenskum bókum
jókst um 32%.
Þá flutti nýkjörinn formaður,
Björn Bjarnason, einnig ávarp á
fundinum. Við það tækifæri ávarp-
aði hann fráfarandi formann, Bald-
vin Tryggvason, sérstaklega og af-
henti honum að gjöf frá stjórn og
útgáfuráði AB og stjórn Stuðla hf.
litla styttu af Óðni gerða af Hallsteini
Sigurðssyni myndhöggvara.
Stjórn og útgáfuráð
í stjórn AB sitja nú Björn Bjarna-
son aðstoðarritstjóri, sem erformað-
ur, og meðstjórnendur þeir Davíð
• Oddsson borgarstjóri, Davíð Ólafs-
son fyrrv. seðlabankastjóri, Erlend-
ur Einarsson fyrrv. forstjóri, Gylfi
Þ. Gíslason prófessor, Halldór Hall-
dórsson fyrrv. prófessor og Jón
Skaftason yfirborgarfógeti. I vara-
stjórn eru Eyjólfur Konráð Jónsson
alþingismaður, Sólrún B. Jensdóttir
skrifstofustjóri og Þráinn Eggertsson
prófessor.
Útgáfuráð AB er ekki kosið á
aðalfundi heldur skipað af stjórn-
inni. f því eiga nú sæti þeir Jóhannes
Nordal seðlabankastjóri, formaður,
Haraldur Ólafsson dósent. Hjörtur
Pálsson skáld, Höskuldur Ólafsson
bankastjóri, Indriði G. Þorsteinsson
ritstjóri, Kristján Albertsson rithöf-
undur, Matthías Johannessen rit-
stjóri og Sturla Friðriksson erfða-
fræðingur. -esig