Tíminn - 20.01.1994, Side 3

Tíminn - 20.01.1994, Side 3
Fimmtudagur 20. janúar 1994 3 Slökkvilibsmönnum gekk fremurseint ab rába niburlögum eldsins í einbýlishúsinu vib Skólavörbustíg ígœrmorgun. Þab er talib ónýtt eftir brunann. Tímamynd CS Óvenjumikiö aö gera hjá Slökkviliöinu í Reykjavík: 96 útköll á 19 dögum Bankamenn hafa náb nœr einstökum árangri: Fá greidda rúma fimmtán mánuði á ári „Á árinu 1992 fékk fram- kvæmdastjóri greiddar 632.216 krónur vegna starfsaf- mælis. Greiöslan er í samræmi viö kjarasamninga SÍB," segir í fróölegri greinargerö Ríkisend- urskoöunar um laun og starfs- kjör yfirmanna rikisbanka og sjóöa. Af nánari skýringum má ráða, aö umræddur framkvæmdastjóri hefur 1992 fengiö greidda tvo mánuöi til viðbótar viö þá 13 mánuöi sem bankamenn fá greidda á hverju ári. Þannig aö árið 1992 hefur teygst upp í samtals 15 mánuöi hjá viökom- andi. Þaö er þó ekki hámarkið, því vinni umræddur fram- kvæmdastjóri enn í fimm ár fær hann greidda 15 og 1/2 mánuö áriö 1997. Ár bankamanna geta þannig teygst vel fram yfir þá 13 mán- uöi sem launþegar í öörum starfsgreinum hafa löngiun öf- undaö þá af. Og þaö em alls ekki bara „stjórar" bankanna sem lifa þessi feiknarlega löngu ár, held- ur hafa þau veriö í samningum allra ríldsbankamanna, a.m.k., síöan 1977. Fyrstu aukamánaö- arlaunin (14. mánuöurinn) bæt- ist viö á 15 ára starfsafmælisár- inu innan sama banka. Fimm árum síÖar fær viökomandi ein og hálf aukamánaöarlaun (þ.e, 14,5 mánaöarlaun á árinu). Á 25 ára starfsafmælisárinu bætast viö tvenn aukamánaöarlaun, þannig aö hann fær greidda 15 mánuöi. Og þegar 30 starfsár em aö baki veröa aukamánuöimir 2 og 1/2, til viöbótar þeim 13 mánuöum sem bankamir greiöa ár hvert. Þessir traustu starfs- menn fá því alls greidda 15 og 1/2 mánuö á 30. starfsafmælisár- inu, og þaö munu þeir síðan fá á fimm ára fresti svo lengi sem þeir vinna í sama bankanum. -HEI Miklar annir hafa verib hjá Slökkviliðinu í Reykjavík þaö sem af er árinu, en samkvæmt skýrslum hefur Slökkviliöiö verib kallab 96 sinnum út á 19 dögum. Til samanburðar vom tæplega 900 skýrslur gerbar fyr- ir allt áriö í fyrra. Inni í þessum tölum em útköll vegna bmna í bílflökum og fleim, sem ekki telst til eldsvoöa. Aö sögn Jóns Friöriks Jóhannssonar, varöstjóra hjá slökkviliðinu, hafa húsbmnar veriö óvenjutíðir það sem af er árinu. Snemma í gær- morgun kviknaði í íbúðarhúsi viö Skólavöröustíg. Húsið, sem er bámjámsklætt timburhús, er tal- iö ónýtt eftir brunann. Ovíst er um hvaö olli eldiniun, en þó ligg- ur fyrir aö upptök hans vom í gólfi á milli hæöa. Rafmagn var á húsinu þar til aö slökkviliðsmenn slógu það út. Engin var í húsinu þegar eldsins varö vart laust eftir klukkan sex. Slökkviliöinu sóttist starf sitt erf- iðlega vegna eldfimrar einangr- unar á milli veggja og eldfimrar klæöningar á veggjum og tók tæpa þrjá klukkutíma aö sigrast aö fullu á eldinum. -ÁG Utflutningur lifandi hrossa hefur fimmtánfaldast á tíu árum Einn helsti vaxtarbroddurinn í landbúnaði undanfarin ár er ræktun reiöhrossa til útflutn- ings. Útflutningur lífhrossa hefur tæplega fimmtánfaldast á rúmum tíu árum. Útflutn- ingm hrossa hefur fariö stig- vaxandi á ári hverju frá 1982 og var aldrei meiri en á síöasta ári. Áriö 1981 vom flutt út á fæti 170 hross, en á síöasta ári var þessi tala kominn í tæplega 2500. Söluverðmæti þokkalegs reiöhests (geldings) á markaöi í Þýskalandi er um 8000 DM, eöa um 340 þúsund íslenskar krón- ur og er þaö líklega vægt áætlað. Verölag á íslenskum hrossum er svipað í Svíþjóö. Ef þessi viö- miöunartala er notuð má reikna út aö söhiverðmæti íslenskra út- flutningshrossa á markaði er- lendis hcifi numiö um 850 millj- ónum króna á síðasta ári. Þéssa útreikninga ber að taka meö fyr- irvara, því gæöingar og sér í lagi þekktir graðhestar seljast á miklu hærra veröi en átta þús- imd mörk. Skilaverö til fram- leiðenda á íslandi er einnig erf- itt að meta, en þess má geta aö uppgefið meöalverð fyrir líf- hross flutt út til Þýskalands frá janúar til október 1993, var samkvæmt tollskýrslum tæpar 60 þúsund krónur. Langstærsti markaöurinn fyrir íslensk reiöhross er í Þýskalandi, en þangað vom flutt um 1270 hross á síöasta ári. í næsta sæti er Svíþjóð meö um 440 hross og þar á eftir Noregur og Danmörk með mn 220 hross hvort um sig. Þetta kemur fram í samantekt frá Félagi hrossabænda. Síðasta ár sker sig einnig úr að því leyti ab þá vom fluttir út nær helmingi fleiri graðhestar en árin þar á undan, eöa t.d. 86 áriö 1993 á móti 48 áriö 1992. Þá vora á síðasta ári fluttar út nokkuð fleiri hryssur en geld- ingar (1235 á móti 1164), en þróunin hefur verið sú undan- farin ár aö þeim hefur fjölgað hlutfallslega miðað við geld- inga. Margt bendir til aö þessi já- kvæöa þróun haldi áfram. Þannig hefur markaðsstarf í Þýskalandi sjaldan eöa aldrei verið öflugra. Aöilar innanlands í samstarfi viö Félag hrossa- bænda og fleiri em aö hleypa af stokkunum kynningu á íslenska hestinum í Bandaríkjimxun, verið er að kynna hann meðal Sama í Lapplandi og svo mætti áfram telja. -ÁG Útflutningur reiöhrossa eftir löndum 1993 Þýskaland 1273 Svíþjóð 441 Danmörk 219 Noregur 222 Holland 42 Austurríki 59 Finnland 26 England 27 Færeyjar 9 Bandaríkin og Kanada 17 Sviss 22 Frakkland 14 Ítalía 10 Belgía 37 írland 2 Lúxemborg 2 Litháen 63 Reiöhestaútflutningur árin 1981-1993 ár alls - stóðh . nnerar geld- ingar 1981 ....251. .... 2 49 ... .200 1982. ... 170 3 62... ...105 1983 ....286 ...14. ... 106... ...163 1984 ....347. ....8 80.... ,.259 1985 ....279. ...10 81 ... ...188 1986 ....601. ...20 ....241... ...340 1987. ....609 ...22 ....236... ...351 1988 ....700. .. 28 ....194 ... ...478 1989 ..1019 ...42 ....397 ... ...580 1990 ..1130 ...28 ....426.. ...676 1991 ..1834 ...47 ....812... ...975 1992. ..2004 ...43 ....918... .1043 1993. ..2485 ...86 ..1235 .. .1164

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.