Tíminn - 20.01.1994, Blaðsíða 8

Tíminn - 20.01.1994, Blaðsíða 8
Fimmtudagur 20. janúar 1994 forsetaframb j óðanda Forseti þýska stjórnarskrárdómstólsins gœti orð/ð nœsti forseti landsins Leit þýsku stjómmálaflokkanna aö forsetaefnum er lokið. Eftir að Stefan Heitmann, sérlegur fram- bjóðandi Helmuts Kohls kanslara Þýskalands, hafði loks horfst í augu við þá staðreynd að fram- boð hans til embættisins var á góöri leið með að kljúfa kristilegu flokkana eftir endilöngu var ljóst að næsta forsetaefni kristilegra yrði að vera nær óumdeilanlegt. Segja má að það hafi tekist. Ro- man Herzog, forseti þýska stjóm- arskrárdómstólsins, er einn virt- asti framámaður Þýskalands um þessar mundir og enn sem komið er hefur ekkert verið fundiö hon- um til lasts sem máli skiptir. Starfsferill forsetaefnisins Roman Herzog er langt frá því að vera dæmigeröur þýskur embætt- ismaður. Hann hefur sinnt ólík- um störfum um ævina og farið víöa. Um hann hefur verið sagt, að á hann sé ekki hægt „að stóla". Það er meint sem hól, því að hann hefur aldrei verið staðinn aö því að hafa fylgt flokkslínu í störfum sínum sem dómari, en hann hefur verið meðiimur í flokki kristilegra demókrata frá 1970 og sinnt fjölmörgum trún- aðarstörfum fyrir flokkinn þar til hann var geröur að dómara við stjómarskrárdómstólinn í Karisruhe árið 1983. Herzog er mótmælendatrúar, þrátt fyrir ættir og uppmna í Bæj- aralandi. Hann las lög við háskól- ann í Munchen og lauk þar prófi undir handleiðslu Theodors Ma- unz, þekktasta fræðimanns Þjóö- verja meðal löglærðra frá stríðs- lokum. Herzog vann með Maunz að fræðilegum skrifum um stjóm- arskrá þýska sambandslýöveldis- ins þar til honum baubst kenn- ÚTLÖND arastaba í ríkisrétti og stjómmála- fræöi við háskólann í Vestur-Berl- ín árið 1965. Herzog flutti sig um set 1969, þegar honum bauðst staða við háskólann í Speyer. Þó að forsetaefnið viröist ekki sérlega viökvæmt, er talið að stúdenta- óeirðimar í Vestur-Berlín og árás- ir vinstri róttæklinga á kennara lagadeildarinnar hafi átt sinn þátt í að Herzog var ekki áfram við Die Freie Universitát. Árið 1973 varð Herzog landsfull- trúi á sambandsþinginu í Bonn. Þá lágu leiðir hans og Heimuts Kohls saman, en kanslarinn var þá fylkisstjóri í Rheinland-Pfalz. Fimm áram síöar var Herzog kall- aður til starfa fyrir stjóm kristi- Launagreiðendur! Launamiðum ber að skila í síðasta lagi 21. janúar Allir sem greitt hafa laun á árinu 1993 eiga að skila launamiðum ásamt launaframtali á þartil gerðum eyðublöðum til skattstjóra. ATH! Þeir sem fengu tímabundna endurgreiðslu trygginga- gjalds á síðastliðnu ári þurfa að endurgreiða þá fjárhæð ásamt dráttarvöxtum skili þeirekki launaframtali og launamiðum á réttum tíma. RSK RÍKISSKATTSTJ ÓRI Skilafrestur rennur út 21. janúar Mandela gagnrýnir de Klerk Þab vakti heimsathygli í gær þegar Nelson Mandela, forseti Afríska þjóðarráðsins, gagn- rýndi F.W. de Klerk forseta harðlega á fundi í Jóhannesar- borg. Þessir menn hafa fram til þessa átt samleið í umbyltingu Suður-Afríku og afnámi abskiln- aöarstefnunnar og fengu þeir t.d. báðir friöarverölaun Nóbels af því tilefni. Mandela sakaði de Klerk um að hann og ríkisstjóm hans ynnu með ýmsum andstæðing- um Afríska þjóðarráösins ab því að efna til uppþota, ólgu og of- beldis í blökkumannahverfum. Á myndinni má sjá Mandela þegar hann gagnrýndi de Klerk í gær. Mynd Reuter legra demókrata í Baden- Wurttemberg, þar sem hann var gerður að menningarmálaráð- herra, en síðar tók hann vib emb- ætti innanfylkisráöherra, sem hann gegndi þar til hann var skipaður í embætti dómara vib stjómarskrárdómstólinn. Víst er, að líkumar á að Roman Herzog verði næsti forseti þýska sambandslýöveldisins era miklar. Þau, sem keppa við hann um að ná kjöri, era Hildegard Hamm- Brúcher ,frambjóöandi frjálsra demókrata, Johannes Rau, fram- bjóðandi sósíaldemókrata, og Austur- Þjóðverjinn Jens Reich, sem telst óflokksbundinn. Forseti Þýskalands er kosinn af þingmönnum sambandsþingsins og fulltrúum fylkjanna og fer kosningin fram þann 23. maí í Reichstag í Berlín. 1324 fulltrúar hafa atkvæðisrétt og til að verða kosinn I annarri af fyrstu tveimur umferðunum þarf frambjóðandi að fá meira en helming atkvæða. Ef engum frambjóðendanna fjög- rura tekst að ná því marki, nær sá kjöri sem fær flest atkvæði í þriðju umferðinni. Kristilegu flokkamir hafa samtals 621 fulltrúa á kjör- fundinum, sósíaldemókratar 499, frjálsir demókratar 114, Bandalag 90 og grræningjar 39, PDS (leifar austur- þýska kommúnistaflokks- ins) 33. Aðrir, þ.á m. repúblikanar (hægri öfgamenn), eiga 18 full- trúa á samkundunni. Herzog hef- ur sagt, ab hann taki ekki meiri- hlutakosningu, ef hún byggist á stuðningi öfgamanna. Sá mögu- leiki er því fyrir hendi, að frjálsir demókratar, B90/græningjar og PDS, sameinist um að greiða Jo- hannes Rau atkvæði sitt. Ef til þess kæmi, væri ljóst að frjálsir demókratar hefðu gefið stjómar- samstarfið viö kristilega upp á bátinn og ætluðu sér að söðla um yfir á sósíaldemókrata eftir kosn- ingarnar til sambandsþingsins seinna á árinu. Lítill munur á Rau og Herzog Johannes Rau, fylkisstjóri í Nordrhein-Westfalen, hefur lengi haft augastað á forsetaembætt- inu. Um tíma virtist sem draum- urinn ætlaöi ab rætast, því ab Kohl kanslari hafði gefib í skyn ab hann hefði ekkert á móti Rau í embættið. Síðan kom framboð Heitmanns, sem ekki hefur enn sem komið er fengist skynsamleg skýring á, og þar með var stubn- ingur kanslarans viö Rau úr sög- unni. Fylkisstjórinn gaf því enn einu sinni kost á sér til að leiða sósíaldemókrata í Nordrhein- Westfalen, þegar gengib var til kosninga um formannsembættið þar á bæ fyrir skemmstu. Ef Rau hefði ekki verið búinn að ganga með forsetadrauminn svo áram skipti, má reikna meb því að sósí- aldemókratar hefðu getað fallist á að greiða Herzog atkvæbi sitt. Keppinautamir þykja um margt líkir. Hvoragur þeirra telst deilu- gjam, bábir era kenndir við miðju stjómmálanna og þykja aö auki hafa svipað viðhorf til stormasamrar fortíðar þýsku þjóðarinnar. Þó að engum detti í hug að Hildegard Hamm- Brúcher og Jens Reich eigi möguleika á að ná kjöri, þá era þau ekki talin síð- ur frambærileg til forsetaembætt- isins en Rau og Herzog. Þjóbverj- ar, hvar í flokki sem þeir standa, geta því í þaö minnsta glaðst yfir því einvalaliöi, sem hefur gefib kost á sér til að leiða þjóbina á næstu áram. Sennilega kemur næsti forseti til meb að njóta al- mennrar lýðhylli, þó að hann eba hún verði ekki eins vinsæl og Ri- chard von Weiszacker, núverandi forseti, hefur veriö. Ágúst Þór Ámason

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.