Réttur - 01.10.1949, Qupperneq 47
RÉTTUR
239
um þess að það hélt fast á sjálfsákvörðunarrétti sínum
gagnvart lögleysum miðstjórnar C. I. O.
Þá er Kupers, frá hollenska sambandinu N. V. V.
fyrrverandi meðlimur í framkvæmdanefnd F. S. U., mað-
urinn sem taldi hið blóðuga ofbeldi Hollendinga í Indón-
esiu sjálfsagt, því þeir væru aðeins að halda þar uppi
lögum og rétti. Oldenbrock forseti I. T. F. meðlimur mið-
stjórnar F. S. U. sá maðurinn, sem fastast stóð gegn
því að gömlu fagsamböndin sameinuðust F. S. U. eins og
um var samið í upphafi.
William Green forseti A. F. L., sem státar af því að
samtök sín hafi varið yfir 160 millj. doll. til klofnings-
starfs innan F. S. U.
Allir þessir menn, að undanskyldum Green voru með-
al stofnenda F. S. U. og völdust fyrir rás viðburðanna
1 æðstu stjórn þess.
Ferill þeirra gefur nokkra hugmynd um hvers verka-
lýðurinn má vænta sér af hinu nýja sambandi.
Þegar, er ljóst var, að framkvæmdaráð F. S. U. hag-
aði ekki gerðum sínum samkvæmt vilja afturhaldsafl-
anna, heldur reyndist öruggur málsvari verkalýðsins
jafnt í hagsmunabaráttu hans og í þjóðfrelsisbaráttu hinna
undirokuðu. nýlenduþjóða og hálfnýlendna tóku þre-
menningarnir í framkvæmdaráðinu, þeir Deakin, Carey
og Kupers að tefja störf þess á ýmsa lund. Hámarki sínu
náði þessi skemmdarstarfsemi þeirra á fundi fram-
kvæmdaráðsins í París 19. jan. í ár er þeir kröfðust þess,
að F. S. U. hætti störfum um óákveðinn tíma, þó aldrei
skemur en eitt ár, ella myndu sambönd þeirra ganga úr
F. S. U. Þessari kröfu þeirra fylgdi enginn rökstuðn-
ingur.
Meirihluti framkvæmdaráðsins gat vitanlega ekki fall-
izt á þessa kröfu, og hafði heldur enga heimild til slíks,
því það er aðeins á valdi þings sambandsins að taka
slíka ákvarðanir. Gengu þremenningarnir þá af fundi og