Morgunblaðið - 27.01.2006, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 11
FRÉTTIR
ÁHYGGJUEFNI er hversu lítið til-
lit er tekið til skoðana geðsjúkra og
fjölskyldna þeirra í geðheilbrigðis-
þjónustu á Íslandi. Notendur þjón-
ustunnar telja afar brýnt að efla
stuðning og meðferðir fyrir ein-
staklinga. Þetta kemur fram í nýrri
rannsókn sem Rauði kross Íslands
(RKÍ) og Geðhjálp stóðu að um þarf-
ir geðsjúkra og reynslu þeirra af
geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi, en
hún var kynnt á blaðamannafundi í
gær.
Með því að spyrja notendur og að-
standendur þeirra um eigin viðhorf
gagnvart heilbrigðiskerfinu vildu
RKÍ og Geðhjálp afla upplýsinga
sem hið opinbera gæti haft til hlið-
sjónar um stefnumótun í geðheil-
brigðismálum. Þetta er í samræmi
við aðgerðaráætlun aðildarríkja Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar um
að bjóða eigi fólki með geðraskanir
að hafa áhrif á þá umönnun sem það
á kost á.
Rannsóknin er síðasti áfanginn
hjá RKÍ í að kanna stöðu geðfatl-
aðra á Íslandi og þjónustu við þá.
Kannanir sem deildir Rauða kross-
ins létu gera á árunum 2001–2004
um hag og þarfir geðfatlaðra á Aust-
urlandi, Suðurlandi, Suðurnesjum,
Vesturlandi og Vestfjörðum hafa
leitt svipaðar niðurstöður í ljós.
Komu þar m.a. fram sterk tengsl
milli efnalegra aðstæðna og félags-
legrar einangrunar og að sjúkling-
um þyki lyfjameðferð vera nýtt til
fulls, en efla þurfi aðrar tegundir
meðferðar.
Félagsleg einangrun og fordómar
eru meðal þess sem geðsjúkir þurfa
að glíma við að staðaldri, sérstak-
lega þeir sem búa einir. Þessi ein-
angrun og fordómar minnka með
auknum tekjum, en einnig kom í ljós
að þátttakendur á höfuðborgarsvæð-
inu voru einangraðri en á lands-
byggðinni og höfðu meiri reynslu af
fordómum. Þá fannst mörgum svar-
endum lítið tillit tekið til skoðana
sjúklinga og aðstandenda þeirra.
Ennfremur kom fram að aðstand-
endur fengju litla fræðslu um geð-
raskanir frá heilbrigðisstarfsfólki.
Sveinn Magnússon, framkvæmda-
stjóri Geðhjálpar, segir rannsóknina
staðfesta ýmislegt sem hefur komið
fram í samtölum hjá samtökunum og
virðist að hans sögn rauður þráður í
þeim málum sem til samtakanna
berast hvað varðar hagsmuni geð-
sjúkra.
Geðsjúkdómar ekki bara
heilbrigðisvandi
„Við erum á réttri leið. Þessi rann-
sókn sýnir vel að þeir sem eiga við
vandamál að stríða og fagfólk þurfa
að vinna saman,“ segir Sveinn og
bendir ennfremur á að skýrt komi í
ljós að geðsjúkdómar séu líka félags-
legt vandamál og ekki sé hægt að
reka fleyg á milli og skilgreina hvort
málaflokkurinn flokkast undir heil-
brigðislegt eða félagslegt vandamál.
„Það er heldur ekki verið að kalla
eftir auknu fjármagni, heldur er hér
þvert á móti verið að benda á leiðir
til sparnaðar sem alltaf er kallað eft-
ir. Svo er líka hér um að ræða sam-
félagslegan gróða,“ sagði Sveinn
Magnússon.
Dr. Páll Biering, geðhjúkrunar-
fræðingur og einn rannsakenda,
segir ljóst að leggja þurfi fé í fleira
en hús og stofnanir. Eftirfylgni,
hjúkrun og ýmiss konar stoðkerfi
séu mjög mikilvæg í bataferli geð-
sjúkra. „Það hefur verið lítið tillit
tekið til skoðana sjúklinga,“ segir
Páll og bendir enn fremur á mikil-
vægt sé að rjúfa félagslega einangr-
un geðsjúkra. „Stærstur hluti þeirra
sem tóku þátt í könnuninni voru með
mjög litlar tekjur, en það hamlar
geðsjúkum mjög í því að fara út í
samfélagið og taka þátt í félags-
starfi.“
Rjúfa þarf félagslega
einangrun
Meðal annarra niðurstaðna rann-
sóknarinnar má nefna að meirihluti
svarenda er almennt ánægður með
þjónustu í síðustu innlögn á sjúkra-
stofnun, en svarendur eru óánægðir
með eftirfylgd og þá þjónustu sem
þeim býðst eftir að innlögn lýkur. Þá
kvaðst meirihluti svarenda hafa
fengið litlar upplýsingar um úrræði
eftir útskrift. Þá vildu flestir auka
samtalsmeðferð eða ráðgjöf og
mörgum fannst að auka þyrfti fé-
lagsráðgjöf og iðjuþjálfun, þótt lyfja-
meðferð gagnist vissulega flestum.
Að mati rannsakenda er mikil þörf
fyrir græðandi mannleg samskipti,
en m.a. sögðust rúm 60% svarenda
örugglega eða líklega nýta sér heim-
sóknarþjónustu Rauða krossins. Þá
þótti ljóst að þeir sem þjást af lang-
vinnum geðsjúkdómum festast í
vítahring fátæktar, menntunarleysis
og félagslegrar einangrunar, en til
að rjúfa vítahringinn þarf að byrja
að rjúfa hina félagslegu einangrun.
Meðal helstu úrræða til þess eru við-
talsmeðferð, sjálfshjálparhópar,
heimsóknarþjónusta, heimageð-
hjúkrun og bættur efnahagur fólks.
Brýnast var að mati þeirra sem að
rannsókninni stóðu að fræða starfs-
fólk betur um úrræði í boði, greina
götin í þjónustu til geðsjúkra og
fjölga úrræðum, bæta samskipti og
fræðslu til aðstandenda og tryggja
að hlustað sé á skoðanir notenda og
aðstandenda og þær virtar.
Ný könnun á þjónustuþörfum og reynslu geðsjúkra og aðstandenda þeirra
Nauðsynlegt að tekið sé
tillit til skoðana geðsjúkra
Morgunblaðið/Sverrir
Félagsleg einangrun og fordómar eru meðal þess sem geðsjúkir þurfa að glíma við að staðaldri.
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
PRÓFKJÖR Framsóknarflokksins í
Reykjavík vegna borgarstjórnar-
kosninganna fer fram á morgun,
laugardag. Ellefu frambjóðendur
taka þátt í prófkjörinu, sex karlar og
fimm konur.
Í prófkjörinu verður valið í sex
efstu sæti framboðslistans. Kosning-
in fer fram í anddyri Laugardals-
hallar frá kl. 10 til 18.
Samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu Framsóknarflokksins
hefst talning atkvæða um kl. 14 og
er búist við fyrstu tölum mjög fljót-
lega eftir að kosningu lýkur eða upp
úr kl. 18. Er reiknað með að endan-
leg úrslit liggi fyrir skömmu eftir
miðnætti.
Rétt til þátttöku í prófkjörinu eiga
allir félagar í framsóknarfélögunum
í Reykjavík ásamt öllum þeim Reyk-
víkingum sem skrifa undir yfirlýs-
ingu þess efnis að þeir aðhyllist
stefnu Framsóknarflokksins í
Reykjavík. Allir þátttakendur skulu
hafa náð 18 ára aldri á kjördegi til
sveitarstjórnakosninga 2006 (þ.e.
vera fæddir 27. maí 1988 eða fyrr).
Þeir sem bjóða sig fram í prófkjör-
inu eru: Anna Kristinsdóttir borgar-
fulltrúi, sem sækist eftir 1. sæti, Ás-
rún Kristjánsdóttir hönnuður, sem
sækist eftir 2.–4. sæti, Björn Ingi
Hrafnsson, aðstoðarmaður forsætis-
ráðherra, sem sækist eftir 1. sæti,
Brynjar Fransson, löggiltur fast-
eigna- og skipasali, sem sækist eftir
3.–6. sæti, Elsa Ófeigsdóttir bókari,
sem sækist eftir 5.–6. sæti, Gerður
Hauksdóttir þjónustufulltrúi, sem
sækist eftir 2.–4. sæti, Gestur Kr.
Gestsson, sölufulltrúi og flutninga-
ráðgjafi, sem sækist eftir 2.–3. sæti,
Gestur Guðjónsson umhverfisverk-
fræðingur, sem sækist eftir 3. sæti,
Hjörtur Gíslason, sölu- og markaðs-
stjóri, sem sækist eftir 2.–6. sæti,
Marsibil J. Sæmundardóttir, vara-
borgarfulltrúi og framkvæmda-
stjóri, sem sækist eftir 2. sæti, og
Óskar Bergsson húsasmíðameistari,
sem sækist eftir 1. sæti.
Prófkjör framsóknarmanna í Reykjavík
11 frambjóðendur
takast á um sex sæti
VINNUSLYS varð í Sandgerði í
fyrrakvöld þegar starfsmaður í fyr-
irtæki sem framleiðir gæludýrafóður
úr fiskafgöngum fór með fót í snigil.
Að sögn lögreglu bendir allt til að
maðurinn, sem var einn við vinnu,
hafi misst framan af tám á hægra
fæti við slysið. Ekið var með mann-
inn í sjúkrabíl á Landspítalann – há-
skólasjúkrahús, þar sem gert var að
sárum hans.
Að sögn vakthafandi læknis á LSH
er líðan mannsins góð eftir atvikum.
Missti tær í
vinnuslysi
NÁMSKEIÐ um stærðfræðierfið-
leika (dyscalculiu), eðli þeirra, ein-
kenni, mat og tengsl við lesblindu
(dyslexíu) verður haldið á vegum
Lestrarseturs Rannveigar Lund í
dag. Námskeiðið verður haldið í Há-
skóla Íslands, í stofu 101 í Odda frá
klukkan 13.00–16.30. Rannveig var
áður forstöðumaður Lestrarmið-
stöðvar KHÍ, sem lögð var niður árið
2002, en er nú forstöðumaður Lestr-
arseturs Rannveigar Lund sem til-
heyrir ReykjavíkurAkademíunni.
Leiðbeinandi á námskeiðinu verður
John Rack, forstöðumaður Lestrar-
miðstöðvar við háskólann í York á
Englandi, en námskeiðið er ætlað
kennurum í grunn- og framhaldsskól-
um, sálfræðingum, námsráðgjöfum
og öðrum áhugasömum. Stærðfræði-
erfiðleikar eru vaxandi vandamál en á
námskeiðinu verður fjallað um
tengslin á milli stærðfræðierfiðleika
(dyscalculiu) og lesblindu (dyslexíu).
Rannveig Lund er helsti sérfræðing-
ur landsins í lesblindu en hún er sér-
kennari með meistaragráðu í uppeld-
is- og menntafræðum. Sérsvið hennar
eru kennsla og þróun prófa til að
greina lesblindu og aðra lestrarerfið-
leika en hún sinnir stundum fólki með
stærðfræðierfiðleika eftir því sem
fræðileg þekking og kunnátta leyfa.
Nánari upplýsingar um námskeiðið
og Lestrarsetur Rannveigar Lund
má finna á heimasíðunni lrl.is.
Lestrarsetur
Rannveigar Lund
Námskeið um
stærðfræði-
erfiðleika
RANNSÓKNAMIÐSTÖÐ Við-
skiptaháskólans á Bifröst og Samtök
sveitarfélaga á Vesturlandi standa
að ráðstefnu um framtíð Vesturlands
á Bifröst í dag, föstudaginn 27. jan-
úar. Ráðstefnan, sem er öllum opin
og ókeypis, hefst kl. 11. Fjölmargir
gestir flytja þar erindi og allir munu
þeir beina sjónum sínum að framtíð
Vesturlands.
Á ráðstefnunni verður reynt að
rýna í framtíðina, skoða hver séu
helstu tækifæri svæðisins og jafnvel
hvað beri að varast. Er mikilla breyt-
inga að vænta á Vesturlandi næsta
áratuginn og ef svo er hvernig er
best að bregðast við? Hvaða aðgerða
er þörf og getum við gert eitthvað til
að gera hag okkar enn betri?
Ræða framtíð
Vesturlands
ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdótt-
ir menntamálaráðherra hefur ákveð-
ið að skipa starfshóp til að yfirfara
og meta fýsileika þeirra kosta, sem
til staðar eru varðandi byggingu
nýrra framhaldsskóla. Starfshópur-
inn mun skoða sérstaklega kosti á
höfuðborgarsvæðinu og við utan-
verðan Eyjafjörð.
Í fréttatilkynningu kemur fram,
að starfshópinn skipa Aðalsteinn Ei-
ríksson, Jón Þór Ragnars, Þórir
Ólafsson og Arnór Guðmundsson.
Stefnt er að því að hópurinn skili
greinargerð til ráðherra fyrir 1. maí
næstkomandi.
Skoðar byggingu
framhaldsskóla
FÉLAG kvenna í atvinnurekstri (FKA) afhenti í gær verðlaun félagsins sjö-
unda árið í röð. Verðlaunin að þessu sinni hlaut Ásdís Halla Bragadóttir,
forstjóri BYKO. Auk hennar voru Rakel Olsen, stjórnarformanni Sigurðar
Ágústssonar á Stykkishólmi, afhent þakkarverðlaun félagsins og Jón G.
Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, hlaut hvatningarverðlaun FKA.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Birna Einars-
dóttir, framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka, afhentu verðlaunin á Hótel
Sögu í gær.
Morgunblaðið/Þorkell
FKA verðlaunaði Ásdísi Höllu
♦♦♦
♦♦♦
♦♦♦