Morgunblaðið - 27.01.2006, Side 25

Morgunblaðið - 27.01.2006, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 25 DAGLEGT LÍF Í JANÚAR  HEILSA | Nýjar óháðar rannsóknir Lyfin hindra ein- kenni Alz- heimer LYF gegn Alzheimer gera gagn samkvæmt rannsóknum sem sænsk- ur heila- og taugalæknir vitnar til og vill að fleiri sjúklingar fái að prófa þau, að því er fram kemur í Dagens Nyheter. Lyfin eru t.d. Aricept, Reminyl og Exelon og eiga þau að hafa þau áhrif að hindra einkenni eða jafnvel bæta heilsu sumra sjúk- linga. Lyfin lækna ekki sjúkdóminn eða lengja líf viðkomandi. Þetta eru niðurstöður þriggja óháðra rann- sókna og lyfjanefndir í Svíþjóð og Englandi hafa komist að þeirri nið- urstöðu að lyfin hafi áhrif. Virkni Alzheimerlyfja hefur hing- að til verið umdeild og í Svíþjóð hef- ur notkun þeirra t.d. verið mismun- andi eftir landshlutum og læknum. Af nítíu þúsund Alzheimersjúkling- um þar í landi hafa um tuttugu og fimm þúsund fengið lyfjameðferð, en tveir læknar sem Dagens Nyheter ræðir við eru þeirrar skoðunar að fleiri sjúklingum ætti að gefast kost- ur á að prófa lyfin. Bengt Winblad, yfirmaður Alzheimerrannsókn- arstofu Karolinska, telur að allir Alzheimersjúklingar ættu að fá að prófa lyfin. Rætt er við konu sem fékk Alzheimer-sjúkdómsgreiningu 53 ára að aldri og hefur lyfið Rem- inyl t.d. gagnast henni mjög vel. „ENGILRÁÐ er lukkudýr Sjón- arhóls og hún hjálpar okkur að miðla ákveðnum grundvallarhugmyndum úr starfi Sjónarhóls sem gengur út á náungakærleika, umburðarlyndi og lífsgildi eins og frelsi, virðingu, sam- hjálp og ábyrgð,“ segir Þorgerður Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Sjónarhóls – ráðgjafarmiðstöðvar ses. Engilráð þekkja margir úr Stundinni okkar í vetur þar sem hún hefur verið með þætti. „Okkur fannst mikilvægt að kynna Engilráð og þá sérstaklega fyrir börnum. Við fórum í samstarf við Stundina okkar og svo fannst okkur upplagt að gera hana áþreif- anlegri fyrir börn. Við náðum samn- ingum við Hagkaup um að framleiða og selja tuskudýrið.“ Það er hægt að fá tvær gerðir af Engilráði, handbrúðu og aðra stærri sem má nota sem kodda og faðma. Tuskudýr geta örvað tilfinn- ingaþroska barna, hjálpað þeim að tjá ástúð og væntumþykju eða verið hughreystandi og dregið úr streitu á erfiðum augnablikum. Þorgerður segir að Engilráði tuskudýri finnist ekkert betra en hlýtt faðmlag. „Nú er Engilráð áþreifanlegri fyrir börn- in sem geta farið með hana heim og faðmað. Hluti ágóðans af sölunni rennur til Sjónarhóls.“ Atvinnuþátttaka fatlaðra Starfsmenn frá Vinnustofunni Ási voru fengnir til að merkja tuskudýr- ið en hjá Ási er lögð áhersla á að skapa fólki með fötlun og skerta starfsgetu vinnuaðstöðu sem sniðin er að þörfum þess og getu en vinnustofan sinnir pökkunarvinnu fyrir fyrirtæki og stofnanir. „Það er mikilvægt fyrir þennan hóp að fá tækifæri til að vera úti á vinnumark- aðinum. Með tímabundnum verk- efnum, eins og hér um ræðir, eru stigin mikilvæg skref til að auka at- vinnuþátttöku fatlaðs fólks úti í fyr- irtækjum,“ segir Þorgerður. Að lokum vill hún segja: „Inn með sælu – út með sút!“ Það er slagorð Engilráðar andarunga og mættu margir taka sér það til fyrirmyndar.  BÖRN | Tuskudýrið Engilráð andarungi er lukkudýr Sjónarhóls „Inn með sælu – út með sút“ Gústaf, Guðrún og Helga frá Vinnustofunni Ási að merkja tuskudýrið. Nánari upplýsingar um Engilráð má finna á: www.sjonarholl.net. ingveldur@mbl.is ER NEFIÐ STÍFLAÐ? Fæst í apótekum og lyfjaverslunum STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára. Ú TS A LA afsláttur af völdum hlýjum, mjúkum og góðum vörum Enn meiri verð- lækkun 40-50%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.