Morgunblaðið - 28.01.2006, Page 22
22 LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
TALSMENN Hamas-samtakanna,
sigurvegaranna í þingkosningum
Palestínumanna, hvöttu í gær ákaft
til einingar þjóðarinnar en viðbrögð-
in voru misjöfn. Margir liðsmenn
Fatah-samtakanna á Gaza létu í gær
ljós vonbrigði sín með niðurstöður
kosninganna og kröfðust sumir þess
að Mahmoud Abbas forseti segði af
sér. „Krafa okkar er ein og aðeins
ein, að miðstjórn [Fatah] og bylting-
arráð segir þegar af sér,“ sagði Sam-
ir Mashrawi, einn af frammámönn-
um Fatah á staðnum. Hann tapaði í
kosningunum.
Kveikt var í bílum, skotið upp í
loftið og krafist afsagna spilltra
flokksleiðtoga. Fólkið heimtaði að
Fatah héldi fast við þá ákvörðun sína
að taka ekki þátt í samsteypustjórn
með Hamas. Til harðra slagsmála
kom milli Fatah- og Hamas-manna á
Gaza og var beitt byssum. Er vitað
að þrír særðust.
Lítill munur í prósentum
Endanlegar niðurstöður kosning-
anna í Palestínu voru birtar í gær en
Hamas hlaut alls 76 þingsæti af 132 á
þingi. Fatah hreppti 43 sæti, aðrir
fengu samanlagt 13 sæti. Yfirburðir
Hamas í atkvæðatölum voru mun
minni en þingsætafjöldinn gefur til
kynna vegna þess að öflugasti fram-
bjóðandi í einmenningskjördæmum
fær sætið og atkvæði skiptust víða
milli margra flokka og flokksbrota.
Hamas var með rúm 43% atkvæða
á landsvísu en Fatah liðlega 40%.
Sums staðar voru fleiri en einn fram-
bjóðandi fyrir Fatah vegna klofnings
sem kom upp fyrir kosningar og varð
þetta ekki til að bæta stöðuna fyrir
hreyfinguna.
Sjálfstæð Palestína, flokkur lækn-
isins Mustafa Barghuti, sem var
efstur á landslista flokksins, hlaut
2,6% atkvæða og tvö sæti. Einn
þekktasti stjórnmálamaðurinn úr
röðum Palestínukvenna, Hanan As-
hrawi, náði kjöri fyrir smáflokk sinn.
Skoðanir eru afar skiptar á því
hvernig bregðast skuli við þeirri um-
byltingu sem orðin er vegna kosn-
inganna og væntanlegrar valdatöku
Hamas. Leiðtogi sjía-múslíma í Líb-
anon, stórajatollah Mohammed
Hussein Fadlallah, sagði að Hamas,
sem neitar að viðurkenna Ísrael,
myndi koma á óbeinum viðræðum.
„Hamas mun efna til óbeinna
samningaviðræðna við fjendurna til
að tryggja frelsi [Palestínumanna],“
sagði Fadlallah. Þess má geta að
Tyrkir, sem lengi hafa átt gott sam-
starf við Ísraela, buðust í gær til þess
að verða milligöngumenn í hugsan-
legum viðræðum Ísraels við Hamas.
Spáir hamskiptum eins
og hjá Ariel Sharon
Pervez Musharraf, forseti músl-
ímaríkisins Pakistans, sagði í gær að
Hamas-liðar hefðu sigrað með lýð-
ræðislegum hætti og yrðu að fá að
sanna sig. Hann minnti menn á að
Ariel Sharon, hinn sjúki, fyrrverandi
forsætisráðherra Ísraels, hefði verið
talinn ofbeldisfullur hermaður sem
hefði spillt friðnum. „En þannig æxl-
uðust málin að hann varð eina vonin
um frið á svæðinu,“ sagði Musharraf.
Efnahagsmálaráðherra Palestínu-
manna, Mazen Sinokrot, hvatti í gær
til þess á ráðstefnu um efnahagsmál í
Davos í Sviss að Hamas fengi tæki-
færi og spáði því að samtökin myndu
draga úr ofstækinu gegn Ísrael þeg-
ar þau tækju við völdum. Mohamm-
ad Mustafa, einn af ráðgjöfum Abbas
forseta, var í fylgdarliði Sinokrot. Á
fréttamannafundi var spurt hvort til
þess gæti komið að Hamas yrði
stjórnarflokkur í Palestína en geng-
ist síðan við ábyrgð á tilræði sjálfs-
morðingja gegn Ísraelum.
„Við skulum ekki gera ráð fyrir
því að þeir hefji störf í ríkisstjórn og
fari síðan og sprengi í Ísrael,“ sagði
Mustafa. Sinokrot minnti á að Frels-
isamtök Palestínu (PLO), regnhlífar-
samtök flestra baráttuhópa Palest-
ínumanna, hefðu eitt sinn verið talin
hermdarverkasamtök en þau hefðu
síðar sest að samningaborði með Ísr-
aelum.
Starfandi utanríkisráðherra Ísra-
els, Tzipi Livni, hvatti í gær erlend
ríki til að viðurkenna ekki stjórn með
Hamas á ráðherrastólum og sagði að
kosningar ætti ekki að nota til að
„hvítþvo“ hryðjuverkamenn. Livni
sagði að með brottförinni frá Gaza í
fyrra hefðu Ísraelar opnað dyrnar að
friðarumleitunum en með því að
kjósa Hamas hefðu Palestínumenn
skellt dyrunum aftur.
Ísraelsher er í viðbragðsstöðu
vegna spennuástandsins. Voru alls
15 Palestínumenn, sem taldir eru
vera liðsmenn herskárra hópa, hand-
teknir aðfaranótt föstudags í skyndi-
áhlaupi á Vesturbakkanum. Átta
þeirra voru liðsmenn Hamas.
Fatah-menn ósáttir og
krefjast afsagna leiðtoga
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Spáð að Hamas reyni að hefja óbeinar viðræður við Ísraela
Reuters
Reiðir Fatah-menn brenna græna fána Hamas-samtakanna á mótmæla-
fundi í Khan Yunis, sunnan við Gaza-borg, í gær. Fagnandi Hamas-menn
hófu í gær að mála moskur í Jerúsalem grænar til að minna á sigurinn.
Berlín. AP. | Johannes Rau, fyrrver-
andi forseti Þýskalands, lést í gær,
en hann var 75 ára að aldri. Hann
hafði átt við heilsuleysi að stríða um
langt skeið.
Rau var forseti Þýskalands á ár-
unum 1999–2004 og heimsótti Ísland
í júlí 2003. Hans er helst minnst fyr-
ir þá áherslu sem hann lagði á að
styrkja tengsl Þýskalands og Ísr-
aels en árið 2000 flutti hann fyrstur
manna ræðu á þýsku í ísraelska
þinginu, en í ræðu sinni bað hann
gyðinga fyrirgefningar á glæpum
þýskra nasista í síðari heimsstyrj-
öldinni.
Rau var áður borgarstjóri í Wup-
pertal og síðan ríkisstjóri í Norður
Rín-Westfalen um tveggja áratuga
skeið. Hann var kanslaraefni jafn-
aðarmanna í þingkosningum í
Þýskalandi 1987 en tapaði þá fyrir
Helmut Kohl og hann tapaði einnig í
forsetakosningum 1994. Fimm árum
síðar var hann hins vegar kjörinn
forseti landsins, en þá voru jafnað-
armenn komnir til valda í Þýska-
landi.
Johannes Rau látinn
BLÓM voru lögð á skópör úr járni
við bakka Dónár í Búdapest í Ung-
verjalandi í gær til minningar um
þá sem fórust í helför nasista gegn
gyðingum í síðari heimsstyrjöld-
inni. Um var að ræða táknrænt
listaverk til minningar um þrjátíu
gyðinga sem ungverskir nasistar
drápu við Dónárbakka og fleygðu
svo í fljótið.
Þess var minnst víða í Evrópu í
gær að sextíu og eitt ár er liðið frá
því að bandamenn komu til Ausch-
witz-búðanna í Póllandi, eins helsta
vettvangs ódæða nasista. Alls er
talið að sex milljónir gyðinga hafi
verið drepnar í helför nasista auk
rúmlega milljónar sígauna.
AP
Fórnarlamba helfararinnar minnst
Ramallah, Dubai, Kaíró. AFP. | „Póli-
tískur jarðskjálfti skekur heimshlut-
ann,“ sagði í fyrirsögn aðalfréttar
palestínska dagblaðsins Al-Quds í
gær en fréttinni fylgdu ljósmyndir
af fylgjendum Hamas-samtakanna
sem í fyrradag komu grænum fána
Hamas fyrir á stöng fyrir framan
palestínska þingið í Ramallah.
„Hinir raunverulegu sigurvegarar
í kosningunum eru palestínska þjóð-
in sem hefur tryggt friðsamleg
valdaskipti með kosningum sem
voru frjálsar, heiðarlegar og gagn-
sæjar,“ sagði Al-Quds í leiðara.
Blaðið Al-Hayat Al-Jadida, sem er
opinbert málgagn heimastjórnar
Palestínu, kallaði eftir samsteypu-
stjórn Hamas og Fatah og lýsti
áhyggjum sínum af þeim möguleika
að við taki bókstafstrúarmenn í lík-
ingu við þá sem unnu sigur í kosn-
ingum í Alsír 1992 og réðu ríkjum í
Afganistan í tíð talibanastjórnar-
innar 1996–2001. Á sínum tíma voru
úslitin í Alsír ógilt til að hindra
valdatöku bókstafstrúarmanna og
við tók blóðugt borgarastríð.
„Með myndun þjóðstjórnar, sem
forsetinn [Mahmoud Abbas] færi
fyrir, væri hægt að leysa aðsteðjandi
vanda og komast hjá því að sama
staða komi upp hér og í Alsír og í
kjölfar valdatöku talibana,“ sagði
blaðið. Dagblöð annars staðar í
arabaheiminum voru á svipuðum
nótum, flest lýstu sigri Hamas á
miðvikudag sem pólitískum land-
skjálfta en sögðu jafnframt að
óvissutímar væru framundan. Al-
Hayat spurði hvernig Hamas myndu
bregðast við sigri, hafandi það í huga
að samtökin hefðu ávallt verið í
stjórnarandstöðu og hefðu aldrei
þurft að svara tilteknum spurning-
um þess vegna. Og Al-Khaleej í
Sameinuðu arabísku furstadæm-
unum kallaði sigur Hamas „lýðræð-
islegt tsunami“ sem markaði „raun-
verulegt valdarán, en með liðsinni
kjörkassanna“.
Helstu leiðtogar arabaríkjanna
hvöttu Hamas til að hefja friðar-
viðræður við Ísraela. Voru slík um-
mæli m.a. höfð eftir Hosni Mubarak,
forseta Egyptalands.
„Lýðræðis-
legt tsunami“
Stokkhólmur. AFP. | Níu manns létu
lífið og 44 slösuðust þegar fólksflutn-
ingabifreið fór út af vegi við bæinn
Arboga í Svíþjóð í gær.
Arboga er um 150 km vestur af
Stokkhólmi en fólkið var á leið til
höfuðborgarinnar. Eru tildrög slyss-
ins ekki ljós en haft er eftir vitni, að
bílnum hafi smám saman verið ekið
nær og nær vegarbrúninni og þar til
hann steyptist út af veginum og nið-
ur brattan bakka. Lagðist þakið
saman er bíllinn stöðvaðist á hvolfi
og var erfiðleikum bundið að ná far-
þegunum út. Af þeim, sem slösuðust,
voru fjórir taldir vera í lífshættu.
Níu fórust í Svíþjóð
Reuters
EVO Morales, sem sór embættiseið
sem forseti Suður-Ameríkuríkisins
Bólivíu um síðustu helgi, hefur lækk-
að laun sín um meira en helming.
Eru þau nú rétt rúmlega 1.800 doll-
arar á mánuði, um 110.000 íslenskar
krónur. Ákvörðun forsetans hefur í
för með sér að laun allra embættis-
manna í Bólivíu lækka, en lög lands-
ins kveða á um að enginn opinber
starfsmaður megi þéna meira en for-
seti landsins.
Í frétt BBC kemur fram að Mor-
ales hafi sagt að með peningunum
sem þessi ákvörðun sparaði yrði
hægt að fjölga starfandi læknum og
kennurum hjá hinu opinbera. Gaf
forsetinn í skyn að hann teldi rétt af
fulltrúum á þinginu í Bólivíu að
fylgja fordæmi hans.
Stendur við kosningaloforð
um launalækkun
Morales hafði í kosningabarátt-
unni vegna forsetakosninganna lýst
því yfir að hann myndi lækka laun
forsetans um helming ef hann næði
kjöri. En Morales gengur lengra en
hann hafði lýst yfir, staðreyndin er
sú að hann hefur nú lækkað laun for-
seta Bólivíu um 57%.
Morales er fyrsti indíáninn sem
kosinn er forseti Bólivíu en indíánar
eru meira en helmingur þjóðarinnar.
Hann ræktaði áður kókalauf og hef-
ur heitið því að berjast gegn spill-
ingu, skattleggja hina ríku og þjóð-
nýta orkufyrirtæki.
Reuters
Evo Morales, forseti Bólivíu, með
skál fulla af dollurum. Þetta eru þó
ekki þeir peningar sem sparast við
launalækkunina sem hann hefur
ákveðið til handa sjálfum sér.
Morales
lækkar laun
sín um 57%
Um leið lækka
laun allra
embættismanna