Morgunblaðið - 28.01.2006, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2006 63
DAGBÓK
Nýtt ár, ár hundsins, gengur í garð íKína á morgun, sunnudag, og af þvítilefni ætlar kínverska heilsulindinHeilsudrekinn að standa fyrir heilsu-
dögum um helgina. Dong Qing Guan, eigandi
Heilsudrekans, sagði í samtali við Morgunblaðið
að heilsudagarnir myndu hefjast í dag með sýn-
ingu á wushu, sem er hefðbundin kínversk leik-
fimi. Wushu er reyndar betur þekkt sem kung-
fu á Vesturlöndum en fram munu koma hópar á
öllum aldri en fólk frá aldrinum fjögurra ára og
upp úr iðkar nú þessa leikfimi. Auk þess mun
verða sýnt tai-chi, sem eru æfingar sem þjálfa í
senn huga og líkama.
Á sunnudeginum, nýársdegi Kínverja, stendur
Heilsudrekinn fyrir kynningu á kínverskri
heilsumenningu. Þar verður hægt að fá upplýs-
ingar um leiðir til betra lífs að hætti Kínverja og
benti Dong á að Kínverjar væru ekki ólíkir Ís-
lendingum að því leyti að þegar nýtt ár gengi í
garð færu margir að huga að heilsunni og því
væri við hæfi að kynna þjónustu Heilsudrekans.
Einnig yrði temenning Kínverja sérstaklega
kynnt en Dong sagði að Íslendingar væru ekki
nægilega miklir tedrykkjumenn. Hún benti á að
te væri mjög gott fyrir heilsuna og að Kínverjar
hefðu drukkið te sér til heilsubótar í þúsundir
ára. Á meðan á heilsudögunum stendur mun
fara fram sýning á kínverskri list þar sem leitast
verður við að sýna sögu og menningu Kínverja.
Til sýnis verða ýmsir listmunir frá Kínverskum
listamönnum ásamt því sem kínverskt silki verð-
ur sýnt ásamt sögu þess. Dong sagði að feng-
shui væri einnig stór hluti af kínverskri menn-
ingu og yrði það kynnt rækilega á heilsudög-
unum. Hugtakið feng-shui er sennilega kunnugt
mörgum Íslendingum en sú tækni á rætur sínar
að rekja til Kína. Margir Íslendingar hafa nýtt
þessa tækni til að skipuleggja heimili sín en með
henni er leitast við að lifa í samhljómi við um-
hverfi sitt.
Dong sagði að á þessum átta árum sem
Heilsudrekinn hefði starfað hefðu henni þótt
ánægjulegast að kenna fólki að slaka á og hugsa
vel um líkamann. Hún sagði að Íslendingar
þyrftu að læra betur að hugsa um heilsuna og
dekra við sig. Það væri misskilningur að alltaf
þyrfti að fara út af heimilinu til að slaka á, heim-
ilið væri besti staðurinn ef notast væri við réttu
aðferðirnar. Aðspurð um hvort að hún teldi Ís-
lendinga vera taugaspenntari en aðrar þjóðir
sagði Dong svo ekki vera, flestar nútíma þjóðir
lifðu hratt en mikilvægt væri að slaka á. Hún
sagði að Íslendingar yrðu opnari fyrir breyt-
ingum með hverju árinu sem liði og væru sífellt
að prófa nýjar aðferðir í heilsurækt á borð við
hefbundnar kínverskar lækningar, nálastungur
og leikfimi.
Heilsudagarnir verða í húsnæði Heilsudrek-
ans, í Skeifunni 3j, um helgina og verður opnað
klukkan níu.
Heilsurækt | Heilsulindin Heilsudrekinn kynnir starfsemi sína
Heilsudagar í Heilsudrekanum
Dong Qing Guan er
fædd í Shanxi-héraðinu
í austurhluta Kína. Hún
fluttist til Íslands fyrir
fjórtán árum og hefur
rekið Heilsudrekann
síðan 1998. Hún nam
íþrótta- og heilsufræði í
háskóla í Peking í Kína
og kenndi við kennara-
háskóla þar í landi áður
en hún fluttist til Ís-
lands.
Brúðkaup | Gefin voru saman 29.
október í Dómkirkjunni af sr. Lilju
Kristínu Þorsteinsdóttur þau Guðrún
Helgadóttir og Grímur Sigurðarson.
Heimili þeirra er í Aðalstræti 9,
Reykjavík.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Ljósmynd/Svipmyndir
Hlutavelta | Þessir duglegu strákar,
Hjörtur Ingason, Bjarnar Pétursson
og Örvar Svavarsson, söfnuðu flöskum
að andvirði 3.300 kr. til styrktar Rauða
krossi Íslands.
Margir möguleikar.
Norður
♠D109862
♥10 S/NS
♦D873
♣G9
Vestur Austur
♠ÁG ♠5
♥G6 ♥K942
♦K62 ♦ÁG1095
♣KD10543 ♣872
Suður
♠K743
♥ÁD8753
♦4
♣Á6
Hvernig er best að spila fjóra spaða í
suður með laufkóngnum út?
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 hjarta
2 lauf Dobl * 2 tíglar 2 spaðar
3 tíglar 4 spaðar Allir pass
Spilið kom upp í 6. umferð Reykja-
víkurmótsins og varð Ómari Olgeirs-
syni tilefni til heilabrota: „Auðvitað
dugir að svína hjartadrottningu, en
maður vill helst ekki setja öll eggin í
sömu körfuna og það virðist eðlilegra
að reyna að trompa hjartað frítt,“
skrifar Ómar í tölvupósti. Hann kvaðst
hafa hugsað sig í hel og klúðrað spilinu,
makker sínum til lítillar gleði.
Hermann Lárusson spilaði þannig:
Hann drap á laufás, tók hjartaás og
stakk hjarta. Spilaði svo spaðadrottn-
ingu úr borði. Vestur tók strax á ásinn
og þá átti Hermann þrjár innkomur
heim til að fría hjartað og nýta það. En
vestur gat banað spilinu með því dúkka
spaðadrottningu – þá vantar eina inn-
komu.
Ómar fann á endanum bestu spila-
mennskuna (á leiðinni heim). Hún er sú
að stinga hjarta strax og spila síðan
tígli, en ekki trompi. Þannig tryggir
suður sér þrjár innkomur til að vinna
úr hjartanu, eða svigrúm til að trompa
þrjá tígla.
Skoðum málið. Væntanlega tekur
austur tígulslaginn og trompar út. Suð-
ur lætur lítið tromp og kemst þá heim á
spaðakóng ef vestur tekur á ásinn og
spilar meiri spaða. Og ef vestur dúkkar
er samgangurinn opinn til að trompa
tígul og hjarta á víxl.
Þetta er lúmskt spil.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Bónusferðir eldri borgara
VIÐ verðum að þakka það sem vel
er gert. Ég bý í blokk fyrir eldri
borgara í Reykjavík.
Bónus býður okkur upp á rútu-
ferðir einu sinni í viku til að versla.
Við fáum hjálp hjá þessum góðu bíl-
stjórum til að koma vörunum í bílinn
og eins þegar heim er komið, þá taka
þeir innkaupapokana og setja þá við
anddyrið, alveg meiri háttar þjón-
usta.
Bæði ég og fleiri eldri borgarar
værum illa stödd ef þessarar þjón-
ustu nyti ekki við.
Stjórnendur Bónuss og ekki síst
bílstjórarnir, hafið bestu þökk fyrir.
Þakklátur
eldri borgari.
Að halda á barni undir skírn
NÝLEGA var sýnt í fjölmiðlum frá
skírn danska prinsins í Danmörku.
Fannst mér ömurlegt að sjá hvernig
haldið var á barninu undir skírn. Það
er lærdómur að halda á barni undir
skírn og skiptir miklu máli hvernig
það er gert. Barnið er klætt í fal-
legan skírnarkjól sem þarf að fá að
njóta sín, bæði við skírnarathöfnina
og í myndatökunni. Þegar mitt
fyrsta barn var skírt sagði prest-
urinn að hann mundi ekki skíra
barnið fyrr en ég hefði lært að halda
rétt á barninu og kenndi hann mér
það. Finnst mér að prestar ættu að
kenna þeim sem heldur á barni und-
ir skírn hvernig best sé að gera það.
Húsmóðir.
Hringur í óskilum
GULLHRINGUR 14 karöt, með
steini, fannst á gangstíg að mótum
Jaðarsels og Jöklasels að morgni 25.
janúar. Upplýsingar í síma 661 4414.
Minnislykill í óskilum
MINNISLYKILL (USB-tengi) á
svartri hálsreim fannst á bílastæð-
inu við Fossvogsspítala sl. mánudag.
Uppl. í síma 695 6813.
Veski í óskilum
KRAKKA- eða unglingaveski fannst
í Söluturninum Skara á Seltjarn-
arnesi.
Upplýsingar í síma 561 1250 eða á
staðnum.
Kettlingar fást gefins
GULLFALLEGAR kisusystur óska
eftir góðum framtíðarheimilum.
Upplýsingar í síma 553 7054.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
er flutt á Laugaveg 56.
Útsala og fjöldi opnunartilboða!
Verið velkomin.
Laugavegi 56
eignamidlun@eignamidlun.is www.eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Traustur kaupandi óskar eftir 250-300 fm einbýlishúsi
á einhverju framantaldra svæða. Staðgreiðsla í boði.
Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson.
EINBÝLISHÚS Í VESTURBORGINNI,
SKERJAFIRÐI EÐA FOSSVOGI ÓSKAST
Skráning er hafin
á þriggja kvölda námskeið um sögu gyðingdóms, kristni og íslam
í Hafnarfjarðarkirkju. Rakin er saga eingyðistrúarinnar frá upphafi
til okkar daga í máli og myndum og spáð í stöðu heimsmálanna í
dag á grundvelli þess.
Námskeiðið er haldið dagana 9., 16. og 23. febrúar.
kl . 20.00 - 21.30
Leiðbeinandi á
námskeiðinu er
sr. Þórhallur
Heimisson,
prestur við
Hafnarfjarðarkirkju
SAGA
EINGYÐISTRÚARINNAR
ÞRIGGJA KVÖLDA NÁMSKEIÐ UM GYÐINGDÓM KRISTNI
OG ÍSLAM Í HAFNARFJARÐARKIRKJU.
Upplýsingar og skráning á
thorhallur.heimisson@kirkjan.is
Erum að leita að verkum
eftir gömlu meistarana
Áhugasamir sendi til augldeildar Mbl.
eða í box@mbl.is merkt: „M - 18140“