Morgunblaðið - 28.01.2006, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2006 35
UMRÆÐAN
REYKJAVÍK er höfuðborg okkar
Íslendinga. Við erum öll stolt af borg-
inni okkar við Sundin og viljum veg
hennar sem mestan. Á tímum al-
þjóðavæðingarinnar
þarf Reykjavíkurborg
að laga sig að nýjum
kröfum og breyttum að-
stæðum. Í því felst að
hún þarf að standast
borgum í öðrum lönd-
um snúninginn í síh-
arðnandi samkeppni
um íbúana og þarf því
að endurskilgreina hlut-
verk sitt sem öflugur og
lifandi þjónustuaðili
sem starfar í þágu íbú-
anna – fólksins í borg-
inni. Þar er verk að
vinna, því þótt Reykja-
vík standi að mörgu
leyti vel er fjölmargt
sem betur mætti fara
og við blasa augljós
tækifæri til að skapa
nútímalega heimsborg
með þægilegum bæj-
arbrag þar sem okkur
getur öllum liðið vel og
verið örugg. Við þurfum
að koma Reykjavík í
fremstu röð. Ég vil að
Reykjavík verði fyrsta
flokks borg.
Allir Reykvíkingar mega taka þátt
í opnu prófkjöri Framsóknarflokks-
ins sem fram fer í Laugardalshöll í
dag. Framsóknarflokkurinn býður þá
fram undir eigin merkjum; merkjum
B-listans í borgarstjórn í fyrsta sinn í
sextán ár og kostar því kapps að sem
flestir borgarbúar taki þátt í að móta
kraftmikinn og sigurstranglegan
framboðslista af hálfu miðjuaflanna í
borgarstjórnarkosningunum nú í vor.
Ég býð mig fram til forystu á þess-
um tímamótum. Framundan eru
spennandi tímar. Margir hafa haft á
orði að stjórnmálin hafi ekki fylgt
kalli tímans og að margir myndu
frekar vilja kjósa einstaklinga fremur
en flokka í kosningum. Opið prófkjör
er lýðræðisleg leið til þess að velja
fólkið sem skipa á framboðslistana;
þar eiga borgarbúar allir rétt á að
taka þátt og ég er sannfærður um að
þeir muni taka því góða boði fagn-
andi.
Ég skynja ákveðin vatnaskil í borg-
armálunum. Það er þörf fyrir breyt-
ingar; þörf fyrir öðruvísi nálgun og
nýjar hugmyndir. Til þess að góður
árangur náist, þurfum við öll að leggj-
ast á eitt. Við höfum góðar hug-
myndir og við viljum koma þeim til
framkvæmda. Saman getum við náð
árangri. Saman getum
við breytt borginni okk-
ar og búið til fyrsta
flokks Reykjavík, nú-
tímalega heimsborg þar
sem fólkið er í fyr-
irrúmi.
Prófkjörsbaráttan
undanfarnar vikur hef-
ur verið ákaflega
skemmtileg og gefandi.
Þennan tíma hef ég
nýtt til þess að setja
fram hugmyndir mínar
í ræðu og riti en fyrst
og fremst til þess að
tala við borgarbúa. Ég
hef kynnst ótalmörgum
og hvarvetna fundið að
Reykvíkingar hafa
brennandi áhuga á
sameiginlegum mál-
efnum okkar borgarbúa
og heitar skoðanir á því
hvernig hægt er að
bæta þjónustuna við
barnafjölskyldur og
eldri borgara; hvernig
hægt er að leysa um-
ferðarhnútana; hvað
ber að gera og hvað að
varast í skipulagsmálum og þannig
mætti áfram telja.
Ég lagði af stað í þessa baráttu
með góðum hópi fjölskyldu og vina
með bjartsýni og jákvæðni að leið-
arljósi. Það hefur verið ómetanlegt að
sjá hópinn stækka dag frá degi þegar
nýir stuðningsmenn og samherjar
gefa sig fram, sýna viljann í verki og
leggjast með okkur á árarnar. Ég er
afar þakklátur fyrir allan þann mikla
stuðning og velvilja sem ég hef fundið
fyrir undanfarnar vikur.
Nú er komið að þáttaskilum í bar-
áttunni og lokaspretturinn einn eftir
Ég treysti á þinn stuðning í prófkjöri
okkar framsóknarmanna sem fer
fram í Laugardalshöll í dag. Hann
skiptir miklu máli.
Fyrsta flokks
Reykjavík
Eftir Björn Inga Hrafnsson
Björn Ingi Hrafnsson
’Ég skynjaákveðin vatnaskil
í borgarmál-
unum. Það er
þörf fyrir breyt-
ingar; þörf fyrir
öðruvísi nálgun
og nýjar hug-
myndir.‘
Höfundur er aðstoðarmaður
forsætisráðherra og býður sig fram í
1. sæti á lista Framsóknarflokksins til
borgarstjórnar.
Prófkjör Reykjavík
ÞAÐ ER áreiðanlega ekkert
grín að reka alvöru spaugstofu ár-
um saman svo öllum vel líki.
Í upphafi var orðið, innblást-
urinn ósvikinn, uppátækin frum-
leg, hugdetturnar magnaðar,
ímyndunaraflið óbeislað, frjótt og
ferskt, leikurinn bráðlifandi, orða-
skiptin meinfyndin og eftirherm-
urnar velheppnaðar.
En nú er Snorrabúð stekkur.
Spaugstofan má svo sannarlega
muna sinn fífil fegri. Nú er það
engu líkara en þetta sé orðið eins
og hver önnur færibandavinna
sem þessir atvinnuspaugarar
þurfa að drífa af í einum grænum
hvelli fyrir hverja einustu helgi.
Jónas heitinn Árnason frá Múla
sem skrifaði á sínum tíma Bæj-
arpóstinn, pistil er birtist daglega í
Þjóðviljanum, sagði einhverju
sinni við kunningja sinn að sér
fyndist þetta oft vera eins og að
pissa, þegar manni væri ekki mál.
Ég er alls ekki frá því að líkt sé á
komið fyrir leikhöfundum í Spaug-
stofunni. Væri ekki ráð að hægja
örlítið á ferðinni og sýna sig aðeins
hálfsmánaðarlega á skjánum í
staðinn fyrir að gera það vikulega?
Þannig væri ef til vill smávon til
þess að þeir gætu endurheimt
neistann, já, gamla neistann sem
virðist nú því miður að vera um
það bil að slokkna.
Satt best að segja sakna ég
gömlu alvöru-Spaugstofunnar
meðan hún var upp á sitt besta. Nú
ber ekki á öðru en að annað hljóð
sé komið í strokkinn, ankannalegt
og hvimleitt tómahljóð, sem þessir
gömlu, lúnu og mér liggur við að
segja útbrunnu skemmtikraftar
megna ekki með nokkru móti að
losa sig við.
Ekkert púður lengur, engin
stemmning og jafnvel rónarnir
sem voru einu sinni svo skemmti-
legir eru svipir hjá sjón og hvað
stendur þá eftir, nú eintóm aula-
fyndni sem engan gleður, að
minnsta kosti ekki hugsandi mann.
En það er huggun harmi gegn
að þeir vinna sér þó fyrir salti í
grautinn og munu áreiðanlega
ekki hrekjast út á vonarvöl á næst-
unni.
Halldór Þorsteinsson
Spaugsnauðir
Höfundur er skólastjóri
Málaskóla Halldórs og
fyrrverandi leikdómari.
OFT ER talað um hjarta borgar og
er þá átt við svæðið þar sem miðstöð
menningar og versl-
unar er. Á síðustu ár-
um hafa borgaryf-
irvöld í Reykjavík,
með góðum árangri,
unnið að því að gera
miðborgina aftur að
þessum miðpunkti í
líkama borgarinnar.
Við ramman reip var
að draga. Sjálfstæð-
ismenn höfðu skipu-
lagt fyrstu stóru
verslunarmiðstöð
landsins og Borg-
arleikhúsið, með
Leikfélagi Reykjavík-
ur sem í nær hundrað ár hafði haft
aðsetur við Tjörnina, fjarri miðborg-
inni. Einnig ætluðu þeir að flytja höf-
uðstöðvar Borgarbókasafnsins á
sama stað. Í tíð Reykjavíkurlistans
hefur þessari þróun verið snúið við.
Borgarbókasafn, Ljósmyndasafn og
Listasafn Reykjavíkur mynda nú
menningarkjarna á hafnarbakkanum.
Brátt mun svo glæsilegt tónlistarhús
rísa þar.
Listaháskólinn
Kynnt hefur verið skipulag sem
gerir ráð fyrir uppbyggingu á reit
suðvestan væntanlegs tónlistarhúss,
norðan fyrrnefnds menn-
ingarkjarna. Miklar um-
ræður hafa farið fram um
hvar væntanlegri nýbygg-
ingu Listaháskólans verði
fundinn staður. Í mínum
huga er þessi reitur í
næsta nágrenni safnanna
tilvalinn staður fyrir skól-
ann. Dæmi um sambæri-
lega staðsetningu æðstu
listaskóla hvers lands er
að finna í mörgum höf-
uðborgum Vesturlanda.
Starfandi listamenn
Í dag eru í miðborginni
bæði sýningarsalur og verkstæði
Grafíkfélagsins sem og verkstæði og
vinnustofur Myndhöggvarafélagsins.
Hvoru tveggja í húsnæði í eigu borg-
arinnar. Nú stendur fyrir dyrum að
aðstaða félaganna verði færð um set.
Hugmyndir hafa verið uppi um að
finna þeim stað á Korpúlfsstöðum og
þar verði auk þess fleiri vinnustofur.
Þrátt fyrir að stjórn Sambands ís-
lenskra myndlistarmanna fagni fjölg-
un vinnustofa eru ýmsir sem setja
spurningamerki við að færa starfsemi
félaganna úr miðborginni. Undirrituð
er ein þeirra sem telur það ekki fýsi-
legan kost að finna þeim stað í útjaðri
borgarinnar. Ein aðalástæðan er að
meira þarf til en opinberar menning-
arstofnanir til að listalífið blómstri í
miðborginni. Þar þarf einnig að vera
aðsetur starfandi listamanna. Nú er
tækifæri fyrir borgina að ekki aðeins
bjóða Listaháskólanum lóð í miðborg-
inni heldur og einnig að koma að
byggingu skólans með því að fá þar
inni fyrir starfsemi umræddra félaga.
Nábýli nemenda við starfandi lista-
menn væri væntanlega beggja hagur.
Borgin ætti og að gera meira í mið-
borginni fyrir starfandi listamenn. Á
væntanlegu nýbyggingasvæði á
Slippsvæðinu væri hægt að reisa hús-
næði með vinnustofum fyrir lista-
menn í öllum greinum lista. Það frjóa
líf sem skapaðist í kringum slíka lif-
andi listamiðstöð væri dágóð vítamín-
sprauta fyrir miðborgina.
Vítamín fyrir lista-
lífið í miðborginni
Eftir Guðrúnu Erlu
Geirsdóttur, Gerlu
Guðrún Erla
Geirsdóttir
’Það frjóa líf sem skap-aðist í kringum slíka lif-
andi listamiðstöð væri dá-
góð vítamínsprauta fyrir
miðborgina.‘
Höfundur er kennari og myndhöfundur
sem gefur kost á sér í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar og biður um 4. til 6. sæti.
Prófkjör Reykjavík
Þriðjudaginn 10. janúar í Vestmannaeyjum kl. 20.00
Miðvikudaginn 11. janúar í Reykjanesbæ kl. 20.00
Fimmtudaginn 12. janúar á Akranesi kl. 20.00
Laugardaginn 21. janúar á Akureyri kl. 10.30
Laugardaginn 21. janúar í Ólafsfirði kl. 14.00
Þriðjudaginn 24. janúar á Sauðárkróki kl. 20.00
Miðvikudaginn 25. janúar í Borgarnesi kl. 20.00
Fimmtudaginn 26. janúar á Selfossi kl. 20.00
Laugardaginn 28. janúar í Reykjavík kl. 13.15
Fimmtudaginn 2. febrúar á Húsavík kl. 20.00
Laugardaginn 4. febrúar á Ísafirði kl. 10.30
Mánudaginn 6. febrúar í Grundarfirði kl. 20.00
Miðvikudaginn 8. febrúar á Höfn kl. 20.00
Fimmtudaginn 9. febrúar á Hellu kl. 20.00
Miðvikudaginn 15. febrúar í Garðabæ kl. 20.00
Fimmtudaginn 16. febrúar á Patreksfirði kl. 12.00
Fimmtudaginn 16. febrúar í Búðardal kl. 17.00
Laugardaginn 18. febrúar á Egilsstöðum kl. 10.30
Laugardaginn 18. febrúar í Fjarðabyggð kl. 13.30
Mánudaginn 20. febrúar á Blönduósi kl. 20.00
Þriðjudaginn 21. febrúar í Mosfellsbæ kl. 20.00
Miðvikudaginn 22. febrúar í Grindavík kl. 20.00
Formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir H. Haarde utanríkisráðherra,
mun á næstu mánuðum fara um landið og efna til funda með
trúnaðarmönnum flokksins, formönnum og stjórnarmönnum
flokksfélaga, fulltrúaráða og kjördæmisráða, sveitarstjórnar-
mönnum og þingmönnum.
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 105 Reykjavík
sími 515 1700 www.xd.is
Formaður
Sjálfstæðisflokksins
á ferð um landið
Fundarstaðir verða auglýstir í fundarboði á hverjum stað.