Morgunblaðið - 19.04.2007, Page 58

Morgunblaðið - 19.04.2007, Page 58
58 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÁSKIRKJA: | Barnaguðsþjónusta kl. 11 í umsjá sóknarprests og leiðtoganna Elías- ar og Hildar Bjargar. Síðasta samvera vetr- arins. BORGARNESKIRKJA: | Guðsþjónusta kl 13.30. Barnakór syngur undir stjórn Stein- unnar Árnadóttur. Sóknarprestur. BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi: | Fermingarmessa kl. 13.30. Gunnar Krist- jánsson sóknarprestur. BÚSTAÐAKIRKJA: | Samverustund í Bú- staðakirkju. Frá klukkan 12.45-13.15. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir leiðir samveruna. Renata Ivan organisti sér um undirleik. Svavar Knútur Kristinsson frístunda- og fé- lagsauðsráðgjafi í Þjónustumiðstöð Laug- ardals og Háaleitis talar og syngur. Tvö ungmenni Álfheiður Guðmundsdóttir og Jakob Gunnarsson syngja hvort sitt lagið. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: | Ferming- armessa kl. 14. Almennan safnaðarsöng leiða Anna Sigga og Carl Möller, en báðir prestarnir okkar, Hjörtur Magni Jóhanns- son og Ása Björk Ólafsdóttir, þjóna. Alt- arisganga. GLERÁRKIRKJA: | Skátamessa kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Allir vel- komnir. Fermingarmessa kl. 13.30. Fé- lagar úr Kór Glerárkirkju leiða söng. Org- anisti er Hjörtur Steinbergsson. Sr. Gunnlaugur og sr. Arnaldur þjóna. GRAFARVOGSKIRKJA: | Ferming kl. 10.30. Séra Vigfús Þór Árnason og séra Anna Sigríður Pálsdóttir. Nöfn ferming- arbarna er að finna á heimasíðu kirkj- unnar: grafarvogskirkja.is og einnig á síðu mbl.is/fermingar HALLGRÍMSKIRKJA: | Skátamessa kl. 11. Skátakórinn syngur. Margrét Tómasdóttir, skátahöfðingi flytur ræðu. Tónlist í umsjá skáta. Prestur sr. Birgir Ásgeirsson. HÁTEIGSKIRKJA: | Taizé-messa í kvöld kl. 20. Kyrrlát kvöldstund með bæna- og íhug- unarsöng, orði Guðs, fyrirbænum, handa- yfirlagningu og smurningu. Góð slökun í erli dagsins. Allir velkomnir. HVERAGERÐISKIRKJA: | Skátaguðsþjón- usta kl. 11. Skátar aðstoða við Guðsþjón- ustuna. Jón Ragnarsson. KÁLFATJARNARSÓKN: | Fermingarguðs- þjónusta í Kálfatjarnarkirkju kl. 11. KEFLAVÍKURKIRKJA: | Skátaguðsþjón- usta kl. 12.30. Skátar vinna sín skátaheit og að því loknu verður haldið í skrúðgöngu um bæinn. Prestur er sr. Skúli S. Ólafs- son. LANGHOLTSKIRKJA: | Fermingarmessa kl. 11 í umsjá sr. Guðnýjar Hallgrímsdóttir, prests fatlaðra. Organisti Jón Stefánsson. SELJAKIRKJA | Fjölskylduhátíð í Selja- hverfi. Skrúðganga frá Þín verslun kl. 13 og gengið til kirkju þar sem verður fjöl- skyldustund kl. 13.30. TORFASTAÐAKIRKJA | Fermingarmessa kl. 14. Fermd verður Kristín Karólína Bjarnadóttir, Brautarhóli Biskupstungum. Sóknarprestur. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: | Sunnudaga- skóli kl. 11. Síðasta skiptið. Hanna Vil- hjálmsdóttir og María Rut Baldursdóttir segja börnunum sögur og stjórna söng. Að loknum er öllum boðið í grillaðar pylsur. Sóknarprestur. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: | Messa kl. 11. Barn borið til skírnar. Fermd verður Snædís Bára Þorsteinsdóttir Lágseyla 25. Kór kirkjunnar leiðir söng við undirleik Na- talíu Chow Hewlett organista. Meðhjálpari Ástríður Helga Sigurðardóttir. Sókn- arprestur. Jesús kom að luktum dyrum. (Jóh. 20.) Morgunblaðið/ÞÖKSólheimar í Grímsnesi. MESSUR / KIRKJUSTARF Á SUMARDAGINN FYRSTA Skátamessa í Hallgrímskirkju og hátíðahöld Skátamessa verður í Hallgrímskirkju sem hefst kl. 11 f.h. Fyrir messu kl. 10.30 munu skátar ganga fylktu liði frá Arnarhóli upp Skólavörðustíg að Hallgrímskirkju. Séra Birgir Ás- geirsson mun þjóna til altaris. Ræðumaður verður Margrét Tóm- asdóttir skátahöfðingi. Skátakórinn undir stjórn Margrétar Sigurð- ardóttur mun leiða sönginn. Hljóð- færaleikur: Kjartan Valdemarsson (orgel og píanó), Hjörleifur Valsson (fiðla), Gunnar Hrafnsson (kontra- bassi). Eftir hádegið munu skátafé- lögin í Reykjavík standa að og taka þátt í hátíðahöldum víða um Reykja- vík í samstarfi við félagsmiðstöðvar ÍTR, íþróttafélögin, kirkjur og skóla. Byggðasafnið í Skógum Hin árlega söngstund í Skógum verður á sumardaginn fyrsta kl. 20.30. Dagskráin hefst með stuttri helgistund í Skógakirkju sem séra Haraldur M. Kristjánsson, prófast- ur í Vík, annast. Síðan verður komið saman í gamla barnaskólahúsinu frá Litla-Hvammi í Mýrdal, þar sem gömul ættjarðar- og sumarlög verða leikin og sungin. Kristín Björnsdóttir organisti annast undir- leik og stjórnar almennum söng við- staddra, með kórfólk úr Mýrdal og undan Eyjafjöllum í broddi fylk- ingar. Eftir að raddböndin hafa ver- ið þanin verður boðið upp á kaffi og pönnukökur í Samgöngusafninu, í boði safnsins og kórfélaga. Mik- ilvægt er að allir sem unna söng í sumarbyrjun láti sig ekki vanta á þetta árvissa söngkvöld í Skógum. Fjölmennum. Kaffihúsakór Landakirkju syngur inn gleðilegt sumar í Grafarvogskirkju Kaffihúsakór Landakirkju í Vest- mannaeyjum syngur inn gleðilegt sumar í Grafarvogskirkju í Reykja- vík. Kaffihúsamessan verður í Graf- arvogskirkju í Safnaðarheimilinu niðri klukkan fjögur. Söngurinn er öflugur gospelsöngur undir stjórn Óskars Sigurðssonar frá Hvassa- felli. Í kaffihúsamessunni er einnig lesið úr guðspjalli og prestar Landakirkju og Grafarvogskirkju leiða stundina með prédikun orðs- ins, bæn og blessun. Sköpuð er um- gjörð kaffihúss með því að fólkið sit- ur við borð og kertaljós, slakar á og fær sér kaffi og kleinur eða vöfflur á meðan stundin líður. Prédikun prestanna hefur oftar en ekki verið samtalsprédikun eða samtal prédik- arans við söfnuðinn. www.valholl.is www.nybyggingar.is Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00 Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. Sími 588 4477 • Þriðja hæð 346 fm efsta hæð, vandaðar og glæsilegar skrifstofur ásamt fundaraðstöðu og opnu rými. Hæðin er inndregin með mjög góðum svölum. • Jarðhæð 250 fm. og 162 fm. skrifstofur, mikið opið rými. Sameiginlegt eldhús ásamt mötuneyti. Til leigu - Lágmúli - skrifstofur Glæsilegt húsnæði, mjög góð staðsetning. Óskað er eftir tilboði í leigu. Upplýsingar veitir Magnús Gunnarson í símum 588 4477 og 822 8242 Björn S Ingólfsson. Sölufulltr. S 8600-299, bjorn@remax.is Björgvin Pétursson. Sölufulltr. S 8200-747, bjorgvin@remax.is Rúnar S Gíslason. Hdl og löggildur fasteignasali. STJARNAN RE/MAX Stjarnan kynnir tvö sumarhús að Lambholti 10 og 12 Opið hús í dag kl. 15-17 Leiðarvísir: Keyra eftir vegi nr. 35 Biskupstungnabraut. Fara inn á veg nr. 351 Búrfellsveg. Keyra framhjá Hitaveitu, þegar komið að Hæðarenda skal fylgja eftir RE/MAX merkingu. RE/MAX fána. Frá Þingvallavegi nr. 36. Fara inn á veg nr. 351 Búrfellsveg við Ásgarðsland. Fara fram hjá kirkjunni við Búrfell. Þegar komið að Hæðarenda skal fylgja eftir RE/MAX merkingu. RE/MAX fána. Takið auglýsinguna með ykkur. Vandað heilsárshús í landi Hæðarenda í Grímsnes- og Grafningshreppi á eins hektara eignarlóð 91,5 fm. Skilast full- búið að utan án verandar. Fjarri umferð á friðsælum stað með góðu útsýni til Ingólfsfjalls, Heklu og Eyjafjallajökuls. Hægt er að fá húsin afhent við kaupsamning og byrja að njóta þess í sumar að vera í sínu eigin sumarhúsi í fallegu veðri í hjarta suðurlands.Fullbúið einbýli, laust strax. Nýkomið glæsilegt nýtt, tvílyft einbýli m. innbyggðum bílskúr, samtals ca 235 fm. Húsið skiptist m.a. þannig: Stofa m. arni, 4 rúmgóð svefnherbergi, glæsilegt stórt eldhús m. borðstofu, tvö glæsileg baðherbergi o.fl. Flísar og parket á gólfum. Góð stað- setning og útsýni. Garður frágenginn. Sjón er sögu ríkari. Myndir á mbl.is. V. 68 millj. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Asparhvarf - Kóp. nýtt - glæsilegt Þróunarsamvinnustofnun Íslands og Kristniboðssambandið undirrituðu fyrir stuttu samkomulag um upp- byggingu fjögurra framhaldsskóla í Pókothéraði í Kenýa. Um er að ræða tveggja ára áætlun sem hljóð- ar upp á 10,75 milljónir, þar sem ÞSSÍ fjármagnar 60% af kostnaðin- um en Kristniboðssambandið og samstarfsaðilar 40%. Ætlunin er að byggja þrjár heimavistir, tvær kennslustofur og fjóra matsali með eldunaraðstöðu. Tveir skólanna eru fyrir bæði kynin, einn fyrir drengi og einn fyrir stúlkur. ÞSSÍ styrkti uppbyggingu þriggja þessara skóla með 2,5 milljóna króna framlagi árið 2005 og var þeirri vinnu lokið í fyrra. Íslenskir kristniboðar hafa verið að störfum í Pókothéraði sem m.a. liggur meðfram landamærum Úg- anda, í tæp 30 ár. Þar hafa þeir tekið þátt í safnaðaruppbyggingu, fræðslu og margvíslegum þróunarverkefn- um og á tímum neyðaraðstoð. Starfið hefur vaxið gríðarlega og eru heimamenn búnir að taka við því að mestu leyti. Samið um uppbyggingu við fram- haldsskóla í Kenýa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.