Morgunblaðið - 01.05.2007, Page 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG ÆTTI AÐ ELDA
EITTHVAÐ Í KVÖLD...
SVONA FYRST ÉG
ER BÚINN AÐ SETJA Á
MIG HATTINN
MJÖG GÓÐ
RÖKHUGSUN
BLAA! KLÓR!
PABBI,
VEISTU HVAÐ?
ÉG OG
HOBBES
FÓRUM TIL
MARS Í DAG!
ER
ÞAÐ?
JÁ, VIÐ ÆTLUÐUM AÐ
FLYTJA TIL MARS VEGNA
ÞESS AÐ JÖRÐIN ER ORÐIN
SVO MENGUÐ. EN ÞEGAR
VIÐ KOMUMST AÐ ÞVÍ AÐ
MARSBÚAR BÚA Á MARS
ÞÁ FÓRUM VIÐ HEIM
ER ÞÉR
ILLA VIÐ
MARSBÚA?
NEI, ÞEIM
VAR ILLA VIÐ
OKKUR. ÞEIR
HAFA HALDIÐ
AÐ VIÐ ÆTLUÐ-
UM AÐ MENGA
MARS EINS OG
JÖRÐINA
AF
HVERJU
LYKTAR FÍNA
SKJALA-
TASKAN MÍN
EINS OG
TÚNFISKUR?
PABBI! VIÐ
FÓRUM ALLA
LEIÐ TIL
MARS OG
HOBBES
GLEYMDI
MYNDAVÉL-
INNI HEIMA!
ÞAÐ ER
ALLTAF VISS
TENGING MILLI
MÓÐUR OG
DÓTTUR...
SEM ENGINN KARL-
MAÐUR GETUR SKILIÐ
SÚ TENGING ER:
„AÐ ELSKA
AÐ VERSLA“!
ATLI, VIÐ
ERUM
KOMNIR Á
NORÐURPÓLINN!
GRÍMUR,
ERTU
VISS?
ANNAÐ HVORT
ÞAÐ EÐA VIÐ
ERUM Í
AUGLÝSINGU
FYRIR ÞYKKVABÆ
LALLI, ÞÚ ERT ANSI
GÓÐUR MEÐ BASSANN.
ÞÚ GETUR SPILAÐ MEÐ
OKKUR TIL REYNSLU...
ÞAÐ VÆRI
FRÁBÆRT! ÉG
BJÓST EKKI VIÐ ÞVÍ
AÐ KOMAST INN
ÉG VEIT EKKI HVAÐ ÞIÐ ÆFIÐ
MIKIÐ... EN ÉG Á FYRIRTÆKI OG
ÞAÐ VERÐUR ALLTAF AÐ GANGA
FYRIR HJÁ MÉR
ÉG ER BARÞJÓNN OG
MAGGI SLÆR GRAS
SJÁUMST
KLUKKAN EITT Á
MORGUN
MEIRA AÐ SEGJA ÞEGAR
ALLT GENGUR VEL HJÁ MÉR
ÞÁ SAKNA ÉG M.J.
KANNSKI ER
ÞETTA HÚN PETER?
BINGÓ!
LALLI, VIÐ
SKILJUM ÞAÐ VEL.
VIÐ ERUM ALLIR
Í VINNU
dagbók|velvakandi
Verslunarhættir Íslendinga
ÉG er alltaf jafn hissa á verslunar-
háttum landa minna. Ekki nóg með
að það þurfi að vera opið alla daga
ársins, það þarf helst að vera opið
allan sólarhringinn.
Ekki veit ég hvað þarf svo nauð-
synlega að fólk þurfi að fara klukkan
fjögur á nóttunni í búð. En nóg með
það í bili. Fólk er kvartandi og
kveinandi yfir háu matarverði á Ís-
landi. Ekki er það skrítið þegar
starfsfólk verslana þarf að vinna alla
daga ársins. Seinustu vígin eru
stórhátíðardagarnir: Jóladagur,
föstudagurinn langi, páskadagur og
hvítasunnudagur. Það er svo langt
gengið að verslunarfólk fær frekar
frí 1. maí en á frídegi verslunar-
manna sem er dálítið skrítið. Ég er
ekki átakanlega gömul en ég man þá
tíð þegar verslanir voru lokaðar á
frídögum og á sunnudögum. Ég legg
til á eigendur verslana taki það til at-
hugunar að hafa lokað á sunnudög-
um. Ég held að Íslendingar séu ekki
svo illa haldnir að þeir geti ekki
sleppt því að fara í búð einn dag í
viku. Og reynið að versla til fleiri en
eins dags. Það er alveg ótrúlegt að
nenna að fara í búð á hverjum degi
til að kaupa örfáa hluti. Það getur
ekki verið svo skemmtilegt. Eins á
hátíðisdögum, að það sé ekki eitt-
hvað skárra að finna sér að gera með
fjölskyldunni enn að fara í búð.
Kæru samlandar, hugsið um þetta.
Starfsmenn verslana þurfa líka að
hvíla sig eftir erfiða vinnuviku eins
og þið.
Um daginn las ég pistil frá konu
sem var reið út í sendibílastöðvarnar
fyrir að vera ekki í vinnunni á
sunnudegi til að þjónusta hana við að
fjarlægja ruslið úr garðinum sínum.
Kannski voru þessir menn í sínum
eigin garði að taka til. Hugsaðirðu
ekki um það áður en þú kvartaðir?
Þetta segir það allt.
Ein áhyggjufull.
Snúður er týndur
SNÚÐUR Bai-
leys, sem er 6 ára,
týndist laugar-
daginn 21. apríl
sl. frá Álftröð 5 í
Kópavogi (við
hliðina á Mennta-
skólanum í Kópa-
vogi). Hans er
sárt saknað.
Snúður er merkt-
ur, bæði með ól og eyrnamerktur
O3G146. Hann er mjög blíður og
góður kisustrákur og svarar yfirleitt
kalli. Ef einhver hefur orðið hans
var, þá bið ég þann hinn sama að láta
mig vita í síma 564-1975 eða 822-
3739. Edda.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
MARGIR eru duglegir við að safna dósum og flöskum fyrir Endurvinnsl-
una. Þetta dósafjall beið sendibíls við Grettisgötuna. Búast má við að eig-
andi þess fái dágóða upphæð að launum.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Dósafjall
FRÉTTIR
Húsavík | Menningarsjóður Glitnis
og Hvalasafnið á Húsavík hafa
gert með sér samstarfs- og
styrktarsamning og var hann
undirritaður í Hvalasafninu fyrir
skömmu.
Það voru þeir Örn Björnsson úti-
bússtjóri Glitnis á Húsavík og Ás-
björn Björgvinsson forstöðumaður
Hvalasafnsins sem undirrituðu
samninginn að viðstöddum fjörutíu
starfsmönnum Glitnis sem voru í
fundarferð á Húsavík. Að því loknu
afhenti Lilja Rögnvaldsdóttir nýr-
áðin aðstoðarútibússtjóri Glitnis á
Húsavík Ásbirni styrkinn.
Ásbjörn sagði, um leið og hann
þakkaði starfsmönnum og stjórn
Menningarsjóðs Glitnis fyrir þenn-
an frábæra stuðning, samninginn
vera Hvalasafninu afar mikil-
vægan. Hann gildir til þriggja ára
og tryggir enn frekar rekstrar-
grundvöll og uppbyggingu safnsins
sem tók á móti rúmlega tuttugu
þúsund gestum í fyrra.
Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
Samstarf Örn Björnsson (t.v.) og Ásbjörn Björgvinsson við undirritun.
Menningarsjóður Glitnis
styrkir Hvalasafnið