Morgunblaðið - 05.05.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.05.2007, Blaðsíða 24
Eftir Karl Á. Sigurgeirsson Hrútafjörður | Fjölmenni var í Stað- arflöt í Hrútafirði við athöfn þegar undirritaðir voru tveir menningar- samningar á milli ríkisins og sveitar- félaga á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Fyrir hönd hins opinbera áritaði Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra samningana, en menntamála- ráðuneytið er einnig aðili að samn- ingnum. Anna Guðrún Edvardsdóttir, formaður Fjórðungs- sambands Vestfjarða, og Adolf Berndsen, formaður Samtaka sveit- arfélaga á Norðurlandi vestra, árit- uðu þá fyrir hönd sinna samtaka. Var viðburður þessi hátíðlegur, með ræðuhöldum og tónlistaratriðum. Jákvæð áhrif Adolf Berndsen segir áhrifin af samningi þessum mjög jákvæð. Segir hann meginávinning samn- ingsins vera aukna fjármuni til menningar- og ferðamála í þessum landshlutum og að forysta og fram- kvæmd verði í höndum sveitarfélag- anna Sveitarfélögin í Skagafirði og Húnavatnssýslunum, sjö alls, ásamt Siglufirði, eru aðilar málsins af hálfu heimamanna, en menntamálaráðu- neyti og samgönguráðuneyti af hálfu hins opinbera. Menningarráð SSNV hefur verið skipað og er ætlað að vinna að mál- inu í framhaldinu í samstarfi við stjórn SSNVog sveitarfélögin. Á næstunni verður gerður samstarfs- samningur um framkvæmd verkefn- isins. Samningurinn við SSNV hljóðar upp á tæpar 100 m. kr. og er hann til næstu 3 ára. Segir Adolf að vænt- anlega verði hægt að auglýsa eftir umsóknum í haust. Samningurinn við Fjórðungssam- band Vestfjarða er með líku sniði. Frumkvæði og fram- kvæmd í héraði Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson Samningar Fjölmenni var við athöfn á Staðarflöt þegar tveir menningarsamningar voru undirritaðir. Tveir samningar um menningu 24 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI AFTURELDING í Mosfellsbæ meira en þrefaldaði getraunasölu sína umfram sölumarkmið á fyrstu mánuðum ársins. Sigraði félagið í getraunaleik sem Ungmennafélag Íslands og Íslenskar getraunir efndu til og miðar að því að auka tekjur ungmennafélaganna af getrauna- sölu. Sextán félög tóku þátt í leiknum. Afturelding jók sölu sína á tíma- bilinu um 264%. Höttur varð í öðru sæti með 54% umfram markmið, Kjölur í þriðja sæti, HSV í því fjórða og Fjölnir í því fimmta. Sextán félög tóku þátt í leiknum. Þrjú efstu félögin fengu peninga- verðlaun og þau fimm efstu að auki ferð á leiki í Englandi, í meistara- keppni Evrópu. Umsjónarmönnum getraunastarfs í þessum félögum var boðið á leiki Manchester United og Roma og Liverpool og PSV Eindho- ven. Afturelding sigraði í getraunaleik UMFÍ LANDIÐ HÁTÍÐARTÓNLEIKAR Sinfón- íuhljómsveitar Norðurlands á kirkjulistaviku verða í Akureyrar- kirkju á morgun, sunnudag, kl. 16.00. Einleikari á orgel er Björn Steinar Sólbergsson og einsöngv- arar Hanna Dóra Sturludóttir og Ágúst Ólafsson. Kór Akureyrar- kirkju og Kammerkór Norður- lands syngja einnig. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson. Á efnisskrá tónleikanna er Róm- eó og Júlia, fantasíuforleikur eftir P.I. Tchaikowsky, Orgelkonsert eftir F. Guilmant og Te Deum eftir A. Dvorak. Forleikinn samdi P.I. Tchai- kowsky að áeggjan kollega síns Bo- rodins, sem lagði að Tchaikowsky að taka eitt rómantískasta leikrit allra tíma, Rómeó og Júlíu, til með- höndlunnar. Það tók Tchaikowsky aðeins nokkrar vikur að ljúka verk- inu, sem var frumflutt árið 1870. Hann ákvað þó að endurgera verk- ið og tók það tónskáldið ein 10 ár að ljúka því. Árangurinn var vægast sagt góður því forleikurinn er að margra mati eitt best heppnaða verk höfundar og hefur notið mik- illa vinsælda allt fram á þennan dag. Felix Alexandre Guilmant samdi sinfóníu nr. 1 fyrir orgel og hljóm- sveit árið 1879. Tónskáldið vann sinfóníuna upp úr sónötu fyrir org- el í d-moll frá árinu 1874 og er sin- fónían sem er í ítölskum stíl eitt hans alvinsælasta verk. Te Deum ópus 103 eftir Anton- ins Dvoráks er síðasta og jafnframt merkasta trúarlega tónsmíðin úr smiðju hans. Verkið var samið eftir að tónskáldið fluttist vestur um haf þar sem hann tók við stöðu rektors við Tónlistarskólann í New York. Þar í borg var verkið frumflutt í októbermánuði árið 1892. Tónlistin er frjálsleg og glaðleg lofgjörð til náttúrunnar í anda heilags Frans- iskusar. Björn Steinar Sólbergsson var ráðinn organisti við Akureyrar- kirkju haustið 1986 og hefur í 20 ár unnið markvisst að uppbyggingu tónlistarstarfs við kirkjuna. Sl. haust var Björn Steinar ráðinn í starf organista við Hallgríms- kirkju. Hann var skipaður skóla- stjóri við Tónskóla þjóðkirkjunnar frá 1. september s.l. til eins árs þar sem hann kennir jafnframt orgel- leik. Hanna Dóra Sturludóttir hefur sungið með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands við mörg tækifæri, haldið fjölda ljóðatónleika, sungið í upp- setningum Íslensku óperunnar („Töfraflautan“ 2001 og „Tökin hert“ 2005) og sungið Vínartón- leika með Salónhljómsveit Sigurð- ar Ingva Snorrasonar. Í haust mun Hanna Dóra syngja titilhlutverkið í „Ariadne á Naxos“ eftir Richard Strauss sem sett verður upp í Íslensku óperunni. Ágúst Ólafsson debúteraði haustið 2004 í Íslensku óperunni í titilhlutverkinu í óperutryllinum Sweeney Todd, en hann er nú fast- ráðinn einsöngvari við þá stofnun til sumarsins 2008. Nýlega söng hann þar hlutverk Nick Shadow í Flagaranum í Framsókn. Guðmundur Óli Gunnarsson hef- ur starfað sem hljómsveitarstjóri með Sinfóníuhljómsveit Íslands, bæði á tónleikum og við upptökur. Hann hefur verið aðalhljómsveit- arstjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands frá stofnun hennar. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og ýmsir aðrir á hátíðartónleikum í kirkjunni Rómeó, Júlía og fleiri á stjá Morgunblaðið/Golli Kirkjulist Björn Steinar Sólbergsson er einleikari á tónleikunum. Í HNOTSKURN »Kjarni SN eru kennarar viðTónlistarskólann á Ak- ureyri og hljóðfæraleikarar á landsbyggðinni. Á tónleik- unum á morgun koma hljóð- færaleikarar af höfuðborg- arsvæðinu til liðs við sveitina. » Tónlist í guðsþjónustunniflytja Hymnodia – Kamm- erkór Akureyrarkirkju, Sigríð- ríður Aðalsteinsdóttir, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir, Ülle Hahndorf og Hörður Áskels- son, söngmálastjóri þjóðkirkj- unnar. Stjórnandi er Eyþór Ingi Jónsson. AIM festival, fjögurra daga alþjóðleg tónlistarhátíð, verður haldin á Akureyri 31. maí til 3. júní og miðasala hefst á mánudaginn á www.midi.is, en miða- verð fyrir alla hátíðina er 5.900 kr. Ekki verður hægt að kaupa miða á ein- staka viðburði fyrr en á hátíðinni Þetta er í annað skipti sem hátíðin er haldin. Í fyrra var hún tileinkuð blús, en að þessu sinni er boðið upp á flestar tónlistarstefnur; tangó, jass, rokk, popp, raftónlist, klassík og pönkrokk. Á hátíðinni koma fram meðal annars: Orquesta tipica Fernandez Fierro (Arg- entínu), Hilario Duran Trio (Kanada), Tarwater (Þýskalandi), The Go Find (Belgíu), Isan (Bretlandi) og íslensku listamennirnir Benni Hemm Hemm, Seabear, Blúskompaníið, Æla, Morðingj- arnir og VilHelm. Tónleikarnir fara fram á nokkrum stöðum á Akureyri. Fjölbreytt, alþjóð- leg tónlistarhátíð TENGLAR ....................................................... www.aimfestival.is EYFIRSKI safnadag- urinn er í dag. Margt er í boði; ókeypis að- gangur að öllum söfn- um og safnarútur verða á ferðinni eins og greint var ítarlega frá í blaðinu í fyrra- dag. Báðar leggja af stað kl. 10 frá Umferð- armiðstöðinni í Hafn- arstræti; önnur fer á Smámunasafn Sverris Hermannssonar, Safnasafnið og Gamla bæinn í Laufási og kemur til baka kl. 15. Hin fer á Byggðasafnið Hvol á Dalvík, Nátt- úrugripasafnið í Ólafsfirði og Síld- arminjasafnið á Siglufirði. Heimkoma kl 16. Mjög margt í boði á safnadeginum Ekkert smá Í Smá- munasafni Sverris. HÁTÍÐARGUÐSÞJÓNUSTA í tilefni Kirkjulistaviku verður í Akureyr- arkirkju á morgun, sunnudag 6. mars, kl. 11.00. Dr. Gunnar Krist- jánsson prófastur í Kjalarnesprófastsdæmi predikar, sr. Óskar Haf- steinn Óskarsson og sr. Svavar Alfreð Jónsson þjóna fyrir altari. Í guðsþjónustunni verður m.a. flutt tónlist eftir Jakob Tryggvason fyrr- verandi organista í Akureyrarkirkju, en í ár eru liðin 100 ár frá fæð- ingu hans. Hátíðarguðsþjónusta Frábært vöruúrval opið til 22:00 öll kvöld! opið til kl. 22.00 öll kvöld
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.