Morgunblaðið - 05.05.2007, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 05.05.2007, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MESSUR Á MORGUN AKUREYRARKIRKJA Hátíðarguðsþjón- usta kl. 11. Dr. Gunnar Kristjánsson, pró- fastur í Kjalarnesprófastsdæmi, predikar. Sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson og sr. Svavar A. Jónsson þjóna. Hymnodia kammerkór syngur undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar. Einsöngvari: Sigríður Að- alsteinsdóttir. Organisti: Hörður Áskels- son. ÁRBÆJARKIRKJA Guðsþjónusta kl. 11. Eldri meðlimir Fóstbræðra syngja nokkur lög. Fundur með foreldrum fermingar- barna vorsins 2008 eftir messu. Létt- messa kl. 20. Gospelkórinn syngur. Sr. Guðni Már Harðarson skólaprestur flytur hugleiðingu. ÁSKIRKJA Guðsþjónusta kl. 14 með þátt- töku Átthagafélags Sléttuhrepps. Kór Ás- kirkju syngur, organisti Kári Þormar. Ræðumaður: Erna Guðmundsdóttir. Kaffi- veitingar á vegum félagsins í safnaðar- heimili Áskirkju að guðsþjónustu lokinni. BESSASTAÐASÓKN Kaffihúsamessa kl. 11 í hátíðarsal íþróttahússins á Álftanesi. Álftaneskórinn syngur gospellög undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar. Sr. Þór- hildur Ólafs predikar og þjónar með Grétu Konráðsdóttur, djákna. Veitingar í boð sóknarnefndar. Allir velkomnir. DIGRANESKIRKJA Messa kl. 11. Prestur sr. Yrsa Þórðardóttir. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju B hópur. Súpa í safnaðarsal eftir messu. Sunnu- dagaskóli á sama tíma. Kvöldmessa kl. 20 í umsjá æskulýðsfélagsins Meme. www.digraneskirkja.is DÓMKIRKJAN Vorhátíð barnanna í umsjá sr. Þorvaldar Víðissonar og barnafræðara kirkjunnar fer fram sunnudaginn 6. maí kl. 11. Barnakór Vesturbæjarskóla syngur undir stjórn Nönnu Hlífar. Ýma tröllastelpa kemur í heimsókn. Sunnudagaskólalögin sungin. Pylsur, blöðrur og andlitsmálun. Allir velkomnir. ELLI- og hjúkrunarheimilið Grund Guð- þjónusta með altarisgöngu verður sunnu- daginn 6. maí nk. kl. 14. Drengjakór Þor- finnsbræðra kemur í heimsókn. Organisti: Kjartan Ólafsson. Prestur: Sveinbjörn Bjarnason. FELLA- OG HÓLAKIRKJA Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Prestar sr. Svavar Stef- ánsson og sr. Guðmundur Karl Ágústs- son. Barna og unglingakór Fella- og Hóla syngja undir stjórn Lenku Mateovu og Þór- dísar Þórhallsdóttur. Börn spila á hljóð- færi. Börn úr barnastarfinu taka þátt í dag- skránni. Boðið verður upp á pylsu og djús. Velkomin. FÍLADELFÍA Brauðsbrotning kl. 11.Ræðu- maður Jón Þór Eyjólfsson. Bible studies at 12.30. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræð- um. Jón Þór Eyjólfsson. Gospelkór Fíladel- fíu leiðir söng. Fyrirbænir. Aldursskipt barnakirkja 1-12 ára. Allir velkomnir. Bein úts. á Lindinni og www.gospel.is. Sam- koma á omega kl. 20. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði Hin árlega fjöl- skylduhátíð verður í Kaldárseliog hefst dagskráin kl. 11. Þeim sem ekki koma á eigin bílum er bent á rútuferð frá kirkjunni kl. 10.30. Skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Leikir, grill og kaffiveitingar. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: | Kl. 14 Almenn guðsþjónusta. Hjörtur Magni Jóhannsson, þjónar. Barn borið til skírnar. Um tónlistina sjá Anna Sigríður Helgadóttir og Carl Möll- er. FRÍKIRKJAN KEFAS | Sunnudagaskóli kl. 11 fyrir alla krakka! Sögur, söngur, leikir og brúðuleikhús. Vitnisburðarsamkoma kl. 14. Lofgjörð og fyrirbænir fyrir þá sem vilja. Barnagæsla meðan á samkomu stendur og kaffisala að henni lokinni. Allir hjartanlega velkomnir! Ath. að næsta samkoma verður kl. 20. FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ Laug- ardaginn 5 maí kl. 20 verður kvöldvaka á Færeyska Sjómannaheimilinu. Efni er fær- eyska Fólkakirjan verður Færeysk. Sunnu- dagin 6 mai kl. 15 er Færeysk Guðstjón- usta í Háteigskirkju. Á eftir Guðstjónustu er kaffi á Færeyska. Þetta er samtímis síðasta samkoma fyrir sumarið. Öll vel- komin. GARÐAKIRKJA Messa kl.14. Barn borið til skírnar. Sr. Þórhildur Ólafs þjónar fyrir altari. Gideomenn kynna starf Gideon- hreyfingarinnar. Flutt verður messa eftir Robert Führer af kór Vídalínskirkju undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar. Akstur frá Vídalínskirkju kl.13.40 með viðkomu á Hleinum. Allir velkomnir. GRAFARVOGSKIRKJA Guðsþjónusta kl. 11. Séra Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti: Gróa Hreinsdóttir. HAFNARFJARÐARKIRKJA Guðsþjónusta kl.11. Ræðuefni: Þjóðkirkjan og samkyn- hneigðir. Prestur sr. Þórhallur Heimisson. Organisti Guðmundur Sigurðsson. Kór kirkjunnar leiðir söng. HALLGRÍMSKIRKJA Að lokinni messu fá börnin ís og blöðrur. Aðalsafnaðarfundur hefst kl. 12.30. HALLGRÍMSKIRKJA Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Jón D. Hróbjartsson prédikar og þjónar ásamt sr. Báru Friðriksdóttur og messuþjónum. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju og Barna- og unglingakórar kirkjunnar syngja. Stjórnandi Friðrik Krist- insson. Organisti Lára B. Eggertsdóttir Leikritið Eldfærin sýnt í barnastarfinu. HÁTEIGSKIRKJA Messa og barnaguðs- þjónusta kl. 11. Veitingar eftir messu. Um- sjón með barnaguðsþjónustu Erla Guðrún Arnmundardóttir og Þóra Marteinsdóttir. Organisti Douglas A. Brotchie. Prestur Tómas Sveinsson. HJALLAKIRKJA Lofgjörðarguðsþjónusta kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Þor- valdur Halldórsson, tónlistarmaður, leiðir léttan safnaðarsöng. Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18 (sjá einnig á www.hjallakirkja.is). HJARÐARHOLTS- og Hvammsprestakall Á sunnudag, 6. maí, kl. 12 verður guðs- þjónusta Í Hjarðarholtskirkju. Fermt verður í athöfninni. Séra Óskar Ingi Ingason þjón- ar fyrir altari. Kirkjukór Hjarðarholtspresta- kalls leiðir sönginn undir stjórn Halldórs Þ. Þórðarsonar, organista. Allir velkomnir. Sóknarprestur. HJÁLPRÆÐISHERINN Samkoma sunnu- dag kl. 20 í umsjá Anne Marie Reinholdt- sen. Heimilasamband fyrir konur mánu- dag kl. 15. Samkoma fimmtudag kl. 20. Umsjón: Fanney og Guðmundur. Opið hús daglega kl. 16-18 nema mánudaga. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri Sunnu- daginn 6. maí er fjölskyldusamkoma kl. 11. Kl. 20 verður lofgjörðarsamkoma í umsjá unga fólksins. Allir eru velkomnir HVERAGERÐISKIRKJA Fermingarmessa kl. 10.30. Íslenska kirkjan í Lundúnum Sunnudag- inn 6. maí verður íslensk guðsþjónusta í St. James kirkjunni í Grimsby og hefst hún klukkan 14. Félagar úr Íslenska kórnum í Lundúnum syngja undir stjórn Gísla Magnasonar og Eyjólfur Eyjólfsson syngur einsöng. Kirkjukaffi á St. James hótelinu eftir guðsþjónustuna. KÓPAVOGSKIRKJA Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Skólakór Kársness syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur kór- stjóra. Sóknarprestur predikar og þjónar fyrir altari. Barnastarf kl. 12.30. Umsjón Sigríður, Þorkell Helgi og Örn Ýmir. Bæna- stund þriðjudag kl. 12.10. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN Fjölbreytt og skemmtilegt barnastarf kl. 11. Fræðsla fyrir fullorðna. Friðrik Schram kennir. Tón- listarsamkoma kl. 20. Einnig fyrirbænir og Heilög kvöldmáltíð. Samkoma á Eyjólfs- stöðum á Héraði kl. 20. KFUM og KFUK Samkoma í húsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28 kl. 20. Ræðumaður er sr. Íris Kristjánsdóttir, Keith Reed sér um tónlistina. Gospelkórinn Femína syng- ur. Söngur og lofgjörð. Samfélag og kaffi eftir samkomuna. Verið öll velkomin. KIRKJA JESÚ KRISTS hinna síðari daga heilög Mormónakirkjan Ásabraut 2 Garða- bæ. Sunnudaga: 11.15 sakramentissam- koma. 12.30 sunnudagaskóli. 13.20 prestdæmis- og líknarfélagsfundir. Þriðjudaga: 17:30 trúarskóli yngri 18:00 ættfræðisafn opið 18:30 unglingastarf 20:00 trúarskóli eldri Allir eru alltaf velkomnir www.mormonar.is Landspítali háskólasjúkrahús: Landakot Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Vigfús Bjarni Al- bertsson, organisti Birgir Ás Guðmunds- son. LANGHOLTSKIRKJA Messa kl. 11. Prest- ur sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stefánsson. Kaffisopi eftir messu. Barna- starfinu lauk síðasta sunnudag. LAUGARNESKIRKJA Kl. 11 messa. Sr. Bolli Pétur Bollason prédikar og þjónar ásamt Auði Pálsdóttur, meðhjálpara og fulltrúum lesarahóps. Gunnar Gunnars- son verður við orgelið og stjórnar kirkju- kórnum. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Andra, Þorra, Stellu og Maríu Rutar. Kaffi og djús eftir messu. LAUGARNESKIRKJA Kl. 13. Messa í sal Sjálfsbjargar, Hátúni 12. Prestur sr. Bolli Pétur Bollason, meðhjálpari Kristinn Guð- mundsson, djákni Guðrún K. Þórsdóttir, organisti Gunnar Gunnarsson. LÁGAFELLSKIRKJA Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjukór Lágafellssóknar. Organisti: Jón- as Þórir. Prestur sr. Jón Þorsteinsson. LINDASÓKN í Kópavogi Fjölskylduguðs- þjónusta í Safnaðarheimili Lindasóknar, Uppsölum 3 kl. 11. Allir velkomnir. NESKIRKJA Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju syngja. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Börnin byrja í messunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Kaffi og spjall í safn- aðarheimilinu eftir messu. Messa í sam- vinnu við Ísfirðingafélagið kl. 14. Kirkjukór Ísfirðingafélagsins syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. SELFOSSKIRKJA Messa kl. 11. Fermdur Ólafur Oddur Marteinsson, Tröllhólum 3. Sóknarbörn hvött til þess að sækja kirkju og samfagna fermingarbarninu. Barna- samkoma kl. 11.15. Börnin gera sér dagamun; síðasta samvera á þessu vori. Miðvikudagur 9. maí: Foreldramorgunn kl. 11. SELJAKIRKJA Sunnudagur 6. maí. Kirkju- reið í Seljakirkju. Guðsþjónusta hefst kl. 14. Sigurður A. Magnússon rithöfundur prédikar. Sr. Valgeir Ástráðsson annast guðsþjónustuna. Kór Seljakirkju leiðir sönginn. Organisti Jón Bjarnason SELTJARNARNESKIRKJA Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Trúðar koma í heimsókn, söngur og leikur. Blöðrur, uppblásin leik- tæki og andlitsmálning. Pylsur og svali fyr- ir alla. Lúðrasveit leikur undir stjórn Kára Einarssonar. Nú eru allir í stuði með Guði. Verið velkomin. Organisti, leiðtogar og prestar. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA Miðdalssókn í Laugardal. Fermingamessa verður í Skál- holtskirkju sunnudaginn 6. maí kl. 14. Fermd verða sex börn úr Laugardal. SÓLHEIMAKIRKJA Guðsþjónusta sunnu- dag kl. 14. Sr. Birgir Thomsen þjónar fyrir altari og prédikar. Organisti er Ester Ólafs- dóttir. Verið öll hjartanlega velkomin að Sólheimum. STOKKSEYRARKIRKJA Messa 6. maí kl. 11. Ferming. Vegurinn kirkja fyrir þig Kl. 11 Fjölskyldu- samkoma, lofgjörð, kennsla, ungbarna- starf, Skjaldberar, barnakirkja, létt máltíð að samkomu lokinni. Jón G. Sigurjónsson kennir. Kl. 19 Samkoma. Bryndís Rut Stefáns- dóttir predikar. Brauðsbrotning lofgjörð, fyrirbænir og samfélag í kaffisal á eftir. All- ir velkomnir. VÍDALÍNSKIRKJA: | Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Prestarnir Jóna Hrönn Bolla- dóttir og Hans Guðberg Alfreðsson þjóna ásamt Ármanni H. Gunnnarssyni æsku- lýðsfulltrúa, Jóhönnu Guðrúnu Ólafsdóttur djákna og Hjördísi Rós Jónsdóttur. Hress- ing í safnaðarheimili eftir guðsþjónustu. Allir velkomnir. Guðspjall dagsins: Sending heilags anda. Jóh. 16. Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonGlerárkirkja á Akureyri. Vorhátíð í Seltjarnarneskirkju Fjölskylduguðsþjónusta hefst á morgun kl. 11. Þar verður mikið sungið og trallað. Trúðar koma í heimsókn með uppbyggjandi skila- boð handa börnum og fullorðnum. Lúðrasveitin alkunna blæs af mikl- um krafti undir stjórn Kára Ein- arsson. Pylsur og svali fyrir alla. Upplásin rennibraut fyrir börnin. Blöðrur og leikir. Verið hjartan- lega velkomin. Presta og leiðtogar barna- og æskulýðsstarfsins. Þjóðkirkjan og samkynhneigðir í Hafnarfjarðarkirkju EINS og alþjóð veit hefur staða samkynhneigðra innan Þjókirkj- unnar verið mikið í umræðunni eft- ir nýliðna prestastefnu á Húsavík. Næstkomandi sunnudag verður staða samkynhneigðra í Þjóðkirkj- unni ræðuefni dagsins í Hafnar- fjarðarkirkju. Litið verður á sögu samskipta kirkju og samkyn- hneigðra í gegnum tíðina. Einnig verður leitast við að varpa ljósi á kenningu Jesú Krists um fram- komu manna gagnvart náunga sín- um óháð kynferði, kynhneigð, skoð- unum og litarhætti og gildi þeirrar kenningar í samtímanum. Guðsþjónustan hefst kl. 11. Prestur er sr. Þórhallur Heimisson en organisti Guðmundur Sigurðs- son. Allir velkomnir Ísfirðingar í Neskirkju ÁRLEG guðsþjónusta í samstarfi við Ísfirðingafélagið verður í Nes- kirkju á morgun, sunnudag kl. 14. Ísfirðingurinn, séra Örn Bárður Jónsson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kirkjukór Ísfirðingafélags- ins leiðir söng undir stjórn Stein- gríms Þórhallssonar, organista. Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni. Ísfirðingar og þeirra fylgdarfólk er boðið velkomið í Neskirkju við Hagatorg. Hátíðarguðsþjónusta í Akureyrarkirkju DR. Gunnar Kristjánsson prófastur í Kjalarnesprófastdæmi predikar, sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson og sr. Svavar Alfreð Jónsson þjóna fyrir altari. Í guðsþjónustunni verður flutt tónlist eftir Dietrich Buxtehude en í maí eru 300 ár liðin frá dánardegi hans. Flutt verður Missa Brevis fyr- ir kór og Kantatan Jubilate Domino fyrir einsöngvara og fylgirödd. Flytjendur tónlistar eru Hymnodia- Kammerkór Akureyrarkirkju, Sig- ríðríður Aðalsteinsdóttir, mezzó- sópran, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir, gömbuleikari, Ülle Hahndorf selló- leikari og Hörður Áskelsson, söng- málastjóri þjóðkirkjunnar leikur á orgel. Stjórnandi er Eyþór Ingi Jónsson. Í guðsþjónustunni verður einnig flutt tónlist eftir Jakob Tryggvason fyrrverandi organista í Akureyrar- kirkju, en í ár eru liðin 100 ár frá fæðingu hans. Vorhátíð í Hallgrímskirkju SUNNUDAGINN 6. maí verður vorhátíð í Hallgrímskirkju. Messa og barnastarf hefst kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Báru Friðriksdóttur og messuþjónum. Drengjakór Reykjavíkur í Hall- grímskirkju, Barnakór Austur- bæjarskóla og Hallgrímskirkju og Unglingakór Hallgrímskirkju syngja undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti Lára Bryndís Eggertsdóttir. Barna- starfið er í umsjá Magneu Sverr- isdóttur djákna. Í barnastarfinu verður flutt leikritið Eldfærin eftir H.C. Andersen af Stopp leikhópn- um. Að lokinni messu og barna- starfi fá börnin ís og blöðrur. Kl. 12.30 hefst aðalfundur safnaðarins með venjulegum aðalfundarstörf- um og er safnaðarfólk hvatt til að koma. Safnaðarferð Breiðholtssóknar SAFNAÐARFERÐ Breiðholtssókn- ar verður að þessu sinni nk. sunnu- dag 6. maí. Brottför verður frá Breiðholtskirkju kl. 10.30. Ekið verður fyrir Hvalfjörð að Saurbæj- arkirkju, þar sem haldin verður helgistund með þátttöku barnakórs Breiðholtskirkju. Eftir helgistund- ina verður síðan haldið upp í Vatna- skóg, þar sem borðaður verður há- degisverður. Að því loknu verður ekið til Akraness, þar sem safna- svæðið verður skoðað.Að endingu verður svo drukkið kaffi í safnaðar- heimilinu Vinaminni áður en við ökum Hvalfjarðargöngin heim. Við áætlum að vera komin aftur að Breiðholtskirkju um kl. 17. Ferðin kostar 1.300 kr. fyrir fullorðna, en ókeypis er fyrir börn 14 ára og yngri. Allar veitingar eru innifald- ar. Viljum við hvetja sem flesta sókn- arbúa til þátttöku. Kirkjureið í Seljakirkju HIN árlega kirkjureið verður sunnudaginn 6. maí. Það er nokkur viðburður þegar farið er í hópum frá hesthúsahverfunum að Selja- kirkju. Við kirkjuna verður komið upp traustu gerði fyrir hrossin. Að lokinni guðsþjónustunni sest hesta- fólk og aðrir kirkjugestir að kirkju- kaffi í safnaðarsalnum. Lagt er af stað kl. 13. Í Víðidalnum frá skilt- inu, Í Andvara við félagsheimilið og í Gustshverfinu við reiðskemmuna. Guðsþjónustan í Seljakirkju hefst kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson ann- ast guðsþjónustuna. Sigurður A. Magnússon, rithöfundur, prédikar. Birgir Hólm Ólafsson syngur ein- söng. Hestafólk ásamt öðrum er vel- komið til guðsþjónustunnar í Selja- kirkju sunnudaginn 6. maí. Kaffihúsamessa í Bessastaðasókn SUNNUDAGINN 6. maí kl.11 verð- ur kaffihúsamessa í hátíðarsal íþróttahússins á Álftanesi. Álfta- neskórinn mun flytja hrífandi gosp- elsálma undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar organista. Sr. Þórhild- ur Ólafs mun prédika og þjóna fyrir altari ásamt Grétu Konráðsdóttur djákna. Sóknarnefndin býður upp á veitingar svo að gott er að koma á fastandi maga. Fermingarbörn næsta vetrar eru boðin sérstaklega velkomin ásamt foreldrum sínum. Klukkan 12.15 er síðan fundur í safnaðarheimili Vídalínskirkju fyr- ir fermingarbörnin og foreldra þeirra. Á þeirri samveru verður far- ið yfir starfið næsta vetur. Einnig verða fermingarathafnir vorsins 2008 kynntar og skráning í þær. Stór stund í Vídalínskirkju SUNNUDAGINN 6. maí kl. 11 verð- ur fjölskylduguðsþjónusta í Vídal- ínskirkju. Í þeirri guðsþjónustu verður tekið á móti fermingar- börnum næsta vetrar og foreldrum þeirra. Prestarnir Jóna Hrönn Bolladóttirog Hans Guðberg Al- freðsson leiða stundina ásamt Ár- manni H. Gunnarssyni æskulýðs- fulltrúa, Jóhönnu Guðrúnu Ólafs- dóttur djákna og Hjördísi Rós Jónsdóttur. Í guðsþjónustunni verð- ur tónlist, fræðsla og fyrirbænir. Í messukaffi (eftir athöfnina) verður boðið upp á samlokur, safa og kaffi, áður en fundur hefst með ferming- arbörnum og foreldrum þeirra kl. 12:15. Rætt verður um fyrirkomulag fermingartíma, fermingarathafnir 2008 og fyrirkomulag skráningar, fermingarferðalag og gefinn kostur á fyrirspurnum. Allt fólk velkomið til guðsþjónustunnar og í messu- kaffið. Sjá www.gardasokn.is Gideonmenn og Robert Führer í Garðakirkju SUNNUDAGINN 6. maí kl. 14 verð- ur messa í Garðakirkju. Gideon- menn þjóna í messunni ásamt sr. Þórhildi Ólafs og Nönnu Guðrúnu Zoëga djákna. Fyrir utan að lesa ritningarlestur munu Gideon-menn SAFNAÐARSTARF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.