Morgunblaðið - 26.10.2007, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 26.10.2007, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Bragi Skarp-héðinsson járn- smiður fæddist í Reykjavík 24. nóv- ember 1933. Hann lést á Dvalar-og hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri 20. október síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Jórunn Einars- dóttir, húsmóðir og iðnverkakona í Reykjavík, f. 23.2. 1905, d. 23.9. 1978, og Skarphéðinn Vé- mundsson, síðast verkamaður í Reykjavík, f. 19.8. 1911, d. 31.12. 1979. Bræður Braga eru Þráinn, f. 25.9. 1937, og Ómar, f. 20.8. 1949. Bragi kvæntist árið 1956 Esther Brittu Vagnsdóttur, f. 10.8. 1936. Foreldrar hennar voru Laufey Hólm Sigurgarðsdóttir, húsmóðir í Reykjavík, f. 21.4. 1911, d. 2.5. 1988, og Vagn Egill Jónsson, hæstaréttarlögmaður, f. 5.7. 1914, d. 5.4. 1976. Bragi og Esther skildu 1982. Börn þeirra eru Egill Héðinn, f. 8.3. 1957, Skúli Þór, f. 13.5. 1959, og Snorri Ragnar, f. 25.12. 1963. Egill Héðinn og fyrr- verandi kona hans, Anna Lára Þorsteinsdóttir, f. 28.7. 1956, eiga tvö börn, Ástu Laufeyju, f. 1.5. 1978, og Þorstein Marinó, f. 2.6. Reykjavík, og lauk prófi frá Iðn- skólanum í Reykjavík. Bragi var einn af stofnendum Lúðrasveitar verkalýðsins og lék með lúðra- sveitinni fyrstu árin sem hún starfaði. Árið 1964 gerðist hann verslunarmaður í Hljóðfærahúsi Reykjavíkur og starfaði þar til ársins 1970 að hann fór aftur að stunda járnsmíði og þá hjá Norma hf. í Reykjavík. Vann hann m.a. við Þórisós og stækkun álversins í Straumsvík. Árið 1972 flutti fjöl- skyldan til Akureyrar. Þar réðst Bragi til Vélsmiðjunnar Odda hf., þar sem hann starfaði árum sam- an með hléum, en hann réðst tíma- bundið til Vélsmiðju Steindórs og til Slippstöðvarinnar hf. á Akur- eyri. Frá 1975 til 1980 starfaði hann við vélgæslu á varaaflstöðv- um á Oddeyri og við Rangárvelli, við stækkun Laxárvirkjunar og viðhald togara ÚA svo fátt eitt sé nefnt. Eftir það var hann hjá Hita- veitu Akureyrar til árins 1981 að hann flutti til Suðureyrar við Súg- andafjörð ásamt sambýliskonu sinni Ingunni Sveinsdóttur frá Barðsnesi, f. 20.9. 1942. Þar var hann um tíma við iðn sína, en 1984 flutti hann til Norðfjarðar og bjó í Neskaupstað til árins 1996 að hann fór til Skúla sonar síns á Sauðárkróki. Árið 1999 flutti Bragi aftur til Akureyrar og bjó þar til dauðadags. Bragi verður jarðsunginn frá Glerárkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. 1987. Síðari kona Egils er Wirat Uba- sen, f. 31.3. 1965, þau eiga dótturina Chandraju, f. 19.9. 2005. Skúli er kvænt- ur Nuanchawee Wij- annarong, f. 17.1. 1968, börn þeirra eru Ása María, f. 5.9. 1998, og Jasmín, f. 7.5. 2004. Skúli Þór á dóttur, Pascale Elísa- bet, f. 16.11. 1980, með fyrri konu sinni Doris David frá Máritíus, og son, Davíð Braga, f. 19.6. 1992, með Natalie Bragason. Dóttir Snorra og sambýliskonu hans Auðbjargar Maríu Ólafs- dóttur, f. 12.12. 1971, er María El- ísabet, f. 15. desember 2006. Snorri Ragnar á tvö börn með fyrri konu sinni, Margréti Jónínu Þorsteinsdóttur, f. 25.2. 1967. Það eru synirnir Daníel Ágúst, f. 25.6. 1989, og Snorri Ágúst, f. 23.12. 1990. Bragi ólst upp í sveit í Fossvog- inum þar sem foreldrar hans voru með búskap og síðar í Reykjavík. Hann gekk í Laugarnesskóla, en stundaði almenna verkamanna- vinnu eftir að skyldunámi lauk. Hann lærði járnsmíði í Vélsmiðj- unni Héðni og Landssmiðjunni í Pabbi ólst upp í Reykjavík á kreppuárunum þegar allur almenn- ingur hafði úr litlu að spila. Sá tími var honum minnisstæður, og eins tími stríðsáranna. Þessir tímar mót- uðu hann og lífsviðhorf hans að ýmsu leyti. Pabbi var glaðvær og mikill tón- listarunnandi. Hann lærði ungur að árum að leika á tenórsaxafón hjá Vilhjálmi Guðjónssyni og einnig lék hann vel á harmoniku. Hann var einn af stofnendum Lúðrasveitar Verkalýðsins í Reykjavík þar sem hann lék á franskt horn. Hann var róttækur sósíalisti, félagi í Samtök- um hernámsandstæðinga og í Sósíalistaflokknum, seinna Alþýðu- bandalaginu. Málefni verkalýðs- hreyfingarinnar og kjarabarátta ásamt frelsisbaráttu hinna vinnandi stétta voru honum hjartans mál. Hann mátti aldrei heyra á verka- lýðshreyfinguna hallað einu orði. Hann var virkur félagi í stéttar- félagi málmiðnaðarmanna. Árið 1954 fór hann með vini sínum Gísla Halldórssyni símvirkja til Noregs. Í Bergen réðu þeir sig á fornfálegt gufuskip sem hét Fulton. Skipið sigldi til Múrmansk að sækja timbur sem var flutt til Englands. Annar góður vinur pabba var Þórð- ur Sigurel Kristjánsson, bifreiða- stjóri og rennismiður. Ég man eftir- minnilega ferð sem hann og Þórður fóru árið 1969 með Björgunarsveit- inni Ingólfi í Húsafell og Veiðivötn, en pabbi var veiðimaður á stöng og hafði yndi af útiveru og veiðiskap. Pabbi hóf flugnám í Reykjavík um 24 ára að aldri en varð að hætta þar sem hann stóðst ekki fyllilega kröf- ur um heyrn. Hann unni þó fluginu alla ævi og mat þá reynslu mikils að hafa flogið Piper Cup. Á þeim árum sem hann starfaði hjá Hljóðfærahúsi Reykjavíkur eignaðist hann gott hljómplötusafn. Hann unni sígildri tónlist en hafði breiðan tónlistarsmekk. Eftir ára- löng störf hjá Hljóðfærahúsinu sneri hann aftur að járniðninni. Á þessum árum var mikil vinna t.d. við Búrfellsvirkjun og Þórisós. Árið 1972 var ákveðið að flytja til Akur- eyrar, nánar tiltekið í Glerárþorp sem þá var svo nefnt. Þar tók við áframhaldandi vinna að járnsmíð- um. Pabbi eignaðist járnsmíðaverk- færi, vélar og tæki sem hann hafði í bílskúrnum. Járnið lék í höndum hans og til urðu fínlegir hlutir með persónulegu yfirbragði. Fyrir utan bílskúrinn stóð Willys jeppinn guli, árgerð 1954, en um þann jeppa sagði pabbi síðar að hann væri eina öku- tækið sem sér hefði þótt vænt um. Árið 1982 ákvað pabbi að flytja vestur á firði, til Suðureyrar við Súgandafjörð. Þar bjó hann í nokk- ur ár, stafaði að járnsmíðum og svo- lítið að tónlistarkennslu við tónskóla staðarins. Þá lá leiðin austur á land, í Neskaupstað. Þar starfaði hann á vélaverkstæði Síldarvinnslunnar hf. Heilsan fór að bila rétt þegar pabbi var um sextugt, hann greind- ist með Alzheimers sjúkdóm. Sem betur fer átti hann samt eftir mörg ágæt ár. Akureyringar tóku fjöl- skyldunni vel, og veit ég að það var pabba mikils virði og minntist hann oft á hversu heppin við hefðum verið að flytja einmitt þangað. Af ótal mörgum minningum vil ég nefna kvöldin sem hann sat við að hlusta á sígilda tónlist, reykjandi pípuna sína, með bók eftir Hem- ingway eða aðra eftirlætishöfunda í hendi.Af íslenskum rithöfundum mat hann Halldór Laxnes mest, af ljóðskáldum Bólu-Hjálmar. Hann fann sér að ýmsu leyti sálufélaga í stórbrotnum persónum þeirra. Ég vil þakka pabba fyrir allt, og kveðja hann hinstu kveðju. Egill Héðinn Bragason. Meira: mbl.is/minningar Í dag kveðjum við Braga bróður og mág hinstu kveðju. Nú er lokið baráttu hans við hinn erfiða sjúk- dóm Alzheimer sem náði tökum á honum allt of snemma. Bragi var einstakt ljúfmenni og brosið hans bræddi allra hjörtu. Þrátt fyrir heilsubrest kvartaði hann ekki en reyndi frekar að gleðja samferða- fólk sitt, margir muna hann sjálf- sagt hlæjandi með pípuna í munn- vikinu. Hann var hrekklaus maður og sérlega barngóður. Hann var stóri bróðir minn og ég leit alltaf upp til hans í æsku enda var hann mér góður og reyndist mér ávallt vel. Þegar við hjónin fluttum austur í Egilsstaði voru heimsóknir hans eftirminnilegar og börnin okkar löð- uðust strax að honum og var hann frændinn sem var svo góður og skemmtilegur. Í síðustu heimsókn hans austur kynntist hann barna- börnunum okkar, en þá var sjúk- dómurinn byrjaður að segja til sín. Þau skynjuðu það og fannst að þau yrðu að passa hann vel, sem þau og gerðu, og varð mikil vinátta milli þeirra. Bragi var tónlistarmaður og mik- ill hagleikssmiður á járn. Marga fallega gripi smíðaði hann úr járni og gaf vinum og vanda- mönnum, enda lærður járnsmiður og eldsmíðin heillaði hann. Hann var einn af stofnendum Lúðrasveitar verkalýðsins og spilaði þar á saxófón og tenórhorn í ára- fjöld, oft var glatt á hjalla á æfingum og Bragi hrókur alls fagnaðar. Veiði og útivera voru meðal áhugamála hans og fórum við marga veiðiferðina með æskuvinum og fé- lögum í Reykjavík, var þá oftast tjaldað á vatns- eða árbakka og spjallað og grínast langt fram á ljós- ar sumarnætur svo veiðin gleymdist jafnvel. Við áttum líka margar eft- irminnilegar samverustundir við Eiðavatn um hvítasunnu, þegar Bragi tíndi upp fisk á pínulítinn spinner þegar aðrir fengu ekki neitt, og hló dátt. Síðustu ár voru erfið bæði fyrir Braga og aðstandendur því Alz- heimersjúkdómurinn einangrar fólk svo það missir smám saman allt samband við umheiminn og getur ekki tjáð sig. Vel var hugsað um Braga á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri og starfsfólk þar á þakkir skildar fyrir frábæra umönnun. Við minnumst Braga með söknuði en þökkum fyrir að hafa átt hann sem bróður og mág. Sonum hans, Agli, Skúla og Snorra, barnabörnum og öðrum venslamönnum vottum við okkar innilegustu samúð. Minningin um Braga lifir í hjörtum okkar. Þráinn og Gunnhildur. Bragi Skarphéðinsson FRÉTTIR STYRKJUM úr Jafnréttissjóði var úthlutað s.l. miðvikudag. Fengu 5 verkefni styrk, samtals að upphæð 9 milljónir króna. Geir H. Haarde for- sætisráðherra afhenti styrkina. Þau leiðu mistök urðu við birtingu fréttar um úthlutunina í blaðinu í gær, að með birtist listi um þau verkefni sem styrkt voru árið 2006. Hér birtist á eftir réttur listi: 1. Fjöldi kvenna á þingi – framboð eða eftirspurn – umsækjandi og verkefnisstjóri Indriði H. Indriða- son, dósent í stjórnmálafræði HÍ – markmið rannsóknarinnar er að leggja mat á þær skýringar sem liggja til grundvallar ástæðum þess hvað veldur litlum hlut kvenna á al- þingi Íslendinga. Rannsóknin felur í sér að skýra árangur kvenna í próf- kjörum stjórnmálaflokkanna að teknu tilliti til reynslu, flokksstarfs, aldurs, menntunar, fjölda kvenna og karla í framboði auk annarra hugs- anlegra skýribreytna. 2. Jafnréttisumræða á tímamótum – kyn og margbreytileiki – umsækj- andi Þorgerður H. Þorvaldsdóttir, doktorsnemi og verkefnisstjóri Þor- gerður Einarsdóttir, dósent í kynja- fræðum HÍ, markmið rannsóknar- innar er að fá heildstæða þekkingu á íslenskri jafnréttisumræðu – skoðað verður hvernig femínískar kenning- ar um samspil mismununarbreytna geta nýst til að sætta ólíkar áherslur í jafnréttisstarfi og markmiðið er að þróa jafnréttishugtak þar sem margbreytileikinn er hafður að leið- arljósi – án þess að áhersla á kynja- jafnrétti sé gefin upp á bátinn. 3. Vinna foreldra á heimili og vinnumarkaði – alþjóðlegur sam- anburður, umsækjandi og verkefnis- stjóri er Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði HÍ – markmið rann- sóknarinnar er að meta heildar- vinnuframlag foreldra, samanlagt á vinnumarkaði og við heimilisstörf, hvernig hann skiptist milli kynja og hvernig hann er háður fjölda barna á heimilinu. Enn fremur verður verka- skipting á heimilum rannsökuð. Þannig fæst heildstæð mynd af vinnumagni fjölskyldna, karla og kvenna aðskilið og sameiginlega. 4. Mat á tölfræðilíkönum með vinnumarkaðskönnunum – þýðing ómældra breytna – umsækjandi og verkefnisstjóri Helgi Tómasson, dósent í hagrannsóknum og tölfræði HÍ. Markmið rannsóknarinnar er að safna með rafrænum hætti gögnum um laun, vinnutíma, starf, kyn, aldur og ýmsar fleiri breytur. Þetta er gert til að hægt verði að álykta um þýðingu þessara breytna fyrir launamyndun þar sem nauðsynlegt er að raunhæft tölfræðilegt líkan sé metið. Svo hægt sé að meta þýðingu ómældra breytna er nauðsynlegt að fyrir hendi séu endurteknar mæl- ingar á sama einstaklingi á mörgum tímabilum. 5. Staðbundið samfélagslegt mikilvægi jafnrar kynjaskiptingar – umsækjandi Vífill Karlsson, dósent háskólanum Bifröst – verkefnisstjóri Gylfi Magnússon, dósent í viðskipta- deild HÍ – Markmið verkefnisins er að skoða samband milli kynjahalla og húsnæðisverðs – og hvort þetta samband endurspegli félagslegt mikilvægi kvenna. Þar sem eftir- spurn neytenda mótast af forgangs- röðun þeirra í heimi takmarkaðra gæða, endurspeglar landfræðilegur breytileiki fasteignaverðs virði stað- setningar til búsetu. Úthlutun styrkja úr Jafnréttissjóði Morgunblaðið/Frikki Afhending Styrkþegar ásamt Geir H. Haarde og Gylfa Aðalsteinssyni. GRAND Hótel Reykjavík fagnar stækkun eftir að ný og glæsileg turnbygging hefur verið tekin í notkun. Í dag, 26. október, verður „Grand Opnun“ á hótelinu. Í frétta- tilkynningu segir að nýr inngangur frá Kringlumýrarbraut leiði gesti inn í 800 fermetra glerhýsi, Mið- garð, með 17 metra lofthæð, sem hýsir nýja móttöku og bar. Gler- listaverk Leifs Breiðfjörð prýða Miðgarð. 209 ný herbergi bættust við hót- elið í turnbyggingunni þ.m.t. for- setasvítur. Samtals eru nú 314 her- bergi á hótelinu eftir stækkun og er hótelið það stærsta á Íslandi. Átta funda- og veislusalir bættust við með stækkun hótelsins og eru þá 14 fundaherbergi og ráðstefnusalir á hótelinu sem henta vel við hvers konar tilefni. Við hinn nýja inngang hótelsins bættist fjöldi bílastæða og einnig er nýr bílakjallari undir hótelinu. Sam- tals eru vel yfir 300 bílastæði við hótelið. Glæsileg líkamsræktarstöð og spa, Grand Spa, verður opnuð eftir nokkra daga. Opnun Ný turnbygging tekin í notkun á Grand Hótel Reykjavík. Ný turnbygging á Grand Hótel
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.