Morgunblaðið - 11.06.2008, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.06.2008, Blaðsíða 21
illa í eigin líkama og þeim sem eru of þungir. Þegar ég var ung óttaðist ég að fitna og stundaði líkamsrækt af miklum móð. Ég þurfti að losna undan þessum hugsunum og hef skilning á van- líðan þeirra sem eru óánægðir með líkama sinn. Ég vildi hjálpa sjálfri mér og tel mig um leið hafa fundið aðferð sem getur hjálpað okkur öllum.“ Aðspurð segist Linda alls ekki hissa á niðurstöðum rannsókn- arinnar. Hún hafi í gegnum vinnu sína sem sálfræðingur lært að fólk þarf að vera ánægt með sjálft sig til að geta breytt hegð- un sinni. „Grannt fólk fær syk- ursýki og hjartasjúkdóma. Það er lífsstíllinn sem skiptir máli því fólk yfir kjörþyngd getur verið við mun betri heilsu en þeir sem eru grannir og lifa óheilsu- samlegu lífi.“ Að sættast við líkama sinn Linda segir auðvitað ógnvekj- andi tilhugsun að sætta sig við lík- ama sinn því oft hafi það verið tal- ið uppgjöf. Hún nefnir að það hafi komið henni á óvart hversu vel hugmyndinni um breytt hugarfar var tekið á meðal þeirra sem tóku þátt í rannsókninni. „Þeim fannst hugmyndirnar rökréttar og voru mjög spenntir fyrir þátttökunni.“ Þegar Linda er spurð að því hverjir komu best út úr rannsókn- inni segir hún að greinileg tengsl hafi verið á milli þess hversu vel fólkinu tókst að sættast við líkama sinn og hversu vel því gekk að við- halda heilbrigðum lífsháttum. „Því meira sem fólk reyndi að nota hugmyndirnar til að grennast, því verr gekk því,“ segir Linda og tel- ur þetta staðfesta hversu miklu máli hugarfarið skiptir. Að lokum segir Linda við þá sem vilja taka fyrsta skrefið: „Reynið að finna hóp sem styður hugmyndinar, hvort sem það er vinkonuhópur, póstlisti eða vefsíður. Stuðningur frá öðrum sem eru í sömu hugleið- ingum er mikilvægur, því með honum finnum við að við erum ekki ein.“ | liljath@mbl.is Fita Klípan ber ekki endilega vott um óheilbrigði því feitt fólk getur verið heilbrigðara en grannar sófakartöflur. Morgunblaðið/ÞÖK www.lindabacon.org MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 2008 21 MIKILVÆGT er að starfsfólk á stofn- unum þar sem fólk með minnisglöp býr haldi uppi samræðum við heimilismenn. Frá þessu er sagt á vefmiðli BBC og vitn- að til könnunar sem gerð var á þessum málum. Í ljós kom að á fjórðungi þeirra 100 hjúkrunarheimila í Bretlandi sem könnuð voru var ekki nægilega mikið um að starfsfólk gæfi sér tíma til að tala við og hlusta á þá sem eru með minnisglöp. Það að tala við og hlusta á þá dregur veru- lega úr tilhneigingu þeirra til einangr- unar. Samtök sem kenna sig við Alzheimer (Alzheimer’s Society) segja það hneisu að á stofnunum þar sem dvelur fólk með minnisglöp sé aðeins að meðaltali talað við heimilismenn í tvær mínútur á sex klukkutíma fresti. Á tuttugu og þremur heimilanna vörðu heimilismenn minna en helmingi af tíma sínum í að tala við einhvern. Meira en fimmtungur fólksins var ein- angraður hluta af tíma sínum þó svo að það væri jafn- vel skikkað til að taka þátt í einhverju. Einnig kom í ljós að þeir heimilismenn sem voru ánægðir og sáttir voru í mun meiri tenglsum við veröld- ina í kringum sig en aðrir. Bent hefur verið á að erfitt getur verið að ná sam- bandi við og hafa samskipti við fólk með minnisglöp. Hins vegar eru lífsgæði þeirra sem eru með minn- isglöp mikið undir því komin hversu mikið fólkið sem sér um umönnun þeirra talar við þá og hversu vel og mikið það setur sig í þeirra spor. Því skiptir miklu máli hvernig stjórnendur heimilanna þjálfa og styðja starfsfólkið og leggja því línurnar. Þá sýndi rannsóknin að aðeins eitt af hverjum tíu heimilum sem skoðuð voru hafði starfsfólk með sér- staka þjálfun í því að meðhöndla fólk með minnisglöp. Samtalið skiptir máli Tala og sýna hlýju Samtöl eru nauðsynleg við þá sem þjást af minn- isglöpum, jafnvel þó stundum sé erfitt að ná sambandi. Ljósmynd/KRT Í Bandaríkjunum veltir megrunar- iðnaðurinn um 50 milljörðum dollara ár hvert. Þriðjungur Breta er stöð- ugt í megrun. Megrunarlausi dagurinn sem haldinn er 6. maí ár hvert er al- þjóðlegur baráttudagur gegn megrun, átröskunum og for- dómum í garð feitra. Megrunariðnaðurinn græðir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.