Skinfaxi - 01.11.1956, Blaðsíða 3
SKINFAXl
99
^y'Jxel, fýónióon :
Norræna æskulýðsvikan í Fornby
í Svíþjóð
Norræna vikan var í sumar haldin í Fornby lvð-
háskólanum í sænsku Dölunum, dagana 16.—20. júli.
Ungmennasamhand Kjalarnesþings efndi til hóp-
ferðar á mótið, fóru 10 þátttakendur af félagssvæði
U.M.S.Iv. Við fórum með flugvél sunnudaginn 15. júlí,
flugum fyrst til Osló, stóðum þar við i eina klst., en
héldum síðan áfram til Kaupmannahafnar, en þar
gistum við um nóttina. Veðrið var dásamlegt, sást
varla skýhnoðri í lofti og stillilogn alla leið. Var út-
sýni fagurt. Sáum við Færeyjar mjög vel, er við flug-
um þar yfir. Þegar kom inn yfir norska hálendið,
fór vélin að ókyrrast í lofti og var ekki laust við, að
sumir yrðu örlítið loftveikir þá. Fæst af okkur höfðu
Þátttakendur í norræna mótinu.