Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1941, Page 16

Náttúrufræðingurinn - 1941, Page 16
110 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN STEINDÓR STEINDÓRSSON frá HlöOum: FRÁ ÍSAFJARÐARDJCIPI Dagbókabrot og gróðurlýsingar. INNGANGUR. Sumarið 1938 ferðaðist ég til gróðurrannsókna við ísafjarðar- djúp. Það var þá ætlun mín, að sú ferð yrði inngangur að rann- sóknum á gróðri á Vestfjörðum, eða a. m. k. nyrðri hluta þeirra. Hafði ég hugsað mér að ferðast um norðanverðar Strandir síð- astliðið sumar. Atvikin höguðu því svo, að úr því varð ekki, og þar sem ég geri ráð fyrir að önnur meira aðkallandi verkefni verði að sitja í fyrirrúmi næstu árin, svo að ég geti ekki haldið áfram rannsóknum þar vestra fyrst um sinn, býst ég varla við að ég fái unnið endanlega úr þeim rannsóknum, sem þegar eru gerðar. Til þess hins vegar, að þær yrðu ekki með öllu geymdar í plöggum mínum læt ég þessa þætti koma fyrir almennings sjónir. Hér er ekki um nokkra heildarlýsingu að ræða, en leitast við að gefa nokkurt yfirlit um gróðurfar þeirra staða, sem ég fékk skoðað. Ég hefi tengt kaflana við þá staði, sem ég dvaldi á, en ekki fellt lýsingarnar í eina heild, enda eru þættir þessir víða teknir beint upp úr dagbókum mínum. Ferðum mínum var þannig háttað, að ég fór fyrst að Ogri og hafði þar nokkra dvöl, síðan fór ég um Vatnsfjörð og að Lauga- bóli í ísafirði, og fór þaðan snöggva ferð að Rauðamýri. Þar næst dvaldi ég á Melgraseyri og skoðaði Kaldalón þaðan. Síðan dvaldi ég í Æðey og Sandeyri og fór þaðan um Snæfjallaheiði að Stað í Grunnavík. Lengst komst ég norður að Kjós í Hrafnsfirði, og leit ég eftir gróðri í Leirufirði í þeirri ferð. Freistandi hefði verið að ræða í þessum þáttum nokkuð um byggðina og fólkið í sveitum þessum, en hér er ekki verið að rita ferðasögu og verð- ur það því niður að falla, en ekki get ég látið hjá líða að geta þess, að vanfundnar verða á íslandi þær sveitir, þar sem bú- skapur og allur sveitarbragur og risna er með jöfnum myndar- brag og skörungsskap og við ísafjarðardjúp. Vil ég einnig nota tækifærið' til að þakka öllum þeim mörgu þar vestra, sem greiddu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.