Fálkinn - 04.04.1966, Síða 34
• Stjörnur
nr
Sterkt nýtt vopn
í baráttu yðar gegn
tannskemmdum
^ \
HIÐ NYJA GIBBS FLUOR TANNKREM STYRKIR TENNUR YÐAR
GEGN SYRUM OG VERÐUR AHRIFA VART INNAN 21 DAGS:
Um leið og þér byrjið að bursta tennurnar með
Gibbs Fluor tannkremi verði þær ónæmar fyrir
skaðlegum áhrifum munnvatnssýranna. Allir
vita að sýrur valda tannskemmdum.
Gibbs Fluor tannkrem styrkir glerung
tannanna og gefur þeim meira mótstöðuafl
gegn skaðlegum sýrum. Eftir þrjár vikur fer að
gæta áhrifanna og þá getið þér varið tennurnar
betur en nokkru sinni fyrr.
Hin leynilega Gibbs formúla sem styrkir
glerung tannanna táknar stórkostlega framför á
sviði tannvarna, þess vegna er Gibbs Fluor
tannkrem sterkasta vopnið í baráttu yðar við
tannskemmdum. Þess vegna ættuð þér að byrja
að nota Gibbs Fluor tannkrem strax í dag.
Eftir 21. dagsnotkun Gibbs Fluor tannkrems,
kvölds og morgna, hafa tennur yðar öðlast þann
styrkleika, sem nauðsynlegur er gegn skaðlegum
áhrifum sýranna.
Hvernig Virkar Gibbs Fluor?
Gibbs Fluor inniheldur efnasamsetningu sem
hefur styrkjandi áhrif á glerung tannanna, sem
nefnist “stannous fluoride”, sem ekki er hægt
að nota í venjulegt tannkrem.
Það þurfti fremmstu og reyndustu
tannkremaframlciðendur Bretlands til að
uppgötva formúlu þá, sem Gibbs Fluor
tannkremið byggist á. Um leið og þér byrjið
að nota Gibbs Fluor tannkrem virka efni þess á
tvennan hátt, til að minnka upplausnarhættu
glerung tannanna, svo bæði “stannous” og
“fluoride” hafa þýðingarmiklu hlutverki að
gegná.
Framh. af bls. 32.
hef gert mér of háar hugmynd-
ir um sjálfan mig, gáfnafars-
lega. Mér hefur aldrei tekizt
að lifa ástarlífi, vegna þess að
allir voru svo hversdagslegir í
samanburði við sjálfan mig.
Þetta hefur smám saman eyði-
lagt líf mitt, og í dag er ég
mjög einmana.
En þýðingarlaust er að
spyrja, hvað ég myndi gera, ef
ég ætti þess kost að lifa lífi
mínu á ný. Útilokað er að
hverfa til baka, og allar ósk-
ir í þá átt eru heimskan einber.
WILLIAM HOLDEN:
★ Ég eyðilagði
★ hjónaband mitt.
Eftir tuttugu ára hamingjusamt
hjónaband urðu mér á þau ör-
lagaríku mistök að fara frá
konunni minni, vegna þess að
ég féll fyrir annarri. Innan-
tómt ástarævintýri setti punkt-
inn við hjúskap okkar, og ég
uppgötvaði ekki fyrr en of
seint, að hin konan var ekki
verð þessarar fórnar.
Maður verður óhjákvæmi-
lega að gjalda fyrir slík mis-
tök, og það hef ég líka gert.
Ég hef iðrazt þeirra mjög, og
ef ég ætti þess kost að standa
aftur á vegamótunum, myndi
ég hugsa mig um, áður en ég
kastaði mér blindandi út í eitt-
hvað, sem engin framtíð er í,
en er byggt á yfirborðslegum
tilfinningum eingöngu.
REX HARRISON:
★ Ég hefði átt að gera
★ meira fyrir konuna,
★ sem ég missti.
Nú er ég hamingjusamur og
ánægður maður. Þegar ég var
58 ára vann ég Oscars verð-
launin. Ég er kvæntur Rachel
Roberts og okkur kemur ákaf-
lega vel saman. En ég á mikla
sorg að baki. Ég gerði ekki nóg
fyrir konuna, sem ég elskaði á
stuttu, en viðburðaríku skéiði
ævinnar. Það var Kay Kendall,
sem dó úr blóðkrabba. Kay var
falleg og fræg, og hjónaband
okkar var mjög hamingjusamt.
Kay var tilfinninganæm og
gat fengið hinar fráleitustu
hugmyndir og langanir. Ég
man að hún sagði mér frá öllu
því, sem hana langaði til að
koma í verk í lífinu. Það var
skömmu áður en hún varð veik,
en ég hristi höfuðið yfir hug-
myndaauðgi hennar og varð
að tala höstuglega til hennar
Einfaldar reglur, sem tryggja
heilbrigðar tennur
Það eru tvær grundvallarreglur, sem
tryggja heilbrigðar tennur:
(i) Burstið tennurnar reglulega
tvisvar á dag. (2) Farið til
tannlæknis tvisvar á ári.
Munið að regluleg tannhreinsun er
undirstaða heilbrigðra tanna og
góms, hreins og fersks munns. Með
þvi að bursta tennurnar vel f jarlagið
þér mat, sem annars myndar
skaðlegar sýrur. Burstið upp og
niður, einnig bak við tennurnar,
—verið vandvirk.
Farið reglulcga til tannlæknis, það
t sparar yður óþægindi og sársauka.
Keilbrigðar tennur eru dýrmæt eign:
þær auka gott heilsufar, vellíðan og
fegurð. Hirðið því vel um tennur yðar.
Látið fjölskyldu yðar byrja
að nota
Gibbs Fluor
TANNKREM
1 Gibbs fluoride
X-GF 2/ICE-B041
34
FALKINN