Iðnneminn - 01.10.1997, Blaðsíða 5
Viðtal við ungan nema í gullsmíði,
Pal Sveinsson
að nafni
Nafn: Páll Sveinsson.
Aldun Næstum því tuttugu ára.
Nám: Nemi hjá Jóni og Óskari í gullsmíði.
Af hverju valdir þú gullsmíðina: Það er nú
löng saga að scgja frá því. Eg byrjaði í trésntíði,
kláraði allt nema samninginn, þá var mér boðið
að fara í viðtal vegna hugsanlegs samnings í
gullsmíði og þar sem ég hef verið að dúlla mér
við að smíða ýmsa hluti heima ákvað ég að fara
og, þar af leiðandi fékk ég samning.
Hvernig líkar þér starfið: Mér líkar mjög vel
við starfið, það er fjölbreytt, ég fæ að gera hina
ýmsu hluti og sé núna að stórum hluta um
verkstæðið.
Hvað er þetta langt nám: Þetta er fjögurra
ára nám, en ég fæ líklega styttingu á náminu
sökum þess að ég er búin með trésmíðina. Ég
er bráðum búin með tvö ár og á líklega bara
eftir eitt ár, ég þurfti aðeins að taka hluta
námsins í skólanum.
Hver er framtíð þín eftir að námi er lokið:
Það verður bara að ráðast. I dag þarf að eiga
lager, verkfæri og hráefni áður en maður byrjar
en hérna áður fyrr dugði það að eiga örfá
verkfæri og smá hráefni þú fékkst samt
viðskipti. í dag þarf allt að vera tilbúið á
stundinni, fólk nennir ekki að bíða eftir
hlutunum.
Hver er framtíð greinarinnan í dag er
þetta komið mikið út í verslunarrekstur þar sem
vörurnar eru pantaðar að utan því sérsmíðaðir
hlutir eru það dýrir að fólk kaupir þá sjaldnar.
Greinin er komin út í listform, fólk rembist við
að gera eitthvað sem ekki hefúr verið gert áður
en það er mjög fátt sem ekki hefúr verið reynt
áður. Lágmarks vinnuafl er oft á verkstæðum cn
er þó misjafnt eftir fyrirtækjum. I fyrra voru sex
nemar í gullsmíði í Inskólanum í Reykjavík, en
fólk kemst ekki inn í skólann nema hafa fengið
samning, aðeins er kennt þegar fimm
nemendur eða fleiri sækja um. Honum finnst
námsaðstaðann vera til skammar í skólanum,
verkfæri af skornum skammti eða úrelt, ástæðan
er sú að ekki eru til nægir peningar í skólanum.
Flest verkfæri eru gjafir frá útlærðum
meisturum.
Gullsmíði er þekkt sem 'ættarstarfs-
grein", hvernig gengur þeim sem er ekki
innan ' ættarinnar" að fá samning:
Það getur verið rnjög snúið, sumir þurfa að
bíða í allt að tt'ö ár áður en þeir fá samning,
aðrir labba á milli fyrirtækja án þess að fá neitt.
Ég hefði aldrei farið út í þetta ef ég hefði þurft
að labba á milli fyrirtækja, en ég fekk
samninginn svo til beint upp í hendurnar.
BLÓÐBANKINN
r
Islendingar purfa um
15.000 blóðgjafir ó ári.
Við þörfnumst þinnar
hjálpar!
I ð n n e m i n n
5