Iðnneminn - 01.10.1997, Blaðsíða 29
Tréiðnadeild
Grunndeild tréiðna hefiir verið starfrækt við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja frá haustönn 1977.
Meginmarkmið brautarinnar er að veita
undirstöðuþekkingu í tréiðnaði, meðferð og
meðhöndlun áhalda. Nám í grunndeild tréiðna
er tveggja anna nám (eitt ár) og lýkur með prófi
sem veitir 12 mánaða styttingu á námssamningi
í tréiðnum og áframhaldandi bóklegu
framhaldsnámi s.s. í húsasmíði og
húsgagnasmíði. Eftir sveinspróf í greininni
getur nemandinn haldið áfram og farið í
meistaraskóla, sem veitir honurn rétt til þess að
stofna fyrirtæki í bygginga- og tréiðnaði. Auk
þess að öðlast rétt til að fara í meistaraskóla
getur nemandinn tekið stúdentspróf og sótt
nám í verkfræði og/eða arkitektúr.
Aðbúnaður til verklegs náms í tréiðnum er
góður, skólinn er búinn góðu
trésmíðaverkstæði sem rúmar 12 nemendur.
Fyrir utan hefðbundið bóklegt og verklegt
nám fara nemendur í heimsóknir á hina ýmsu
staði sem tengjast byggingariðnaðinum s.s.
BYKO hurðir og gluggar, límtrésverksmiðjuna
að Flúðum, Timbur og Stál og
Rannsóknarstofu byggingariðnaðarins. Einnig
hefur verið farin ferð til Finnlands á vegum
Leonardo áætlunarinnar, þar sem fimm
nemendur á lokaönn kynntu sér m.a.
timburvinnslu (frá skógarhöggi til smíðaviðar),
húsgagnaiðnað, iðnskóla og hönnunarskóla.
Fjöldi atvinnutækifæra bíða þeirra sem lokið
hafa iðnnámi þar sem vinnumarkaðurinn hefur
mikla þörf fyrir góða faglega þekkingu og
fjölhæfni.
Hársnyrtibraut
Við FS er starfrækt grunndeild í
hársnyrtingu, sem er mjög vinsæl.
Hársnyrtíiðn reynir á marga þætti, t.d.
er framkoma og þjónustulund við
viðskiptavin mikið atriði.
Farið er inn á flesta verkþætti
hársnyrtiiðnar t.d. hárþvott og
djúpnæringar, blástur, margskonar
bylgjur, daggreiðslur, permanent,
háralit og ekki má gleyma klippingum
fyrir dömur og herra.
Sérstaða hársnyrtifólks er að vinna
fyrir fólk og með öðru fólki.
Fatagerð
Fatagerð er valgrein innan skólans og eru
tveir áfangar í boði; FAG-103 og FAG-203. í
fyrri áfanganum er farið yfir helstu
saumaaðferðir ásamt því að taka upp einföld
snið og leggja snið á efni. í seinni áfanganum er
meira farið í vandasamari saumaskap og
sniðabreytingar eftír vexti. Nemendur í þessum
áfanga halda vinnubók.
Iðnneminn 29