Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 52
32 5. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR timamot@frettabladid.is SAM SHEPARD ER 56 ÁRA Í DAG. „Lýðræði er mjög viðkvæmt fyrir- bæri. Maður verður að hlúa að því. Um leið og við hættum að fara rétt með það og leyfum því að breytast í hræðsluáróður, er það ekki lengur lýðræði, er það? Það er þá eitthvað annað. Jafnvel mjög nálægt því að geta kallast einræði.“ Sam Shepard er bandarískt leikskáld og leikari. Í Flóahreppi eru þrjú félagsheimili starfrækt og tvö þeirra eiga afmæli nú í ár; fimmtíu ár eru síðan félagsheim- ilið Þjórsárver var tekið í notkun og sextíu ár frá því að Félagslundur var tekinn í notkun. Nú á laugardaginn, 7. nóvember, verður sérstök afmælishá- tíð í báðum félagsheimilum. „Dagskráin verður tvískipt en um daginn verða tónleikar í Þjórsárveri sem hefjast klukkan 14. Um kvöld- ið, klukkan 20.30, verður svo kaffi- samsæti í Félagslundi,“ segir Anný Ingimarsdóttir í undirbúningsnefnd afmælisveislunnar. „Um þrjátíu nemendur frá Tón- listarskóla Árnessýslu sem búsett- ir eru í Flóahreppi koma fram, allt frá forskólanemendum upp í þá sem lokið hafa efstu stigum. Um kvöldið munu kvenfélög Gaulverjabæjar- og Villingaholtshrepps svo bjóða upp á bakkelsi eins og það var hér fyrir 50- 60 árum, ekta rjómakökur, kleinur og pönnukökur.“ Um kvöldið munu þeir Jón M. Ívars- son og Hafsteinn Þorvaldsson flytja smá tölu um félagsheimilin þar sem Jón segir frá Félagslundi og byggingar- sögunni og Hafsteinn, sem kom mikið að byggingu Þjórsársvers, segir frá sögu þess. Orðið verður einnig laust. „Það eru eigendur félagsheimil- anna sem standa að þessari dagskrá og vilja með þessu framtaki bjóða íbúum sveitarfélagsins að heilsa upp á félagsheimili sín og eiga góða stund saman. Eigendur félagsheimilanna eru ungmenna- og kvenfélög sem og Flóa- hreppur, sem varð til 2006 við sam- einingu sveitarfélaganna. Ákveðið var að halda starfsemi allra félagsheimil- anna við sameininguna og það er alltaf nóg um að vera í í þeim“, segir Anný og nefnir þar íþróttastarfsemi, ætt- armót, veisluhöld og ýmislegt annað. Einnig sé tjaldstæðið við Þjórsárver mikið sótt og allar helgar yfir sumar- tímann fullbókaðar. Félagsheimilið er einnig notað fyrir mötuneyti Flóaskóla sem og íþróttakennslu. juliam@frettabladid.is STÓRAFMÆLI TVEGGJA FÉLAGSHEIMILA Í FLÓAHREPPI: 50 OG 60 ÁRA GÖMUL Félagsheimilin ávallt vel nýtt af heimamönnum og gestum FÉLAGSHEIMLIÐ FÉLAGSLUNDUR Sextíu ár eru liðin frá því að Félagslundur var tekinn í notkun. Boðið verður upp á „gamaldags“ veitingar um kvöldið í félagsheimilinu. MYND/ÚR EINKASAFNI AFMÆLISVEISLA Í FLÓAHREPPI Anný Ingi- mundsdóttirsegir starfsemi félagsheimilanna afar fjölbreytta í dag og margir sem komi þar við á hverju ári. MYND/ÚR EINKASAFNI Á þessum degi árið 1993 beið fjöldi fólks, um fimm hundruð manns, við Snæfellsjökul eftir geimverum sem lenda áttu þar klukkan 21.07 um kvöldið. Fólk sem sagðist vera í sambandi við geimverurnar sagði þær hafa boðað komu sína en ekki voru einungis Íslendingar sem biðu þeirra heldur komu erlendir gestir líka til lands- ins og fjölmiðlamenn. Geimverurnar létu ekki sjá sig en mikið var haft við og hélst fólk í hendur og umlaði í kór. Margir þóttust finna sterka strauma frá jökl- inum dagana á undan og Skúli Alexandersson, fyrrverandi alþingismaður, sem bjó þá á Hellissandi, sagði að fólk tæki komandi lendingu geimskipa alvarlega. Daginn áður hafði fjöldi manns, þar af um 300 útlendingar hist á alþjóðlegri UFO-ráðstefnu hér á landi þar sem fjallað var um fljúgandi furðu- hluti og önnur óútskýranleg fyrirbæri. Ráðstefnan var haldin á Hótel Sögu og talsmaður hennar var Bretinn Michael Dillon, lögregluforingi á eftirlaunum, sem sagðist oft og mörgum sinnum hafa orðið var við fljúgandi furðuhluti á starfs- ferli sínum. ÞETTA GERÐIST: 5 NÓVEMBER 1993 Beðið eftir geimverum SNÆFELLSJÖKULL MERKISATBURÐIR 1914 Bretar ná Kýpur af Tyrkj- um. 1960 Ásgrímssafn er opnað við Bergstaðastræti í Reykja- vík. 1992 Alþingi fellir tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna inngöngu Íslands í Evrópska efnahagssvæð- ið. 1994 Ronald Reagan, fyrrver- andi forseti Bandaríkj- anna, tilkynnir að hann þjáist af Alzheimer. 1996 Jökulhlaup í Grímsvötn- um sem stendur í tvo daga. 2006 Saddam Hussein, fyrr- verandi forseti Íraks, er dæmdur til dauða fyrir glæpi gegn mannkyni. 2007 Handritshöfundar í Holly- wood efna til verkfalls. Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Gunnar J. S. Flóvenz fyrrverandi framkvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar, Kópavogsbraut 88, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 6. nóvember kl. 15.00. Sigrún Ólafsdóttir Flóvenz Ólafur G. Flóvenz Sigurrós Jónasdóttir Brynhildur G. Flóvenz Daníel Friðriksson Margret G. Flóvenz Tryggvi Stefánsson Gunnar Gunnarsson Bera Pálsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær bróðir okkar mágur og frændi, Ragnar Símon Magnússon frá Söndum Einigrund 4, Akranesi, verður jarðsettur frá Akraneskirkju, þriðjudaginn 10. nóvember kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Ásta Magnúsdóttir Roberts Aðalheiður Magnúsdótttir Aldís Albertsdóttir Guðmunda Stefánsdóttir frændsystkin og fjölskyldur. Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Óli Júlíus Björnsson frá Siglufirði, til heimilis að Urðarbraut 2, Blönduósi, verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 7. nóvember kl. 14.00. Sigríður G. Pálsdóttir Sverrir S. Ólason Björg V. Zophoníasdóttir Birna Óladóttir Arnar E. Ólafsson Helga Óladóttir Óskar B. Elefsen Júlía Óladóttir Reynir Karlsson afa- og langafabörn. AFMÆLI HELGA BRAGA JÓNSDÓTTIR leikkona er 45 ára. BRYAN ADAMS, kanadískur tónlistar- maður, er fimmtugur. ÞORGERÐUR INGÓLFSDÓTT- IR kórstjóri er 66 ára. ART GAR- FUNKEL, bandarískur tónlistarmað- ur, er 68 ára. Samgöngumál, íþróttir og útivist voru íbúum Grafarvogs efst í huga þegar fundað var um framtíðarskipu- lag hverfisins í Foldaskóla nýverið. Um fimmtíu íbúar mættu og tóku þátt í hugmyndasmiðju ungra arki- tekta og í vinnuhópum. Til umræðu í hugmyndasmiðjunni voru samgöngur, kjarninn í hverf- inu, skólamál og íþrótta- og útivist- armál. Líflegar umræður sköpuðust og áhugi á lífsgæðum íbúanna leyndi sér ekki. Samtímis var Myndlistaskólinn í Reykjavík með smiðju fyrir börnin í hverfinu þar sem þau gátu skapað listaverk og leikið sér. Þetta var í þriðja skipti af tíu sem Skipulags- og byggingarsvið efnir til opins húss í hverfum borgarinn- ar í tengslum við endurskoðun aðal- skipulags Reykjavíkur. Næst verður opið hús í Árbæjarskóla í dag frá 17 til 18.30. Áhugasamir um hverfið sitt Í GRAFARVOGI Íbúarnir tóku virkan þátt í hugmyndavinnunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.