Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 69

Fréttablaðið - 05.11.2009, Blaðsíða 69
FIMMTUDAGUR 5. nóvember 2009 49 Söngkonan Rihanna ætlar að tjá sig í fyrsta sinn um árás fyrrver- andi kærasta síns, Chris Brown, á sig í febrúar. Diane Sawyer hjá sjónvarpsstöðinni ABC ætlar að ræða við söngkonuna og verð- ur viðtalið sýnt í kvöld og á morgun. Í viðtalinu segir hin 21 árs Rihanna að Brown hafi verið fyrsta ástin sín og að fyrst þetta kom fyrir hana þá geti þetta komið fyrir hvern sem er. Einn- ig ræðir hún um uppvaxtarár sín á Barbados-eyjum, fjölskyld- una sína og hvernig henni hefur liðið síðan árásin átti sér stað. Chris Brown var dæmdur í fimm ára skilorðsbundið fangelsi fyrir árásina og til sex mánaða samfé- lagsþjónustu. Tjáir sig loks um árásina RIHANNA Söngkonan ætlar að tala um árásina sem átti sér stað í febrúar. Leikkonan Kate Hudson er á for- síðu nýjasta heftis tímaritsins Elle UK. Í viðtali við blaðið seg- ist Hudson líta á karlmenn sem drengi. „Þegar ég tala við stráka þá finnst mér sem þeir heyri bara sumt af því sem maður segir. Ef það væri lítil talblaðra yfir höfð- inu á þeim gæti maður séð að þeir hugsuðu aðeins um íþróttir, kyn- líf og mat,“ segir leikkonan sem sjálf á fimm ára gamlan son. „Ég elska stráka, en ég held að þeir séu allir mjög einfaldir. Sumir vilja halda því fram að þeir séu flóknir persónuleikar, en í raun er ofur einfalt að átta sig á þeim.“ Hudson hefur átt í sam- bandi við hafnaboltaleikmann- inn Alex Rodriguez síðustu mánuði, en hann átti einnig stutt ástarsam- band með söng- konunni Mad- onnu fyrir ekki svo margt löngu. Finnst strák- ar einfaldir KANN Á KARLA Kate Hudson segir karlmenn vera einfald- ar sálir sem auðvelt sé að átta sig á. Katie Holmes mun bæði fram- leiða og leika í kvikmyndinni Romantics ásamt Önnu Paquin úr þáttunum True Blood. Upphaf- lega átti leikkonan Liv Tyler að fara með aðalhlutverkið í kvik- myndinni en eftir að hún hætti við var Holmes feng- in í staðinn. Kvik- myndin fjallar um tvær háskólavin- konur sem hittast aftur síðar þegar önnur þeirra giftir sig. Tökur á mynd- inni fara fram í New York og hefjast í næstu viku. Framleiðir kvikmynd NÝTT HLUTVERK Katie Holmes framleiðir og fer með aðalhlutverk- ið í nýrri kvikmynd. „Mér og samstarfskonu minni datt þetta í hug þegar við vorum að vinna saman því við höfðum báðar mikinn áhuga á lík- amsrækt. Þegar kreppan skall á misstum við báðar vinnuna og í stað þess að sitja aðgerðarlausar heima ákváðum við að opna okkar eigin líkamsræktar stöð. Við opnuðum Studio Fitt saman í janúar en hin flutti út í sumar og nú er ég ein eftir ásamt tveimur þjálfurum,“ segir Elísabet Tanía Smáradótt- ir, viðskiptafræðingur og Fit Pilates kenn- ari sem rekur líkamsræktarstöðina Studio Fitt við Seljaveg. Stöðin býður meðal annars upp á tíma í Fit Pilates, boot camp fyrir konur og jóga, svo fátt eitt sé nefnt. Elísabet Tanía tók á leigu húsið á Selja- vegi sem áður hýsti Sjúkraþjálfun Reykja- víkur og fékk aðstoð frá vinum og vanda- mönnum við endurbætur á húsnæðinu. „Við reyndum að gera þetta á eins ódýran máta og við mögulega gátum og fengum því aðstoð frá vinum og vandamönnum við að koma húsnæðinu í stand. Við þurft- um að rífa niður nokkra veggi og byggja aðra, pússa gólfin og koma upp betri sturtu- aðstöðu og í kjölfarið þykir manni enn vænna um staðinn.“ Hún kennir daglega í Studio Fitt en hefur fengið tvo aðra þjálfara til liðs við sig. „Ég kenni ekki morgun- eða kvöldtímana því ég á lítið barn sem þarf svolítið á mömmu sinni að halda.“ Aðspurð segist Elísabet Tanía hafa æft ýmsar íþróttir frá barnsaldri og segir hún íþróttaiðkun vera henni jafn nauðsynlega og súrefni. „Í gegnum árin hef ég lesið nánast allt sem viðkemur næringarfræði, líkamsrækt og heilsu. Þess utan hef ég tekið ýmis þjálfararéttindi, þannig að ég er án efa komin í draumastarfið,“ segir hún og hlær. - sm Missti vinnuna og opnaði líkamsræktarstöð KOMIN Í DRAUMASTARFIÐ Elísabet Tanía opnaði Studio Fitt eftir að hafa misst vinnuna í kjölfar kreppunnar. Hún segist nú vera komin í draumastarfið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.