Vikan


Vikan - 17.02.1944, Qupperneq 1

Vikan - 17.02.1944, Qupperneq 1
Forseti íþróttasambands íslands segir höfuðmarkmið sambandsins vera að Gera drengi að mönnum og menn að góðum drengjum Sambandið var stofnað af 12 fé- lögum, 9 úr Reykjavík, en 3 utan höfuðstaðarins. — Meðlimir sam- bandsins voru í upphafi um eitt þúsund. Nú eru í í. S. í. 160 fé- lög víðsvegar á landinu, með um 21 þúsund félagsmönnum, en auk þess eru í I. S. I. 17 íþróttaráð og 5 héraðasambönd. Þess er oft getið í fornritum, að alls- konar íþróttaæfingar hafi verið aðal- atriði uppeldisins með forfeðrum vorum og kennsla í þeim greinum hófst jafnskjótt og þroski sveinanna leyfði. Iþróttanámið var auðvitað fyrst og fremst í því fólgið, að menn tömdu sér vopnfimi og voru boga- skot, handskot og skylmingar höfuðgrein- ar hennar. Iðkaðar voru og ýmsar aðrar æfingar, sem gerðu líkamann sterkan og fiman og sálina snarráða og þrekmikla og urðu margar þeirra mönnum til gagns í lifsbaráttunni. Kjarkur og karlmennska var alltaf mikils virði, jafnt við friðsamleg störf sem í hernaði. I uppvexti var Jarl látinn „hestum ríða, hundum verpa, sverð- um bregða, sund að fremja“ og það er sagt um Þorkel þurrafrost, að hann hafi farið með Sigmund Brestisson og Þóri frænda hans til tjarnar og sýnt þeim sundtökin. Hann æfði þá líka í bogfimi og spjótkasti. Unglingarnir iðkuðu „sundfarir við sjó frám, eða í ám, vötnum og laugum, glím- ur og stökk í stofum inni eða á mörkum úti. Þegar snæ leggur í brekkur og ísa á vötn, liðka þeir og herða líkama sinn við Framhald á bls. 3. Benedikt G. Waage, forseti íþróttasambands Isl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.