Menntamál - 01.05.1952, Page 4

Menntamál - 01.05.1952, Page 4
42 MENNTAMÁL sem hafði þá þegar lagt merkilegan grundvöll að uppeldi og kennslu vangefinna barna og fávita. Varð þetta starf dr. Montessori upphaf að áhuga hennar á uppeldisfræði og hafði afdrifarík áhrif á kenningar hennar og uppeldis- aðferðir síðar meir. Árið 1898 varð Montessori forstöðukona fyrir skóla í Róm fyrir kennara vangefinna barna. í sambandi við skóla þennan var stofnun fyrir slík börn. Gafst Montessori þar kostur á að gera tilraunir með kennslutækjum og að- ferðum Seguins og gerði á þeim ýmsar breytingar, er til umbóta horfðu. Lagði hún þá jafnframt stund á nám í upp- eldis- og sálarfræði við háskólann í Róm. Árið 1906 var henni falin umsjón með dagheimili fyrir vanrækt börn á aldrinum 3 til 7 ára í fátækrahverfi Róma- borgar. Vann hún þar óhemju mikið og merkilegt mannúð- arstarf, jafnframt því sem hún hóf þar athuganir á sálar- lífi og þroska barnanna. Athuganir þessar ásamt þeim að- ferðum, sem hún hafði áður beitt við vangefin börn, mynd- uðu smám saman og mótuðu uppeldisfræðilegar kenningar hennar. Af þeim rótum er hin alþekkta Montessoriaðferð runnin, og á þeim byggjast Montessori-leikskólarnir, sem nú eru kunnir um allan hinn menntaða heim. Trú Mariu Montessori á hið góða í barnssálinni setti svip sinn á kenningar hennar. Hún taldi, að unnt væri að kalla fram hið bezta í fari barnsins og þroska það með því að veita því hið rétta uppeldislega umhverfi, fá því í hendur leikföng og verkefni, sem þroska þess hæfir á hverjum tíma, og með því að leysa það undan stöðugum og þving- andi leiðbeiningum fullorðna fólksins. Hún lagði mikla áherzlu á frjálsræðið og hæfi barnsins til sjálfstarfs og sjálfsuppeldis. „Allur grundvöllurinn að árangri okkar hvílir á þeim aðferðum, sem við höfum fundið upp,“ segir hún á einum stað í ritum sínum, „en þær eru aðallega fólgn- ar í skipulagningu starfsins og frjálsræði." Skipulagning starfsins í Montessori-skólunum byggist

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.