Menntamál


Menntamál - 01.05.1952, Qupperneq 10

Menntamál - 01.05.1952, Qupperneq 10
48 MENNTAMÁL kennslukraftar og húsnæði að sama skapi dýrari. Auk þess þarf mikið fé að leggja í tæki og efni. í Reykjavík var ekk- ert húsnæði fyrir hendi til þessarar starfsemi, jafnvel bók- lega kennslan átti við mikil þrengsli að búa. En á síðast liðnu ári reyndist kleift að útvega nokkurt húsnæði til verk- legs náms. Var það mikill hluti af þakhæð Austurbæjar- skólans og ein hæð í húsinu Hringbraut 121. í Austurbæjarskólanum fer fram kennsla í handa- vinnu stúlkna (ýmiss konar saumaskap, og að sníða og taka mál, þjónustubrögðum og vefnaði), matreiðslu, sjóvinnu- brögðum, vélritun og fleiri verklegum greinum. Auk þess er þar ein kennslustofa ætluð fyrir bóklegar greinar. Á Hringbraut fer fram tré- og járnsmíðanámið. Stórri trésmíðavinnustofu var komið þar upp ásamt allmyndar- legum krók fyrir vinnuvélar og rúmgóðri efnisgeymslu. I öðrum enda hússins er járnsmíðaverkstæði ásamt krók fyrir vélvirkjun. Annaðist vélsmiðjan Hamar uppsetningu vinnuborða og tækja. Námið hefst með 3. bekk gagnfræðastigs og er ætlað að standa 2 vetur. Inntökuskilyrði er unglingapróf. Upp úr 3. bekk er lokið miðskólaprófi verknámsdeildar en úr 4. bekk gagnfræðaprófi. Áður en skóli tók til starfa s. 1. haust var gerð svofelld námsáætlun fyrir 3. bekk: I. Bóklegt nám: íslenzka ................................. 4 st. reikningur .............................. 3 — enska (eða danska) ....................... 4 — (3) félagsfræði .............................. 2 — Samtals 13 st.(12) Ath. f stað ensku geta nemendur kosið dönsku, sem yrði þá 3 st. á viku.

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.