Menntamál - 01.12.1966, Blaðsíða 94
iiOO
MENNTAMÁL
ASalkcnnarar, auk námsstjórans, voru £rú Margareta Vestin,
skrifstofustjóri í Skolöverstyrelsen í Stokkhólmi, og Kristinn
Björnsson, sálfræðingur, en auk þeirra fluttu erindi og leiSbeindu
17 manns.
5. StærSfræSi- og eðlisfræðinámskeiS stóð frá 5.—17. september. Því
stjórnaði GuSmundur Arnlaugsson, rektor. Reglulegir þátttakend-
ur voru 33 og 10—15 óreglulegir.
Námskeiðið var bæði fyrir kennara í barna- og gagnfræðaskólum.
I eðlisfræði kenndu: Páll Theódórsson, eðlsfræðingur, Steingrím-
ur Baldursson, prófessor, og Örn Helgason, eðlisfræðingur.
Stærðfræði kenndu: Guðmundur Arnlaugsson, rektor, Björn
Bjarnason, dósent, og Hörður Lárusson, menntaskólakennari.
Námskeið voru haldin að tilhlutan námsstjóra og einstakra kennara-
félaga á:
1. Húsavík dagana 26.-29. september. Aðalviðfangsefnið þar var
föndurkennsla yngri barna. Kennari var Ragnhildur Briem Ólafs-
dóttir.
Erindi fluttu námsstjórarnir:
Óskar Halldórsson, sem talaði um íslenzkukennslu í barnaskólum,
Stefán Ól. Jónsson, sem ræddi um starfsfræðslu í skólum, og Val-
garður Haraldsson, sem ræddi um skólastarfið.
Þátttakendur voru 19.
2. Akureyri dagana 30. september til 3. október. Aðalviðfangsefnið
var starfræn kennsla og leiðbeinandi Sigurþór Þorgilsson kennari.
Erindi fluttu sömu námsstjórar og á Húsavlkurnámskeiðinu og
um sömu efni.
Þátttakendur voru 46.
3. Laugum í Dalasýslu dagana 24. og 25. september. LeiSbeint var
með notkun kennslutækja og fræðslumynda í kennslunni. Ásgeir
Guðmundsson, yfirkennari, flutti erindi og Rúnar Brynjólfsson
og Ólafur Proppé sýndu kennslutæki og leiðbeindu um notkun
þeirra.
Þátttakendur voru um 50.
4. Höfn í Hornafirði dagana 7.-9. október. Björn Bjarnason
menntaskólakennari leiðbeindi um stærðfræði og eðlisfræði. Ósk-
ar Halldórsson námsstjóri flutti tvö erindi um skólaritgerðir,
Skúli Þorsteinsson námsstjóri flutti erindi um réttindi og skyld-
ur kennara og um alþjóðasamtök kennara.
Þátttakendur voru 33.